Fréttamál

Reykjaneseldar

Fréttir

Almanna­varnir sveit­ar­fé­lag­anna í ólestri

Mikill meiri­hluti sveit­ar­fé­laga hefur ekki fram­kvæmt eða skilað grein­ingu á áhættu og áfalla­þoli til Almanna­varna. Meðal þeirra eru Grinda­vík og Suð­ur­nesja­bær á Reykja­nesskaga og fjöl­menn sveit­ar­fé­lög eins og Kópa­vogs­bær. Þær grein­ingar sem hafa verið gerðar mála upp mynd af víð­tækum van­bún­aði og van­getu til að kljást við áföll, á tímum nýrra áskor­ana eins og Reykja­nes­elda.

10 mín. lestur

Fréttir

Með vatns­birgðir til að ráða við einn „venju­legan hús­bruna“

Vegna laskaðra inn­viða eru aðstæður í Grinda­vík til slökkvi­starfa ekki þær ákjós­an­leg­ustu. Slökkvi­lið Grinda­víkur býr yfir vatns­birgðum fyrir fyrsta við­bragð ef upp kæmi elds­voði en þyrfti að sækja vatn í sjó eða til Svarts­engis ef þær duga ekki til. „Nei, nei, nei,“ svarar slökkvi­liðs­stjór­inn, spurður hvort hann ætli að gista í bænum.
Viðtal

„Mjög gott að eng­inn búi eða vinni í Grinda­vík“

Teymi undir for­ystu Gregory Paul De Pascal, dokt­ors í jarð­skorpu­hreyf­ingum og eins fremsta vís­inda­manns á sínu sviði í heim­inum, vakti athygli yfir­valda á því að sprungur í Grinda­vík væru á hreyf­ingu, hegðun þeirra allra og stað­setn­ing óþekkt og að hætt­urnar gætu verið lúm­skar. Fyrsta sprungan sem upp­götv­að­ist eftir myndun sigdals­ins í nóv­em­ber var fyrst í síð­ustu viku sett inn á hættu­mat­skort Veð­ur­stof­unnar eftir ein­dregin til­mæli Gregorys þar um.

8 mín. lestur

Fréttir

Gestum Bláa lóns­ins beint um veg á sprungu­svæði

Sprungur vestan Grinda­víkur hafa loks verið birtar á upp­færðu hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar. Um þetta svæði liggur nú hjá­leið gesta í Bláa lónið. En svæðið fær engan lita­kóða á kort­inu til að und­ir­strika hvaða hættur þar sé að finna. Fyllt var upp í stórar sprungur á Nesvegi um miðjan nóv­em­ber, veg­inn sem ferða­mönnum, jafn­vel í stórum rútum, er nú beint um.

Mest lesið undanfarið ár