Aðili

Nanna Rögnvaldar

Menning

Ævintýrið um íslenska matar(ó)menningu

Í nýrri bók um íslenskar matar­hefðir er íslensk matar­menning síðustu alda og fram í samtímann greind með margs konar hætti. Sú mikla fábreytni sem einkenndi íslenska matar­menningu öldum saman er dregin fram í dags­ljósið. Í bókinni er sýnt fram á að það er eiginlega ekki fyrr en á allra síðustu áratugum sem hráefnis- og fæðu­framboð á Íslandi fer að líkjast því sem tíðkast í öðrum stærri og minna einangruðum löndum.

9 mín. lestur

Uppskrift

Síðasta máltíðin yrði konfekt og púrtvín

Matar­gúrúinn Nanna Rögnvaldar­dóttir var að senda frá sér nýja matreiðslubók – þá tuttugustu, segir hún – þar sem áherslan er á eldun í steypujárns­pottum og pönnum. Bókin ber hið viðeigandi nafn Pottur, panna og Nanna, en hún segir þó lítið mál að elda alla réttina í öðruvísi ílátum. Hún segist leggja meiri áherslu á að matur sé góður en að hann samræmist nýjustu hollustu­trendum, enda sé það misjafnt frá ári til árs hvað teljist hollt. Og ef hún ætti að velja sér síðustu máltíðina í lífinu myndi hún alveg sleppa allri elda­mennsku og biðja um kassa af belgísku konfekti og lögg af púrtvíni með.

8 mín. lestur

Uppskrift

Mikil­vægasta máltíðin?

Morgunverður getur verið svo margt. Fyrir suma er það heil máltíð, stór og hita­einingarík – svo sem eins og enskur morgun­verður: egg, beikon, steiktar pylsur og tómatar, bakaðar baunir, brauð og fleira. ​Fyrir aðra er það morgun­korn, sykrað eða ósykrað, mjólk, brauð og ostur, ávaxta­safi og fleira. Fyrir enn aðra er það orkustöng eða hafra­stykki, ávaxta­safi eða þeytingur. Og fyrir marga er það kaffi­­bolli eða alls ekki neitt.

Mest lesið undanfarið ár