Heimsins stærsta rafhlaða fyrir heilt fylki í Ástralíu

Elon Musk lofar að smíða heims­ins stærstu raf­hlöðu áður en árið er úti og tengja það við raf­orku­kerfi heils fylkis í Ástralíu.

Elon Musk er forstjóri fyrirtækisins Tesla.
Elon Musk er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Tesla. Mynd: EPA

Banda­ríski raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla hygg­ist smíða heims­ins stærstu raf­hlöðu og tengja raf­kerfi Suður-Ástra­ílíu, heils fylkis í sam­bands­rík­inu Ástralíu.

Yfirvöld í fylk­inu und­ir­rit­uðu samn­ing við Elon Musk, for­stjóra Tesla, um þetta á föstu­dag. Frá þessu er greint á vef breska rík­is­út­varps­ins, BBC.

Raf­hlaðan á að verja íbúa og fyr­ir­tæki fyrir orku­kreppu í raf­orku­kerfi fylk­is­ins. Raf­magns­leysi hefur verið vanda­mál í Suður-Ástralíu vegna auk­inna öfga í veðri og krapp­ari storma sem ganga yfir Ástralíu.

Musk hefur lofað því að ef Tesla tekst ekki að smíða raf­hlöð­una og tengja hana raf­orku­kerf­inu á 100 dögum þá muni Suður-Ástralía fá raf­hlöð­una frítt. 100 megawatta raf­hlaða, sem annar 129 megawattstundum, ætti þess vegna að vera til­búin á þessu ári.

Stærsta raf­hlaða sem smíðuð hefur verið í dag er aðeins 30 megawött svo stökkið er stórt fyrir Tesla. „Sjálf­sagt er fólgin í þessu ein­hver áhætta, því þetta verður stærsta raf­hlöðu­teng­ing í heimi og með nokkrum mun,“ sagði Musk í Adelaide, höf­uð­borg Suður-Ástralíu, á föstu­dag.

Raf­hlaðan verður tengd vind­orku­garði og hýsir orku þaðan allan sól­ar­hring­inn. Við raf­magns­leysi eða þegar álagið á raf­orku­kerfið er meira en vana­lega mun raf­hlaðan geta staðið straum af auk­inni raf­orku­eft­ir­spurn.

Fylk­is­stjór­inn Jay Weatherill segir raf­hlöð­una eiga eftir að gjör­breyta því hvernig end­ur­nýj­an­leg orka er nýtt. „Þetta mun jafn­framt koma stöð­ug­leika á raf­orku­kerfi Suður-Ástralíu. Í fram­hald­inu mun þessi aðgerð setja þrýst­ing á lækkun mark­aðsvirðis,“ sagði Weatherill.

[adspot]

Tesla hraðar rafhlöðuþróuninni

Raf­bíla­fyr­ir­tækið Tesla hefur á und­an­förnum miss­erum hraðað þróun raf­hlaða sinna með­fram fram­leiðslu raf­bíla. Með Tesla-fyr­ir­tæk­inu er Elon Musk frum­kvöð­ull í fram­leiðslu raf­bíla og hefur sett mik­inn þrýst­ing á hinn rót­gróna bíla­markað um orku­skipti.

Einka­leyfi Tesla á upp­finn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins tengdum raf­bíl­unum hafa verið gefin frjáls. Musk viðrist þess vegna reka raf­bíla­fyr­ir­tækið Tesla af meiri hug­sjón en gróða­von.

Nýverið til­kynnti sænski bíla­fram­leið­and­inn Volvo að fyr­ir­tækið myndi hætta þróun og smíði bíla sem ein­göngu væru drifnir sprengi­hreyfli árið 2019. Allir bílar fyr­ir­tæk­is­ins verða þá að fullu eða að hluta knúnir raf­magni sem geymt er í raf­hlöðum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Volvo segir að á árunum 2019 til 2021 muni fyr­ir­tækið kynna fimm nýja raf­bíla sem verða að öllu leyti knúnir raf­magni og tryggja að allar aðrar gerðir nýrra Volvo-bíla verði búnir blend­ings­vél.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár