Flokkur

Pæling dagsins

Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Góð skila­boð Obama eiga erindi við alla

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, hélt sína síð­ustu stefnu­ræðu í fyrra­kvöld og eyddi miklu púðri í að gera grein fyrir sjón­ar­miðum sínum er tengj­ast inn­flytj­enda­málum. Hann sagði að Banda­ríkin væru inn­flytj­enda­þjóð, og virð­ing fyrir inn­flytj­endum væri Banda­ríkja­mönnum í blóð borin. Grund­vall­ar­at­riði væri að bera virð­ingu fyrir fólki óháð lit­ar­hætti, trú eða stöðu í sam­fé­lag­inu. Hug­myndir um annað, eins og að loka...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Höfð­ing­leg gjöf von­andi upp­haf þjóð­ar­átaks

Það var gaman að sjá myndir frá því í gær þegar fyrsta skóflustungan var tekin vegna bygg­ingar yfir jáeindaskanna, sem Íslensk erfða­grein­ing gaf Land­spít­al­anum. Gjöfin er upp á um 840 millj­ónir króna og tóku Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar og Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, fyrstu skóflustung­una. Kári á heiður skil­inn fyrir að beita sér fyrir þess­ari höfð­ing­legu gjöf, sem nýt­ist...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Hvað með nið­ur­fell­ing­una á ábyrgðum skulda banka­manna?

Á það var minnst ekki alls fyrir löngu, á þessum vett­vangi, nokkuð væri enn í það að upp­gjör­inu við hið for­dæma­laus hrun íslenska banka­kerf­is­ins, dag­ana 7. til 9. októ­ber 2008, lyki fyrir dóm­stólum. Um 28 mál eru enn til rann­sóknar, og fjöldi mála er nú þegar á borði dóm­stóla, ýmist í hér­aði eða í Hæsta­rétti. Dómarnir sem fallið hafa til...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Skipu­lags­málin gætu verið póli­tískt vopn Sig­mundar Davíðs - Færist fylgið upp?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra kom inn á hið póli­tíska svið, með umfjöllun um skipu­lags­mál, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem margir tengdu við og voru honum sam­mála um. Hann taldi skipu­lags­mál á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í miklum ólestri. Síðan þá hafa skipu­lags­mál oft verið honum mikið hjart­ans mál. Að und­an­förnu hefur hann gagn­rýnt ýmis mál er snúa að upp­bygg­ingu í Reykja­vík, og nú síð­ast...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Miklar sam­fé­lags­legar áskor­anir framundan á Íslandi

Ísland á eftir að breyt­ast mikið á næstu árum, og umbreyt­ast til­tölu­lega hratt í alþjóð­legt sam­fé­lag þar sem inn­flytj­endur verða um fimmt­ungur þjóð­ar­innar. Fyr­ir­sjá­an­legt er að um tvö til þrjú þús­und útlend­ingar þurfi að koma til Íslands á ári til að vinna, vegna þess að skortur er á vinnu­afli. Þetta kom fram í máli fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins í gær, Þor­steins...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Slæm þróun í Póllandi - Pólitísk rit­skoðun lög­fest

Pólland er mikil vina­þjóð Íslands en tæp­lega tíu þús­und Pól­verjar eru búsettir hér á landi. Skemmst er að minn­ast þess þegar Pól­verjar réttu Íslend­ingum hjálp­ar­hönd í neyð, með lán­veit­ingu þegar fjár­mála­kerfið hrundi. Margar aðrar þjóðir lok­uðu þá á Ísland. Í gær bár­ust ískyggi­legar fréttir frá Póllandi þar sem stjórn­völd þar í landi lög­festu póli­tíska rit­skoðun á rík­is­út­varpi og rík­is­sjón­varpi lands­ins....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Innkoma Netflix fagn­að­ar­efni fyrir neyt­endur

Það er fagn­að­ar­efni þegar sam­keppni eykst neyt­endum til hags­bóta. Netflix tók enn eitt risa­skrefið í gær í sinni þjón­ustu og opn­aði sjón­varps­efn­isveitu sína á 130 nýjum mark­aðs­svæðum, þar á meðal á Íslandi. Áskrift­ar­leið­irnar sem í boði eru kosta á bil­inu eitt þús­und til 1.700 krónur á mán­uði, sem telst mjög ódýrt á íslenskan mæli­kvarða, og vafa­lítið margir sem fagna þess­ari...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Að iðr­ast gjörða sinna

Á vef mbl.is var á dög­unum greint frá því, að 28 hrun­mál væru enn til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, nú rúm­lega sjö árum eftir fall bank­anna. Töluvert er í að öll kurl verði komin til grafar í þessu upp­gjöri við hrunið fyrir dóm­stól­unum, en allir for­stjórar föllnu bank­anna þriggja, Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings, hafa nú fengið fang­els­is­dóma fyrir lög­brot....
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Taktu þátt í umræð­unni! - Því fleiri sem leggja gott til því betra

Á und­an­förnum árum hafa áhrif upp­lýs­inga­bylt­ingar, sem sam­fé­lags­miðlar hafa leitt fram, orðið æ meiri og breytt sam­skiptum fólks. Áhrifin í litlu sam­fé­lagi eins og Íslandi eru jafn­vel enn dýpri enn í stærri sam­fé­lögum. Sam­fé­lags­miðl­arnir hafa leitt alla fram á sviðið sem vilja taka þátt í opin­berum umræðum, og gert þær líf­legri fyrir vikið. Þó mörg dæmi séu um harðar umræður...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Rús­sí­ban­areið fyrir fram­bjóð­endur og þjóð­ina

For­seta­kosn­ing­arnar sem eru framundan, eru um margt óvenju­legar, eins og Björg Thoraren­sen, laga­pró­fessor, benti á í við­tali við RÚV. Því miður, sé horft á málin úr frá lýð­ræð­is­legu sjón­ar­horni, þá liggur ekk­ert fyrir um það að nýr for­seti verði kjör­inn með meiri­hluta atkvæða á bak við sig, eða yfir höfuð afger­andi stuðn­ingi. Annað sem hlýtur að valda þeim, sem hafa...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Ten­ing­unum hefur verið kastað

Það eru mikil tíð­indi að Ólafur Ragnar Grímsson ætli sér ekki bjóða sig fram til áfram­hald­andi starfa sem for­seti Íslands, en kosið verður 25. júní næst­kom­andi. Nú tekur við stutt en skörp kosn­inga­bar­átta. Í ljósi þess hvernig for­seta­emb­ættið er nú, eftir að Ólafur Ragnar virkj­aði mál­skots­rétt­inn í 26. grein stjórn­ar­skrár­innar, þá má gera ráð fyrir að stjórn­mála­flokk­arnir reyni að koma...

Mest lesið undanfarið ár