Flokkur

Útivist

Viðtal

Hjól­reiðar eru hið nýja golf

„Það er hægt að gera svo miklu meira í hjól­reiðum en bara að fara út að hjóla. Hjól­reiðar geta orðið þín æfing, lífsstíll, og opnað á ótrúleg ævintýri. Ný leið til þess að kanna heiminn,“ segir Björk Kristjáns­dóttir hjólreiða­kona. Það sér vart fyrir endann á vinsældum hjólreiða á Íslandi og er hjólreiða­menningin á Íslandi í stöðugri og jákvæðri þróun þar sem samspil hjólreiða­manna og annarra í umferðinni fer sífellt batnandi. Þetta er jákvæð þróun þar sem hjól­reiðar eru vistvænn ferðamáti, einnig þar sem þær stuðla að heil­brigðum lífsstíl og útivist.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár