Nígeríumenn í skýjunum og Argentínubúar vongóðir

Níger­ískir miðlar eru hæstá­nægðir með lands­liðs­mann­inn sinn Ahmed Musa og von­ar­glæta hefur kviknað hjá Argent­ínu­mönnum um að kom­ast upp úr riðl­inum í eftir tap strák­anna okkar fyrr í dag.

Ahmed Musa, leikmaður nígeríska karlalandsliðsins í fótbolta
Ahmed Musa, leik­maður níger­íska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta Mynd: EPA

Erlendir miðlar ausa lofi á Ahmed Musa, sem skor­aði bæði mörkin í 2-0 tap­leik Íslands gegn Nígeríu. Sömu­leiðis gefur tap strák­anna okkar Argent­ínu­mönnum von um að kom­ast upp úr riðl­inum, ef marka má miðl­ana þar í landi.

Íþrótta­vefur BBC hrósar Musa fyrir mörkin sín tvö og segir leik­mann­inn, sem spilar með Leicester, hafa sýnt yfir­burða­tækni í leiknum. Íslenska lands­liðið hafi hins vegar bráðnað í hit­anum í Vol­gograd og spilað verr eftir því sem á leið á leik­inn.

Mikið var í húfi fyrir Níger­íu­menn í leiknum, en með úrslit­unum komu þeir sér úr síð­asta sæti rið­ils­ins og upp í annað sæti. Því er ekki að undra að Níger­íu­búar séu einnig jákvæðir, en þar er lands­lið þeirra, sem kall­aðir eru Ofurern­irnir, hrósað mjög fyrir frammi­stöðu sína fyrr í dag, meðal ann­ars af for­seta lands­ins. Margir virð­ast hafa sér­stak­lega mikla trú á Musa, jafn­vel það mikla að níger­ískur stuðn­ings­maður hefur spáð því að leik­mað­ur­inn sjálfur verði for­seti Nígeríu innan árs.

Argent­ínskir miðlar eru einnig sáttir með úrslit tap­leiks­ins, en íþrótta­vef­ur­inn Olé sagði Níger­íu­menn gefa Argent­ínu von­ar­glætu með því að sigra Ísland. Líkt og BBC segir Olé hit­ann hafa verið aðal­or­sök slæmrar frammi­stöðu Íslend­inga, en hann náði upp í 32 gráður á vell­inum í dag.

Ljóst er að næstu leikir Íslands og Argent­ínu munu skipta sköpum fyrir úrslit rið­ils­ins á heims­meist­ara­mót­inu. Til þess að Argent­ínu­menn eigi mögu­leika á að kom­ast í útslátt­ar­keppni móts­ins þurfa þeir að sigra Nígeríu og bæta marka­tölu sína um 2 umfram Ísland. Samkvæmt fót­bolta­sér­fræð­ingum ESPN er ekki lík­legt að það ger­ist, lít­ill andi virð­ist vera í lið­inu sem og hjá stuðn­ings­mönnum þeirra. 

Íslenska lands­liðið hefur einnig á bratt­ann að sækja, en þeir þyrftu að vinna gegn Króa­tíu­mönnum og gætu þá unnið á marka­tölu gegn Argent­ínu. ESPN segir Ísland hafa yfir­hönd­ina sem stendur, en margt gæti gerst á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið undanfarið ár