Flokkur

Umhverfið

Fréttir

End­ur­nýja vatns­lagnir í skól­anum til öryggis eftir að blý mæld­ist í vatn­inu

Reykja­nes­bær hefur ákveðið að flýta end­ur­nýjun á vatns­lögnum í Háa­leit­is­skóla á Ásbrú, þar sem Stundin mældi blý­mengun í drykkj­ar­vatni í síð­asta mán­uði. Bæj­ar­stjór­inn og skóla­stjór­inn segja aðgerð­irnar ekki tengj­ast umfjöll­unar Stund­ar­innar. „Þær fram­kvæmdir voru ein­ungis færðar framar í röð­inni til að slá á alla varnagla,“ segir bæj­ar­stjór­inn.
Fréttir

Vara við „veru­lega nei­kvæðum“ umhverf­is­á­hrifum af Svart­ár­virkjun við jaðar hálend­is­ins

„Mikil nátt­úru­verð­mæti raskast veru­lega“, segir í mati Skipu­lags­stofn­unar á fyr­ir­hug­aðri Svart­ár­virkjun á mörkum Bárð­ar­dals og hálend­is­ins fyrir norðan. Stofn­unin varar við röskun á „einum líf­rík­ustu og vatns­mestu lindám lands­ins“ og sér­stæðu lands­lagi með upp­lif­un­ar­gildi. Samkvæmt lögum hefði ekki þurft að gera umhverf­is­mat. Stofn­unin segir mats­skýrslu fram­kvæmda­að­il­anna skorta trú­verð­ug­leika.
Fréttir

„Umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ dreifði plast­drasli um nátt­úr­una

1.500 rúmmetrar af moltu sem fyr­ir­tækið Terra dreifði til upp­græðslu í Krýsuvík voru allir plast­meng­aðir. Plast og rusl mátti sjá vítt og breitt um svæðið. Samtök atvinnu­lífs­ins útnefndu Terra „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ fyrr í mán­uð­inum. Arn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, seg­ist taka málið mjög nærri sér.

Mest lesið undanfarið ár