Mynd: Hafliði Sævarsson

Bleika alda Inkanna

Önnur vinstri sveifla stendur yfir í Rómönsku Ameríku. Hún hófst með kjöri Andrés Manuel López Obrador í Mexíkó árið 2018 og hélt áfram með kjöri Gustavo Petro í Kólumbíu fyrr á þessu ári.

Quito í Ekvador er næst hæsta höf­uð­borg heims. Á götum þessar fal­legu borgar sem Inkarnir byggðu er ber­sýni­legt hvaða áhrif heims­far­ald­ur­inn og versn­andi efna­hags­horfur hafa haft á land sem er sér nægt um flest og þar sem fram­tíð­ar­vonir voru að mestu bjartar á árunum 2007-2017.

Þá var þar við völd Rafael Correa, fram­fara­sæk­inn for­seti sem sór sig í ætt við nýja kyn­slóð vinstri­s­inn­aðra leið­toga í Rómönsku Ameríku sem jafnan voru kenndir við Bleiku öld­una. Aðrir í þeim hópi voru Inácio Lula da Silva í Brasilíu, Nestor Kirchner í Argent­ínu, Evo Morales í Bólivíu og Hugo Chavez í Venes­ú­ela.

Þó svo að arf­leifð og orð­spor þess­ara manna sé mjög ólík þá er ljóst að önnur og enn stærri vinstri alda skellur núna á þessum heims­hluta. Aftur á móti er enn óljóst hvernig risa­stóri nágrann­inn í norðri, Banda­ríkin, mun bregð­ast við.

Nágranninn og bakgarðurinn

Á 19. öld lýsti James Monroe Banda­ríkja­for­seti Rómönsku Ameríku sem bak­garði Banda­ríkj­anna, stefna sem jafnan hefur verið kölluð Monroe dotrine og gengur út að halda evr­ópskum nýlendu­herrum frá álf­unni og aðstoða ríkin þar með beinum afskiptum Banda­ríkj­anna. Þessi afskipti hafa oftar en ekki verið hern­að­ar­leg og ósjaldan hafa stjórn­ar­skipti í löndum Rómönsku Ameríku átt sér stað með her­valdi og íhlutun CIA. Gamall brand­ari Latínóa hljómar eitt­hvað á þessa leið: Veistu af hverju það hefur aldrei verið valda­rán í Washington? Nú, af því að þar er ekk­ert sendi­ráð Banda­ríkj­anna þar.

Núver­andi vinstri sveifla í for­seta­emb­ættum Rómönsku Ameríku hófst með kjöri Andrés Manuel López Obrador í Mexíkó árið 2018. Hann hefur vakið athygli fyrir rót­tækar ákvarð­anir og að tala tæpitungu­laust. Síðan urðu ákveðin þátta­skil í júlí á þessu ári þegar Kól­umbíu­búar kusu Gustavo Petro sem for­seta lands­ins, fyrsta vinstri mann­inn í 200 ár.

Miklar líkur eru á að í Brasilíu verði Inácio Lula da Silva kjör­inn aftur til for­seta í haust eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu frá 2003-2011 og setið í fang­elsi í milli­tíð­inni síðan þá. Ef það gengur eftir munu 80% þeirra tæp­lega 700 milljón íbúa sem búa í Rómönsku Ameríku eiga sér vinstri-sinn­aða leið­toga, þ.á.m. í öllum sjö fjöl­menn­ustu ríkj­unum (Brasilíu, Mexíkó, Kólumbíu, Argent­ínu, Perú, Venes­ú­ela og Síle).

Aðdáandi Heilags Frans af Asísí til valda

Andrés Manuel López Obrador var kjör­inn for­seti í Mexíkó árið 2018 eftir að hafa tapað for­seta­kosn­ingum tvisvar á löngum stjórn­mála­ferli þar sem m.a. vís­bend­ingar um svindl höfðu áður leitt til mót­mæla. López Obrador hafði áður vakið athygli fyrir fram­sækna nálgun í bar­átt­unni við glæpi og fátækt sem borg­ar­stjóri Mexík­ó­borgar.

Andrés Manuel López Obrador var kjörinn forseti Mexíkó árið 2018.
Andrés Manuel López Obrador var kjör­inn for­seti Mexíkó árið 2018.

López Obrador beitti engum vett­linga­tökum við að sýna fram á að sér væri alvara í að taka á mis­rétti í land­inu eftir að hann varð for­seti. Hann lækk­aði eigin laun um meira en helm­ing en áður hafði launa­munur for­seta og meðal verka­manns hvergi verið meiri en í Mexíkó. Hann setti einnig rán­dýra for­seta­flug­vél for­vera síns á sölu.

