Reglur um kosningaauglýsingar þriðja aðila nauðsynlegar

Kosn­inga­bar­átta þriðja aðila lýtur ekki lögum og umboð eft­ir­lits­að­ila er ófull­nægj­andi, að mati ÖSE.

Áróður þeirra sem standa fyrir nafnlausum níðsíðum á samfélagsmiðlum beinist ekki einvörðungu að andstæðingum í stjórnmálum. Hann beinist líka að fjölmiðlum sem fjalla um þá stjórnmálamenn sem nafnlausu síðurnar styðja.
Áróður þeirra sem standa fyrir nafn­lausum níð­síðum á sam­fé­lags­miðlum bein­ist ekki ein­vörð­ungu að and­stæð­ingum í stjórn­málum. Hann bein­ist líka að fjöl­miðlum sem fjalla um þá stjórn­mála­menn sem nafn­lausu síð­urnar styðja. Mynd: Facebook-síðan Kosningar 2017

Reglum ætti að koma á varð­andi kosn­inga­bar­áttu af hálfu þriðja aðila á Íslandi. Þetta kemur fram í skýrslu ÖSE, Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu sem birt var í gær.

Skýrslu­höf­undar benda á að slík kosn­inga­bar­átta lúti ekki lögum og umboð eft­ir­lits­að­ila sé ófull­nægj­andi. Einnig þurfi að koma reglu á kröfur um upp­lýs­ingar um útgjöld þriðja aðila.

„Á meðan aug­lýs­ingar þriðja aðila í hefð­bundnum miðlum, eins og útvarpi, voru rekj­an­legar til sam­taka sem hægt var að stað­festa hver væru, voru aug­lýs­ingar á net­inu aðal­lega nafn­lausar,“ segir í skýrsl­unni. Þá hafi þessar aug­lýs­ingar aðal­lega verið nei­kvæðar og spjótum beint að ákveðnum flokkum eða stjórn­mála­mönnum.

[links]Kjarninn fjall­aði um falls­fréttir og upp­lýs­inga­mengum í kjöl­far kosn­ing­anna. Á sam­fé­lags­miðlum dynja fréttir á fólki og getur reynst erfitt að greina á milli hvað sé satt og hvað ekki.

Fals­fréttir eru, eins og nafnið gefur til kynna, fréttir sem ekki eru sannar. Þær stað­hæf­ingar sem haldið er fram í þeim fréttum stand­ast því enga skoðun og er rök­stuðn­ingur ýmist ekki til staðar eða ein­fald­lega rangur. Þegar fals­fréttir eru farnar á flug er erfitt að stöðva útbreiðslu þeirra. Iðulega eru aug­lýs­ingar kost­aðar af þriðja aðila í póli­tískum til­gangi.

„Upplýsingamengun“ nýtt fyrirbæri

Skýrsla sem kom út á vegum Evr­ópu­ráðs í sept­em­ber síð­ast­liðnum gefur góða mynd af svo­kall­aðri upp­lýs­inga­óreiðu þar sem farið er í saumana á sam­fé­lags­hjúpum og berg­máls­her­bergjum. Með til­komu sam­fé­lags­miðla hafa hlut­irnir breyst til muna og segir í skýrsl­unni að nú séum við að horfa upp á algjör­lega nýtt fyr­ir­bæri sem lýsi sér í flóknum vef ­þar sem menguð skila­boð eru búin til, þeim dreift og þeirra neytt. Þau eru hýst á ótelj­andi vef­þjónum og fram­leidd í feikna­miklu magni.

Í henni kemur enn fremur fram að erfitt sé að meta áhrif slíkrar „upp­lýs­inga-meng­unar“ á frétta­efni enda séu sér­fræð­ingar ein­ungis á byrj­un­ar­stigi að skilja hvernig hún virkar. Eftir for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum og Brexit-kosn­ingar í Bret­landi hefur fólk staðið á gati enda komu úrslitin mörgum gríð­ar­lega á óvart.

