Tugmilljörðum varið í að gera Champs-Élysées að betri stað

Anne Hidalgo borg­ar­stjóri Parísar stað­festi í við­tali sem birt­ist á sunnu­dag að hún ætl­aði að standa við lof­orð og gera breið­strætið Champs-Élysées grænna og mann­væn­legra. Áformin eru verð­metin á tæpa 40 millj­arða íslenskra króna.

Borg­ar­yf­ir­völd í París hafa boðað að á þessum ára­tug verði ráð­ist í mikla umbreyt­ingu á hinni sögu­frægu breið­götu, Champs-Élysées, sem flestir kenna eflaust við Sig­ur­bog­ann, hið mikla mann­virki og túrista­segul sem stendur á ógn­ar­stóru hring­torgi við enda breið­stræt­is­ins. Á hinum end­anum er Concorde-torg, annað þekkt kenni­leiti borg­ar­innar.

Nefnd skipuð kaup­mönnum og fast­eigna­eig­endum við breið­göt­una og nágrenni hennar hefur á und­an­förnum árum barist fyrir því að eitt­hvað verði gert til þess að fegra göt­una, sem hefur ekki fengið and­lits­lyft­ingu að ráði síð­ustu þrjá ára­tugi.

Að frum­kvæði þessa hóps sem starfar og býr í grennd við göt­una var arkiktekta­stofan PCA-Stream fengin til þess, árið 2018, að hefja vinnu við að teikna upp nútíma­legri, grænni og mann­legri götu­mynd, sem gæti gefið Champs-Élysées og nágrenni nýtt líf. 

Gang­stétt­irnar eru farnar að láta á sjá og gatan er alltaf full af meng­andi bílum með til­heyr­andi slæmum loft­gæðum og hljóð­mengun sem hraðri umferð þeirra fylgja. Um 3.000 bílar, sem fæstir stoppa í grennd­inni heldur bruna eitt­hvert annað, aka um breiðar göt­urnar á hverri klukku­stund að með­al­tali yfir dag­inn.

Gatan og nágrenni hennar mun fá yfirbragð borgargarð fremur en breiðstrætis þegar áætlanir borgaryfirvalda ná fram að ganga.
Gatan og nágrenni hennar mun fá yfir­bragð borg­ar­garð fremur en breið­strætis þegar áætl­anir borg­ar­yf­ir­valda ná fram að ganga.

Arki­tekt­inn Philippe Chiambaretta, eig­andi PCA-Stream, ræddi við breska blaðið Guardian um áformin árið 2019. Þá sagði hann að staða breið­göt­unnar end­ur­spegl­aði í raun öll helstu vanda­mál borga um allan heim: „Mengun, staða bíls­ins, túrismi og neyslu­aukn­ing­ar­stefna.“

Parísarbúar hættir að koma

Í rann­sóknum á vegum arki­tekta­stof­unnar hefur komið fram að Par­ís­ar­búar séu meira og minna hættir að heim­sækja göt­una. Samkvæmt vett­vangskönnun sem gerð var frá morgni dags og fram að mið­nætti voru 68 pró­sent þeirra sem voru á göt­unni ferða­menn, að mestu leyti útlend­ingar, eflaust mættir að taka sjálfs­myndir fyrir framan Sig­ur­bog­ann.

Um 3.000 bílar aka um breiðstrætið á hverri klukkustund yfir daginn. Flestir eru að flýta sér eitthvert annað. Risavaxið margreina hringtorg liggur í kringum Sigurbogann.
Um 3.000 bílar aka um breið­strætið á hverri klukku­stund yfir dag­inn. Flestir eru að flýta sér eitt­hvert annað. Risa­vaxið mar­greina hring­torg liggur í kringum Sig­ur­bog­ann.

Fáir Par­ís­ar­búar koma núorðið í þetta sögu­fræga stræti til þess að njóta borg­ar­innar sinnar, versla eða setj­ast inn á kaffi­hús. Þeir fara annað. Þessu langar fólki til þess að breyta.

Borgarstjóri tekur breiðstrætið upp á sína arma

Anne Hidalgo borg­ar­stjóri Parísar boð­aði fyrir kosn­ingar á síð­asta ári, þar sem hún sótt­ist eftir end­ur­kjöri, að hún myndi koma til­lög­unum frá PCA-Stream í far­veg og breyta ásýnd Champs-Élysées. Hidalgo hefur nú stað­fest að það sé ætlan sín að ráð­ast í verkið, en það gerði hún í við­tali í rit­inu Journal du Dimanche á sunnu­dag.

Hún sagði að það yrði þó ekki farið af stað með umbreyt­ing­una fyrr en eftir árið 2024, en þá mun Par­ís­ar­borg hýsa Ólymp­íu­leik­ana. Illt væri að hafa allt sund­ur­grafið og óklárað þegar sá stór­við­burður fer fram í borg­inni.

Vilji stendur til þess að gera Champs-Élysées aftur að stað sem Parísarbúar vilja heimsækja.
Vilji stendur til þess að gera Champs-Élysées aftur að stað sem Par­ís­ar­búar vilja heim­sækja.
Í dag er breiðgatan ekki mjög heillandi fyrir gangandi vegfarendur.
Í dag er breið­gatan ekki mjög heill­andi fyrir gang­andi veg­far­endur.

Samkvæmt frétt Guardian verður þó byrjað á því að klára umbreyt­ingu Concorde-torgs fyrir Ólymp­íu­leik­ana. Síðan er gert ráð fyrir að taka breið­strætið í gegn og ljúka umbreyt­ingu Champs-Élysées fyrir árið 2030.

Fram­kvæmd­irnar sem PCA-Stream sér fyrir sér eru verð­metnar á um það bil 250 millj­ónir evra, jafn­virði hátt í 40 millj­arða íslenskra króna.

Umbreyting Parísar undir stjórn Hidalgo

Anne Hidalgo hefur verið borg­ar­stjóri í París allt frá árinu 2014, eftir að hafa verið vara­borg­ar­stjóri fyrir Sós­í­alista allt frá árinu 2001. Á tíma sínum í emb­ætti hefur hún beitt sér fyrir því að bílum verði úthýst af ýmsum götum í París og auka veg hjól­reiða.

Hidalgo hefur minnkað plássið sem bílar fá á göt­unum og lækkað hámarks­hraða víða. Eitt af kosn­inga­lof­orðum hennar var að breyta 60 þús­und bíla­stæðum með­fram götum í hjóla­stíga.

Anne Hidalgo borgarstjóri Parísar hefur gert djarfar breytingar og beinlínís úthýst bílum af ýmsum götum til þess að búa til pláss fyrir hjólandi og gangandi.
Anne Hidalgo borg­ar­stjóri Parísar hefur gert djarfar breyt­ingar og bein­línís úthýst bílum af ýmsum götum til þess að búa til pláss fyrir hjólandi og gang­andi.

Þessar hrær­ingar í borg­inni, aðförin að einka­bílnum og allt raskið sem það hefur haft í för með sér fyrir bíl­stjóra og marga aðra hefur ekki heillað alla.

En árang­ur­inn er löngu byrj­aður að sýna sig og víð­femt net öruggra hjóla­stíga hefur orðið til þess að fleiri stíga á fák­inn.

Kjós­endur treystu Hidalgo fyrir því að leiða borg­ina áfram næstu sex árin, á þess­ari braut. Eftir sigur í kosn­ing­unum í fyrra þakk­aði hún Par­ís­ar­búum fyrir að velja „París sem andar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár