Hugrakki dýra­vin­ur­inn Oleksandra Mezinova, og þús­undir dýra í athvarfi hennar, lok­uð­ust inni á hernumdu svæði Rússa norður af Kænu­garði fyrir tæpu ári. Brosið og gæskan, reynd­ust besta vopn hennar, þegar henni tókst að afla vista fyrir dýrin í athvarf­inu og að ving­ast við og afla upp­lýs­inga frá inn­rás­ar­hernum, sem hún kom áfram til hers heima­manna. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Njósnarinn í dýraathvarfinu

Það eru ekki bara her­menn í fremstu víg­línu sem lagt hafa líf sitt að veði fyrir sjálf­stæði Úkraínu eins og Óskar Hall­gríms­son komst að. Rúmlega fimm­tug kona sem rekið hefur dýra­at­hvarf fyrir þús­undir gælu­dýra sem orðið hafa við­skila við eig­endur sína í inn­rásinni, segir brosið hafa verið hennar aðal vopn þegar hún afl­aði upp­lýs­inga hjá rúss­neska hernum og hjálp­aði þannig til við að hnekkja fram­rás Rússa.

„Ég heill­aði Rússana með bros­inu mínu en faldi um leið sím­ann í stíg­vél­inu svo þeir myndu ekki drepa mig ef þeir skyldu nú hafa ákveðið að leita á mér. Sem betur fer þeir gerðu það aldrei. Ég held að þá gruni ekki svona litla og krútt­lega konu eins og mig.“

Svona lýsir Oleksandra Mezinova, ríf­leg fimm­tug kona sem staðið hefur vakt­ina vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu und­an­farið árið. Hin brosmilda og lífs­glaða Oleksandra hefur staðið í ströngu á nokkrum víg­stöðvum, bók­staf­lega, án þess þó að vopn­ast.

Hún hefur sem sem eig­andi að Sirius dýra­at­hvarf­inu, í þorp­inu Fedorikva norður af Kænu­garði, tekið við miklum fjölda dýra sem lent hafa á ver­gangi vegna inn­rás­ar­innar. Hún, ásamt fimmtán starfs­mönnum, 3.200 hundum, 180 köttum, þremur kindum og tveim hænum lok­uð­ust inni við víg­línu átak­anna, þegar Rússar sátu um Kyiv á upp­hafs­dögum inn­rás­ar­innar í byrjun mars.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár