Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
Ríkissjóður situr uppi með yfir 500 milljóna króna reikning eftir að Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, hækkaði lífeyrisréttindi útvalinna undirmanna sinna um helming, án þess að hafa til þess heimild. Þetta er niðurstaða meirihluta Hæstaréttar sem kallar verk Haraldar „örlætisgjörning“. Stór hluti þessara undirmanna Haraldar skrifaði undir opinbera stuðningsyfirlýsingu við hann stuttu síðar. Samningarnir standa samt því undirmennirnir vissu ekki betur en að Haraldur mætti gera þá. Ummæli tveggja ráðherra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þriðjudaginn 9. apríl síðastliðinn sendi Kjara- og mannauðssýsla ríkisins, sem starfar í fjármálaráðuneytinu, tölvupóst til ráðuneytisstjóra allra 12 ráðuneyta stjórnarráðsins og forstöðumanna allra ríkisstofnana. Yfirskrift hans var: „Tilmæli vegna dóma Hæstaréttar Íslands.“
Lokaorðin í þessu erindi fjármálaráðuneytisins voru:
„Að lokum vill Kjara- og mannauðssýsla ríkisins leggja áherslu á að ráðuneytin sinni yfirstjórnunar- og eftirlitsskyldum sínum til að koma í veg fyrir örlætisgjörninga af þessum toga.“
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Ótrúlegt að embættismaður í lýðræðisríki geti skuldbundið samfélagið án samþykkis samfélagsins! Hverjum á að treysta ef ekki er farið eftir Hæstarétti? Getur verið að stjórnendum samfélagsins sé endanlega rúin öllu trausti?
Það eru engin takmörk fyrir spillingu innan Sjálfstæðisflokksins. Þetta vita allir hinir flokkarnir en passa sig á að ganga ekki of langt í að koma upp um þá. Pólitíkusar eru flestir hverjir sjálfhverfir eiginhagsmunapotarar og það er að kosta komandi kynslóðir öll bjargráð.
VIÐ ÞURFUM að sópa þessu liði í burtu frá kjötkötlunum, VIÐ VERÐUM að gildistaka nýjju stjórnarkrána ósnikkaða efnislega af misvitrum og óheiðarlegum stjórnmálamönnum.
VIÐ VERÐUM,
Svo langar mig að vita hvort þessi Haraldur Jóhannesen verði látinn bera einhverja ábyrgð?
Mér er sagt að ég sé að skapa mér óvild margra. Það er sárt, en ég læt mig hafa það. Ég er engu að ljúga og á engra hagsmuna að gæta.
13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Hverjum á að treysta ef ekki er farið eftir Hæstarétti?
Getur verið að stjórnendum samfélagsins sé endanlega rúin öllu trausti?
VIÐ ÞURFUM að sópa þessu liði í burtu frá kjötkötlunum, VIÐ VERÐUM að gildistaka nýjju stjórnarkrána ósnikkaða efnislega af misvitrum og óheiðarlegum stjórnmálamönnum.
VIÐ VERÐUM,
Svo langar mig að vita hvort þessi Haraldur Jóhannesen verði látinn bera einhverja ábyrgð?
Mér er sagt að ég sé að skapa mér óvild margra. Það er sárt, en ég læt mig hafa það. Ég er engu að ljúga og á engra hagsmuna að gæta.