Rússar segja ISIS-leiðtoga vera fallinn

Abu Bakr al-Baghdadi féll í loft­árás rúss­neska hers­ins á leið­toga­fund ISIS í lok maí, að sögn rúss­neskra stjórn­valda.

Bandaríski herinn taldi sig hafa drepið Baghdadi árið 2014 í loftárás á bílalest í Mosúl. Að ofan má sjá prófíl breska dagblaðsins The Guardian frá árinu 2014.
Banda­ríski her­inn taldi sig hafa drepið Baghdadi árið 2014 í loft­árás á bíla­lest í Mosúl. Að ofan má sjá prófíl breska dag­blaðs­ins The Guardian frá árinu 2014.

Varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands segir ISIS-leið­tog­ann Abu Bakr al-Baghdadi hafa fallið í loft­árás rúss­neska hers­ins á sýr­lensku borg­ina Raqqa í maí.

Loft­árás­irnar voru gerðar á valin skot­mörk í Raqqa eftir að rúss­nesk yfir­völd fengu upp­lýs­ingar um leið­toga­fund ISIS.

Varn­ar­mála­ráðu­neytið til­kynnti þetta á Facebook-síðu sinni í morgun. Frétta­stofa Reuters greinir frá.

„Hinn 28. maí, eftir að drónar voru not­aðir til þess að stað­festa upp­lýs­ingar um stað og stund fundar milli leið­toga ISIS, milli kl. 00:35 og 00:45, réð­ust rúss­neskar flug­her­sveitir á skot­mark þar sem leið­tog­arnir voru stað­settir,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

„Samkvæmt upp­lýs­ing­unum, sem er nú verið að sann­reyna, var Abu Bakr al-Baghdadi á fundi ISIS-leið­tog­anna. Hann var tek­inn úr umferð í árásinni,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni. Rússar segja fleiri leið­toga hafa fallið í árásinni, auk 30 liðs­for­ingja og allt að 300 varð­manna Íslamska rík­is­ins.

[links]Rami Abdulra­hman, stjórn­andi sýr­lenskrar eft­ir­lits­stofn­unar með mann­rétt­indum, seg­ist ekki sann­færður um að fregn­irnar af dauða Baghdadi séu réttar. Abdulra­hman segir sínar upp­lýs­ingar hafa bent til þess að Baghdadi hafi verið ann­ars staðar í Sýrlandi í lok maí.

Abu Bakr al-Baghdadi er 46 ára gam­all Íraki. Hann klauf sig frá hryðju­verka­sam­tök­unum al-Qaeda árið 2013, tveimur árum eftir að Osama bin Laden var tekin höndum og drep­inn af banda­rískum her­sveitum. Síðastu mynd­bands­upp­tök­urnar af Baghdadi eru síðan 2014 og sýna þær hann lýsa yfir stofnun kalífats úr predik­un­ar­stól í Grand al-Nuri mosk­unnar í Mosúl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár