Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Undarleg ákvörðun kjara­ráðs

Kjararáð, sem skipað er Jónasi Þór Guð­munds­syni, Svan­hildi Kaaber og Huldu Árna­dóttur, ákvað 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn að hækka laun banka­stjóra Lands­bank­ans, Stein­þórs Páls­sonar, langt umfram þær hækk­anir sem aðrar stéttir í land­inu hafa fengið fram í kjara­samn­ingum að und­an­förnu. Hækkunin er um 20 pró­sent í einu skrefi, en frá því um mitt ár í fyrra hafa launin hækkað um 36...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Samvinna við fær­ustu sér­fræð­inga skilar árangri

Páll Magn­ús­son fjöl­miðla­maður, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri og blaða­maður til ára­tuga, fór mik­inn á dög­unum, í við­tali á Bylgj­unni í þætt­inum Sprengisandi. Þar sagði hann fólk á þingi vera upp til hópa van­hæft og „lélegt“. Sagði hann meðal ann­ars að svo virt­ist sem stjórn­mála­flokkum væri ekki að takast að laða að sér hæfi­leik­a­ríkt fólk. Nú skal ekk­ert lagt mat á þetta hjá...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Það er betra seint en aldrei - Lærdómur sög­unnar

Góðir hlutir ger­ast hægt, er stundum sagt. Ekki er hægt að segja annað en að það eigi við um sam­komu­lagið sem Japan og Suður-Kórea hafa gert, vegna óhuggu­legra glæpa gegn konum frá Suður-Kóreu og fleiri ríkjum, þegar um 200 þús­und konur voru neyddar í kyn­lífs­þrælkun. Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, hefur nú form­lega beðist afsök­unar á þessum hrika­legu atburðum en tug­þús­undir...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hús­næð­is­málin gætu aftur átt sviðið

Að und­an­förnu hafa ítrekað komið fram grein­ingar og spár sem benda til þess að fast­eigna­verð muni hækka nokkuð skarpt, á næstu miss­erum. Á næstu þremur árum mun hækk­unin verða um 30 pró­sent að nafn­virði, sam­kvæmt spá grein­ing­ar­deildar Arion banka. Nokkurt ójafn­vægi virð­ist vera á mark­aðnum, þar sem íbúða­fjár­fest­ing hefur dreg­ist saman að und­an­förnu, þrátt fyrir að eft­ir­spurn sé vax­andi, einkum...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Lands­menn eiga betra skilið

Þó Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, hafi fagnað því að fá 1.250 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag á fjár­lögum fyrir næsta ár, þá er margt ennþá ekki eins og það á að vera á spít­al­anum, sam­kvæmt hans eigin orðum. Það vantar fjár­magn og líka fleiri starfs­menn. Það er sár vöntun á hjúkr­un­ar­fræð­ingum, en vilji er til þess að ráða um 100 hjúkr­un­ar­fræð­inga á...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Að semja sig frá rétt­vís­inni

Upp­gjörið við hið ein­staka íslenska banka­hrun, þar sem stærstur hluti banka­kerfis þjóð­ar­innar féll eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, er nú rekið í mörgum málum fyrir dóm­stólum. Hæsti­réttur hefur sak­fellt í sex stórum hrun­málum af þeim sjö sem inn á borð hans hafa komið, en sýknað var í hinu svo­kall­aða Vafn­ings­máli. Þungir dómar hafa fallið, enda upp­hæð­irnar...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Vigdís Hauks­dóttir fór fram með rangar tölur um öryrkja

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, lét hafa eftir sér þau ummæli á dög­unum, að nauð­syn­legt væri að kafa ofan í það, hvers vegna hér á landi væru muni fleiri öryrkjar en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Vigdís sagði að öryrkjar hér á landi væru um 9 pró­sent af vinnu­bæru fólki en á hinum Norð­ur­lönd­unum væru hlut­föllin 2,2 til 2,3 pró­sent....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Sér­hags­munir alþjóða­fyr­ir­tækja og almanna­hags­munir

Samtök iðn­að­ar­ins birtu á vef sam­tak­anna, 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn, umfjöllun þar sem fjallað er sér­stak­lega um mik­il­vægi þess að treysta starf­semi sem fellur undir stór­iðju­hug­takið marg­um­rædda. Viðbragð við samn­inga­við­ræðum Greini­legt er á þessum texta sem birt­ist á vefnum, að Samtök iðn­að­ar­ins eru að bregð­ast umræðu sem nú er í gangi, vegna samn­inga­við­ræðna sem Lands­virkjun stendur í gagn­vart Century Aluminum, móð­ur­fé­lagi...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Launa­kostn­aður sveit­ar­fé­laga hækkar um 20 millj­arða - Veðjað á stór­auknar tekjur

Fyrir liggur að næsta ár verður krefj­andi í rekstri sveit­ar­fé­laga á Íslandi. Hækkun launa mun þyngja grunn­rekst­ur­inn veru­lega, hjá bæði litlum og stórum sveit­ar­fé­lögum. Til að setja hækk­an­irnar í sam­hengi, þá áætlar Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga að launa­kostn­aður muni hækka um 21 millj­arð króna milli ára. Aftur á móti er gert ráð fyrir að auk­inn hag­vöxtur og umsvif í atvinnu­lífi muni...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Van­virð­ing rík­is­stjórn­ar­innar - Hunsar fagráðu­neytið og stofnar til ill­deilna að óþörfum

Allt stefnir í RÚV muni ekki fá jafn mikið fé á næsta ári, eins og Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur talað fyrir. Útvarps­gjaldið mun lækka í 16.400 krónur, í stað þess að vera 17.800 krónur. Þetta þýðir mörg hund­ruð millj­óna króna nið­ur­skurð hjá RÚV, sem mun bitna ekki síst á íslensku menn­ing­ar­efni. Margt hefur verið skrifað um mik­il­vægi RÚV...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Gaman að finna fyrir jákvæðum straumum frá Suð­ur­nesjum

Reykja­nes­bær hefur gengið í gegnum mikla erf­ið­leika á und­an­förnum árum og má í raun rekja erf­ið­leika til þess, þegar her­inn fór með skömmum fyr­ir­vara árið 2006. Þá var stoð­unum kippt undan atvinnu hjá mörgum í bænum og raunar á Suð­ur­nesjum öllum. Efna­hags­hrunið 2008 kom einnig illa niður á Reykja­nesbæ og raunar Suð­ur­nesjum öllum. Þó ekki sjái enn fyrir end­ann á...

Mest lesið undanfarið ár