Skýrslu­höf­undar forð­ast að nota orðið fals­fréttir vegna þess að þeir telja það ekki ná yfir fyr­ir­bærið og segja þeir að staðan sé mun flókn­ari en svo. Einnig hafi stjórn­mála­menn um allan heim notað orðið til að lýsa fréttum sem ekki eru þeim í hag.

Tilfinningar gegna lykilhlutverki

Gjald­fell­ing orða getur einmitt haft það í för með sér að upp­runa­leg merk­ing breng­list og falskar fréttir verði til um falskar fréttir. Þess vegna er mik­il­vægt að nota orðið ekki um of og skella því á allar upp­lýs­ingar sem koma frá frétta­stofum og miðlum.

Lyk­il­at­riðið, að mati skýrslu­höf­unda, er að skilja hvernig sam­skipti virka á sam­fé­lags­miðlum. Þau séu ekki ein­fald­lega upp­lýs­inga­skipti milli tveggja aðila. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að tjá­skipti hafa lyk­il­hlut­verki að gegna þegar koma á sam­eig­in­legum skoð­unum á fram­færi. Ekki er aðeins um upp­lýs­ingar að ræða heldur drama - „fram­setn­ingu á þeim öflum sem takast á í ver­öld­inni“,“ segir í skýrsl­unni.

Áhrifa­mesta efnið er það sem spilar á til­finn­ingar fólks, þar sem ýtt er undir kenndir á borð við yfir­burða­til­finn­ingu, reiði og hræðslu. Ef slíkar til­finn­ingar eru til staðar þá deilir fólk frekar efni sín á milli og innan síns hóps. Til­finn­inga­þrungið efni dreif­ist hraðar og betur þar sem læk, deil­ingar og athuga­semdir leika stórt hlut­verk. Þetta ger­ist þrátt fyrir mót­að­gerðir til að sporna við fölskum upp­lýs­ingum.

Vinstri græn fengu slæma útreið

Fyrir síð­ustu kosn­ingar í októ­ber bar nokkuð á aug­lýs­ingum sem kalla mætti kosn­inga­á­róður en tölu­vert var fjallað um þær í íslenskum fjöl­miðlum í kjöl­farið. Sumar þess­ara aug­lýs­inga birt­ust á YouTube-mynd­böndum og var spjót­unum helst beint að Katrínu Jak­obs­dóttur og flokknum hennar Vinstri hreyf­ing­unni - grænu fram­boði. Ekki er vitað hverjir greiddu fyrir þessar aug­lýs­ingar en ljóst er að fylgj­endur hægri vængs stjórn­mál­anna eru þar að baki. Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, neit­aði að flokk­ur­inn stæði þar að baki þegar Vísir innti hann um svör.

Einnig bar á slíkum aug­lýs­ingum á Facebook þar sem kost­aðar aug­lýs­ingar birt­ust fyrir augum fólks rétt fyrir kosn­ingar. Fram kom í frétt Stund­ar­innar í byrjun nóv­em­ber að Facebook ætli ekki að leyfa slíkar aug­lýs­ingar en fyr­ir­tækið ætli þó ekki að bregð­ast við fyrir næst­kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í vor. Framundan séu aðgerðir hjá Facebook til að knýja þá sem birta stjórn­mála­tengdar aug­lýs­ingar til þess að gefa upp hverjir greiða fyrir aug­lýs­ing­arnar. Það sé reyndar lög­bundið í Banda­ríkj­unum en á Íslandi séu ekki slík lög til staðar. Hins vegar séu hér­lendis við lýði lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka sem knýja þá til að gefa upp hvaða lög­að­ilar styrkja þá beint. Þau lög nái þó ekki yfir umfangs­miklar, nafn­lausar áróð­urs­aug­lýs­ingar sem beint er gegn póli­tískum and­stæð­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár