Flokkur

Samfélag

Fréttir

Hrökkl­að­ist frá völdum eftir „besta díl Íslands­sög­unnar“

„Við fengum áfall,“ sagði Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þá borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eftir fund þar sem lág­marks­upp­lýs­ingar í mál­efnum REI voru loks veittar. Það var ekki endi­lega efni máls­ins, sem fór þvert í kokið á sjálf­stæð­is­mönnum enda var kynn­ingin svo snaut­leg að erfitt var að leggja mat á gjörn­ing­inn. Það var miklu fremur aðdrag­and­inn, leyndin, skortur á upp­lýs­inga­gjöf og ótrú­legur hraði í máls­með­ferð sem þeim gramd­ist veru­lega. Ekki leið á löngu þar til borg­ar­stjór­inn hrökkl­að­ist frá völdum, rúinn trausti vegna máls­ins.

12 mín. lestur

FréttirUppreist æru

Brynjar þekkti með­mæl­anda Roberts Downey þegar hann stýrði fundi um málið

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, teng­ist með­mæl­anda Roberts Downey, en hann skip­aði sama fót­boltalið og Halldór Ein­ars­son auk þess sem þeir unnu saman. Meiri­hluti nefnd­ar­innar gekk út af fundi um máls­með­ferð­ina án þess að kynna sér gögn sem lögð voru fram á fund­inum, meðal ann­ars um með­mæl­endur Roberts. Í lok fund­ar­ins lýsti for­maður Pírata yfir van­trausti á Brynjar.
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar Bjarni ætl­aði að hafa lífs­ham­ingj­una að leið­ar­ljósi

„Hvernig for­sæt­is­ráð­herra yrði ég?“ spurði Bjarni Bene­dikts­son fyrir kosn­ingar, sá sem hlust­aði á hjarta þjóð­ar­innar og hefði það að leið­ar­ljósi að auka lífs­ham­ingju fólks. Samt er heil­brigð­is­kerfið fjársvelt, pen­inga skortir í úrræði sem eiga að grípa ungt fólk og and­legri heilsu þess hrakar.
Fréttir

Bak­þankar Frétta­blaðs­ins sagðir „móðgun við þolendur heim­il­is­of­beldis“

„Af hverju fær áfengi mann til að ganga í skrokk á eig­in­konu sinni?“ spyr bak­þanka­höf­undur Frétta­blaðs­ins, Lára G. Sig­urð­ar­dóttir, í pistli um skað­leg áhrif áfengis. Pistill­inn hefur verið gagn­rýndur fyrir að aflétta ábyrgð­inni af ofbeld­is­mönnum. „Það eru ofbeld­is­menn beita ofbeldi og engu utan­að­kom­andi er nokk­urn­tím­ann þar um að kenna,“ segir María Lilja Þrast­ar­dóttir.
Viðtal

„Áfallið situr í lík­am­anum“

Alvar­legar and­legar, félags­legar og lík­am­legar afleið­ingar hljót­ast af kyn­ferð­is­of­beldi í æsku. Konur beina sárs­auk­anum inn á við og verða lík­am­lega veikar, jafn­vel öryrkjar, á meðan karlar beina honum út sem brýst út með and­fé­lags­legri hegðun og jafn­vel afbrotum. Dr. Sigrún Sig­urð­ar­dóttir kallar á eftir þver­fag­legu þjóð­ar­átaki gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Mest lesið undanfarið ár