Vanalega hafa mexíkóskir for­setar sem viljað hafa taka á fátækt gert það með hærri sköttum en López Obrador ætlar sér að minnka kerf­is­læga spill­ingu og rík­is­báknið með því að reka eða færa til rík­is­starfs­menn utan verka­lýðs­fé­laga í æðstu- og milli­stjórn­enda­stöðum. Einnig eiga rík­is­starfs­menn að fá föst laun, enga bónusa og vinna sléttar átta klukku­stundir sex daga vik­unnar. Hann hefur lagt til að öryrkjar og 68 ára og eldri sem eru utan bóta­kerfis fái nauman líf­eyri upp á 134 dali á mán­uði.

López Obrador hefur sagst vilja sækja í átt­ina að „fransískri fátækt“ með því færa fátækum styrki og ná fram efna­hags­legri þróun, fjölgun starfa og vel­ferð. Heilagur Frans af Asísí var kaþ­ólskur dýr­lingur sem fyr­ir­leit efn­is­legan auð svo hann gæti þjónað Kristi sem fátækur maður.

Mexík­ó­for­seti gekk einnig svo langt að leggja til að Banda­ríkin ættu að taka niður Frels­is­stytt­una ef Julian Assange yrði fram­seldur og fang­els­aður í Banda­ríkj­unum. Hann hefur lagt blessun sína yfir að Assange fái hæli í Mexíkó en áður hafði Correa, fyrrum for­seti Ekvador, veitt stofn­anda Wikileaks hæli í sendi­ráði lands­ins í London.

Forseti Kólumbíu var pyntaður

Líkt og kollegi sinn í Mexíkó, var nýkjör­inn Gustavo Petro áður borg­ar­stjóri í höf­uð­borg­inni (Bogota) og náði kjöri í þriðju til­raun eftir að hafa kom­ist á kjör­seð­il­inn tvisvar áður. Í fyrri skiptin var einnig mót­mælt vegna ásak­ana um svindl.

Gustavo Petro er hag­fræð­ingur að mennt og var félagi í skæru­liða­sam­tök­unum M-19. Árið 1985 var hann hand­tek­inn og pynt­aður. Til þess að ná kjöri þann 19. Júní s.l. hætti hann að tala um skæru­liða og sós­í­al­isma en lýsti sér sem fram­sæknum fram­bjóð­anda í þágu breyt­inga.

Vara-for­seti hans er Francia Marquez, lög­fræð­ingur og umhverf­is­verndar-aktí­visti. Hún er enn fremur svört á hör­und sem þykir álíka ef ekki meiri fram­för í kól­umbísku lýð­ræði heldur en að vinstri maður hafi verið kjör­inn í fyrsta skipti í 200 ár.

Kólumbía hefur jafnan haldið sterk­ustu tengsl­unum við Banda­ríkin af öllum löndum álf­unnar en eftir að Petro var kos­inn er horft til þess hvort Joe Biden og ráð­gjafar hans blandi sér í málin í Kólumbíu og víðar.

Úr fangelsi og líklega í forsetastólinn í Brasilíu

Eftir miðja 20. öld­ina var stórum hluta Rómönsku Ameríku stjórnað af hægri sinn­uðum her­for­ingjum og ein­ræð­is­herrum sem oftar en ekki nutu stuðn­ings Banda­ríkj­anna. Þekktasta dæmið er lík­lega Síle þar sem Augusto Pinochet leyfði Milton Friedman og Chicago hag­fræð­i­strák­unum að prófa rót­tækar frjáls­lyndar efna­hags­stefnur á meðan stjórn­ar­and­staðan í land­inu var pyntuð og myrt á skipu­lagðan hátt. Salvador Allende for­seti var felldur í valdaráni og her­for­ing­inn Pinochet stjórn­aði með harðri hendi. Svipuð var upp á ten­ingnum með Videla í Argent­ínu, Bor­da­berry í Úrúgvæ, Noriega í Panama og Vargas í Brasilíu.

Eðli afskipta banda­rískra stjórn­valda í bak­garði sínum í Rómönsku Ameríku hefur nú breyst. Í stað­inn fyrir að styðja ein­ræð­is­herra með „réttar skoð­anir“ með vopnum hefur bar­áttan færst fyrir dóm­stóla þar sem öllum brögðum er beitt til að fella vin­sæla stjórn­mála­menn með „rangar skoð­anir.“

Eft­ir­tekt­ar­verð­asta dæmið er í Brasilíu þar sem tveir almennt mjög vin­sælir og vel liðnir for­setar voru hraktir frá völdum eða settir í fang­elsi vegna ásak­ana um spill­ingu. Því hefur verið haldið fram að Inácio Lula Da Silva og Dilma Rousaieff voru ein­fald­lega að reyna koma hlutum í fram­kvæmd í kerfi sem var spillt fyrir og þau ekki nógu spillt til að spila með.

Inácio Lula Da Silva þykir líklegur til að endurheimta forsetastólinn í Brasilíu.
Inácio Lula Da Silva þykir lík­legur til að end­ur­heimta for­seta­stól­inn í Brasilíu.

En nú er sá fyrr­nefndi, oft­ast kall­aður Lúla, laus eftir að hæsti­réttur Brasilíu sýkn­aði hann. Í milli­tíð­inni varð Jair Bols­anaro for­seti (Lúla var í fang­elsi og gat ekki boðið sig fram þrátt fyrir að vera vin­sælli kandídat) og gerði sak­sóknar­ann í máli Lúla að dóms­mála­ráð­herra við litla hrifn­ingu gagn­rýnenda.

Bol­son­aro var oft kall­aður litli Trump og þykir um margt álíka skraut­legur og duttl­unga­fullur og stóri Trump. Hann hefur verið gagn­rýndur fyrir að leyfa stór­aukið skóg­ar­högg í Amazon regn­skóg­inum og afleit við­brögð við Covid far­aldr­inum en hvergi annar staðar lét­ust fleiri af sökum veirunnar en í Brasilíu (600 þús) nema í Banda­ríkj­unum (yfir ein milljón). Bol­son­aro er enn við völd í Brasilíu en yfir­gnæf­andi líkur eru á að honum verði sparkað út úr for­seta­höll­inni af Lúla sjálfum. Þá verður Bleika aldan í Suður Ameríku að risa­öldu þar sem Brasilía fjöl­menn­asta land álf­unnar.

Af hverju skellur Bleika aldan skellur aftur?

Vin­sældir fram­sæk­inna vinstri-sinn­aðra leið­toga í Rómönsku Ameríku má eflaust að hluta til rekja til þeirra minn­inga sem kjós­endur hafa af víð­tæk­ari vel­ferð­ar­kerfum á tímum fyrri Bleiku öld­unnar. Sú alda fjar­aði út þegar hægri sinn­aðir leið­togar eins og Ivan Duque í Kólumbíu og Jair Bol­son­aro í Brasilíu komust til valda. Póli­tískir vindar í Rómönsku Ameríku nútím­ans eru oft keðju­verk­andi þar sem skipti frá hægri eða vinstri væng í einu landi leiðir til svip­aðrar nið­ur­stöðu í öðrum löndum.

Jair Bolsonaro er oft kallaður litli Trump.
Jair Bol­son­aro er oft kall­aður litli Trump.

Eitt stærsta vanda­málið í heims­hlut­anum er fátækt og þær hindr­anir sem liggja í vegi vinn­andi fólks í við­leitni sinni við að færa fjöl­skyldur sína upp úr lægri þrepum stétt­anna í sam­fé­lags­stig­anum. Það sem gerir vanda­málið enn sorg­legra að oft eru það frum­byggja­sam­fé­lögin sem fram­leiða fæði og klæði fyrir meiri­hluta lands­manna en þurfa samt búa við verstu örbirgð­ina.

Augljóst er að vin­sældir vinstri­s­inn­aðra fram­bjóð­enda sem boða atvinnu­sköpun og auk­inn jöfnuð á aukast við þessar aðstæður. López Obrador í Mexíkó hefur til dæmis sett skóg­rækt í for­gang ekki ein­ungis til að græða landið heldur einnig til að skapa störf við rækt­ina og afleidd tæki­færi.

Einnig er ljóst að eftir grimmd­ina sem færst hefur í stjórn­málin eftir harka­lega nálgun leið­toga eins og Trump og Bol­son­aro eru kjós­endur að leita að frið­sam­ari val­kostum og stöð­ug­leika. Margar vís­bend­ingar eru í orð­ræðu leið­toga Bleiku öld­unnar að þeir forð­ist öfgar, leiti til miðj­unnar frá vinstri og selja sig sem boð­bera sann­gjarnra breyt­inga. Nýju bleiku leið­tog­arnir eru raun­særri og ekk­ert endi­lega and-banda­rískir líkt og þeir sem til­heyrðu fyrstu kyn­slóð­inni.

Í borg Inkanna í Ekvador

Á götum Quito í 2850 metra hæð eru ber­sýni­leg­ustu merkin um fátækt og örvænt­ingu bein afleið­ing af gjörðum eins rót­tæk­asta og sýni­leg­asta bleika leið­tog­ans af fyrstu kyn­slóð­inni, Hugo Chavez, sem var við völd í Venes­ú­ela frá 1999 til 2013. Þar sem áður skott­uð­ust jakka­fata­klæddir fjár­festar og emb­ætt­is­menn á milli gler­há­hýsa byggðum úr kín­verskum bygg­ing­ar­efnum fyrir kín­verskt lánsfé (á tímum áður­nefnds Correa) hýr­ast nú venes­ú­elskar fjöl­skyldur. Þær eru á flótta frá heima­landi sínu, búa á göt­unni með unga­börn og selja smá­legt drasl eins og tyggjó og orku­drykki á fjöl­förnum gatna­mótum.

Flóttamaður, líklega frá Venesúela, hefur ofan af fyrir börnum sínum þar sem hann stundar smásölu á gatnamótu í Ekvador.
Flótta­maður, líklega frá Venesúela, hefur ofan af fyrir börnum sínum þar sem hann stundar smásölu á gatnamótu í Ekvador.

Arftaki Chavez Venes­ú­ela, Nicolas Maduro, hefur leitt glóru­lausa efna­hags­stefnu sem sökkt hefur hag­kerf­inu í djúpa efna­hag­skreppu og ekki hefur við­skipta­bann Banda­ríkj­anna hjálpað til. Talið er að 6 millj­ónir Venes­ú­ela­búar séu á flótta, flestir í nágranna­lönd­unum en lít­ill hópur hefur einnig náð til Íslands.

Við­skipta­bönn Banda­ríkj­anna á hin ýmsu lönd í bak­garði sínum hefur lítil sem engin áhrif haft á það hverjir stjórna, sér­stak­lega á Kúbu og í Venes­ú­ela. Þau hafa ein­fald­lega styrkt leið­tog­anna í sessi sem fá góða afsökun fyrir slöku efna­hags­gengi á meðan þjóðir þeirra svelta.

Nicolas Maduro hefur innleitt efnahagsstefnu sem fáir telja að mikið vit sé í. Fyrir vikið er talið að um sex milljónir íbúa Venesúela séu á flótta.
Nicolas Maduro hefur inn­leitt efna­hags­stefnu sem fáir telja að mikið vit sé í. Fyrir vikið er talið að um sex millj­ónir íbúa Venes­ú­ela séu á flótta.

Það verður því mikil áskorun fyrir Banda­ríkin að takast á við nýju Bleiku öld­ina og við­halda góðum sam­skiptum og sam­starfi. Í Ekvador er nú Guill­ermo Lasso for­seti, auð­kýf­ingur og hægri maður sem nýlega þurfti að semja við skipu­lögð sam­tök frum­byggja. Þau höfðu stöðvað sam­göngur og hag­kerfið í land­inu með mót­mælum vegna hækk­andi verð­lags. Þar mun­aði mjóu að einn af síð­ustu hægri leið­tog­unum í álf­unni þyrfti að taka poka sinn.

Við þetta bæt­ist að Kína er orð­inn virkur þátt­tak­andi í efna­hags­upp­bygg­ingu í álf­unni en í stað þess að blanda sér í stjórn­mál og grípa til við­skipta­banns þá er nálgun Kínverja efna­hags­leg og jafnan upp­byggi­leg. En spill­ingin er sjaldan langt undan.

Sem dæmi má nefna að á meðan Correa var for­seti í Ekvador voru byggðir nýtísku­legir og vel búnir flug­vellir í stærri borgum, nýr háskóli og glæsi­lega höf­uð­stöðvar UNASUR (Samband Suður Amer­íku­þjóða).

Ekvadorar í Quito bíða í röð til að sækja um störf hjá borgaryfirvöldum.
Ekvadorar í Quito bíða í röð til að sækja um störf hjá borg­ar­yf­irvöldum.

Flestir íbúar Ekvador kjósa að keyra á milli borga þegar þeir leggja í ferða­lög og margir af þessum nýju flug­völlum standa tómir. Enginn hefur útskrif­ast frá nýja glæsi­lega háskól­anum og UNASUR sam­tökin eru svo gott sem dauð og höf­uð­stöðvum þeirra hefur verið skilað. Allar þessar risa-fram­kvæmdir eru nú gagns­lausar og kalla íbúar Ekvador þetta hvíta fíla.

Stór fjár­fest­inga­verk­efni bjóða upp á tæki­færi fyrir spillta emb­ætt­is­menn til að taka hluta af fjár­fest­ing­ar­fénu undir borðið. Það er út af slíkum málum sem Rafael Correa er nú á flótta undan rétt­vís­inni og býr í Belgíu, heima­landi eig­in­konu sinnar.

Á ferð í leigu­bíl til Quito nýlega frá Tena sem er ein af þess­ari borgum með auðan flug­völl var haft á orði við bíl­stjór­ann hversu góð hrað­brautin væri. Hann sagði svo vera og að hún hefði verið lögð á tímum Rafael Correa. Hann sagði að allt hefði verið betra þegar Correa var for­seti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár