40% líkur á að Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn geti myndað stjórn

Stærstu flokk­arnir í kosn­inga­spánni gátu myndað 32 manna meiri­hluta í aðeins 40% til­vika 100.000 sýnd­ar­kosn­inga í þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar.

Tveggja flokka meiri­hluta­sam­starf stærstu flokk­anna í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar er nú orðið mun ólík­legra en það hefur verið und­an­farnar vikur. Í aðeins 40 pró­sent til­vika í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum þing­sæta­spár­innar fengu þessir flokkar 32 þing­menn.

Líklegra er að Píratar, Sam­fylk­ingin og Vinstri græn geti myndað meiri­hluta á þing­inu eftir kosn­ing­arnar, miðað við kosn­inga­spána sem gerð var í gær, 18. októ­ber. Í 51 pró­sent til­fella sýnd­ar­kosn­ing­anna fengu þessir þrír flokkar sam­an­lagt 32 þing­menn.

Turnarnir falla

Það sem af er í kosn­inga­bar­átt­unni hafa Vinstri græn verið vin­sæl­asti flokk­ur­inn í kosn­inga­spánni, þar sem skoð­ana­kann­anir á fylgi stjórn­mála­flokka eru vegnar til þess að fá sem skýrasta mynd af þróun fylg­is­ins. Vinstri græn eru enn stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins miðað við nýj­ustu kosn­inga­spána, en hafa tapað tölu­vert und­an­farna daga og eru nú með stuðn­ing 23,3 pró­sent kjós­enda.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur einnig minnkað nokkuð, en fylgi við flokk­inn hefur hins vegar hald­ist jafn­ara en fylgi Vinstri grænna. 21,7 pró­sent ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn miðað við nýj­ustu kosn­inga­spána. Það er minni stuðn­ingur en flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið í Alþing­is­kosn­ingum, frá stofnun hans árið 1929. Versta útkoma Sjálf­stæð­is­manna í kosn­ingum var árið 2009 þegar flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða og 16 þing­menn kjörna.

Á meðan stuðn­ingur við Vinstri græna og Sjálf­stæð­is­flokk­inn hefur minnkað hefur Sam­fylk­ingin risið og skilið sig frá öðrum flokkum sem þriðji vin­sæl­asti flokk­ur­inn. Sam­fylk­ingin er með 14 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni sem gerð var í gær.

Píratar, Mið­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Viðreisn bæta einnig við sig á milli kosn­inga­spáa. Píratar eru með 10,3 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn með 9,7 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 7,2 pró­sent og Viðreisn með 5,3 pró­sent.

Viðreisn sækir í sig veðrið

Eftir að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir tók við sem for­maður Við­reisnar af Benedikt Jóhann­essyni hefur fylgi flokks­ins farið á flug í kosn­inga­spánni. Viðreisn er nú með 5,3 pró­sent, eftir að hafa verið með 3,3 pró­sent stuðn­ing fyrir viku síðan, 11. októ­ber.

Viðreisn gæti – ef fylgi flokks­ins heldur áfram að aukast – orðið að mik­il­vægum leik­manni í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir kosn­ing­arnar, bæði til hægri og vinstri. Það mun skýr­ast á allra næstu dögum hversu mik­il­vægt hlut­verk Viðreisn getur leikið í sam­kvæm­is­leikjum stjórn­mála­manna að loknum kosn­ingum. Eins og stendur eru 32 pró­sent líkur á því að Viðreisn nái ekki inn manni. Það þýðir hins vegar að 68 pró­sent líkur eru á að flokk­ur­inn fái minnst einn mann kjör­inn.

Á sama tíma og Viðreisn rís hefur Björt fram­tíð fallið. Björt fram­tíð mælist nú með aðeins 2,2 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni og er lang minnsti flokk­ur­inn sem mældur er sér­stak­lega í spánni þetta árið. Viðmiðið í kosn­inga­spánni hefur verið að mæla þá flokka sér­stak­lega sem fá meira en tvö pró­sent hverju sinni. Í þing­sæta­spánni reikn­ast lík­urnar á því að Björt fram­tíð nái ekki inn manni á þing 66 pró­sent.

Um kosningaspána 18. október

Þær kann­anir sem liggja nýj­ustu kosn­inga­spánni til grund­vallar eru listaðar hér að neðan. Hægt er að lesa nánar um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans eða á vefnum kosn­inga­spá.is.

  • Skoð­ana­könnun MMR 17. – 18. októ­ber (vægi 37,8%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 16. okt (vægi 23,1%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 9. – 12. októ­ber (vægi 20,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. sept­em­ber – 12 októ­ber (vægi 19,0%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár