Fréttamál

Laxeldi

Fréttir

Arctic Fish segir að faraldur laxalúsar hafi leitt til slysa­sleppingar hjá fyrir­tækinu

Nýjar skýringar en áður hafa komið fram á slysa­sleppingunni hjá laxeldis­fyrirtækinu Arctic Fish er að finna í ársreikningi þess fyrir síðasta ár. Þar segir að lúsa­faraldur hjá fyrir­tækinu hafi leitt til þess að eldis­laxar sluppu úr sjókví fyrir­tækisins. Forstjóri fyrir­tækisins, Stein Ove-Tveiten segir að laxalúsin sé ekki bein ástæða fyrir slysa­sleppingunni heldur undir­liggjandi ástæða.
Fréttir

Fiskistofu­stjóri Noregs segir tölur um slysa­sleppingar í laxeldi oft vera misvísandi

Forstjóri fiski­stof­unnar í Noregi, Frank Bakke-Jensen, segir að mörg dæmi séu um að upplýsingar um fjölda eldislaxa í sjókvíum standist ekki skoðun þegar á reynir. Þess vegna sé oft og tíðum ekkert að marka tölur um slysa­sleppingar úr sjókvíum. Dæmi eru um það á Íslandi að uppgefnar tölu um fjölda eldislaxa í sjókvíum standist ekki þegar fjöldi þeirra er kannaður.
Skýring

Heims­þekktur maður með ævintýra­lega fortíð beitir sér gegn laxeldi á Íslandi

Einn af þekktari umhverfis­verndar­sinnum heims í dag er stofnandi útivistar­merkisins Patagonia, Yvon Chouinard. Hann hefur átt ævintýra­lega ævi og farið frá því að eiga nánast ekkert og þurfa að borða kattamat og brodd­gelti yfir í að eiga arðbært fatamerki sem er þekkt um allan heim. