Flokkur

Lögreglumál

FréttirHvarf Friðriks Kristjánssonar

Sverrir Þór finnst ekki í fang­elsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunn­ars­son, Sveddi tönn, sem í nóv­em­ber árið 2012 var dæmdur í 22 ára fang­elsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þús­und e-töflum og er tal­inn einn af höf­uð­paur­unum í alþjóð­legum smygl­hring, virð­ist vera horf­inn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er sam­starfs­maður Sverris og tal­inn hafa mik­il­vægar upp­lýs­ingar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar, Guð­mundur Spar­takus Ómarsson, fór af landi brott á dög­unum.
RannsóknHvarf Friðriks Kristjánssonar

Farvegur fíkni­efn­anna end­aði með hryll­ingi

Friðrik Krist­jáns­son, vin­sæll og efni­legur ungur maður úr Garðabæ, hvarf spor­laust í Paragvæ eftir að hafa ánetj­ast fíkni­efnum. Íslend­ingur, sem búsettur var í Amster­dam, greindi lög­reglu frá því að hann hefði séð ónefndan Íslend­ing halda á afskornu höfði hans í sam­tali á Skype og hrósa sér af því að hafa myrt hann. Lög­reglan í Reykja­vík hefur nú hand­tekið og yfir­heyrt einn mann vegna máls­ins.

38 mín. lestur

Fréttir

Alda Hrönn með stöðu sak­born­ings

Alda Hrönn Jóhanns­dóttir, aðal­lög­fræð­ingur hjá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur stöðu sak­born­ings í rann­sókn setts hér­aðs­sak­sókn­ara. Þetta kemur fram á vef RÚV, og er stað­fest af Lúðvíki Berg­vins­syni, settum sak­sókn­ara. Alda Hrönn er sökuð um að hafa mis­beitt lög­reglu­valdi við rann­sókn á LÖKE-mál­inu, en tveir sak­born­ingar í mál­inu kærðu hana fyrir rangar sak­ar­giftir og brot í starfi í apríl. Við rann­sókn...

Mest lesið undanfarið ár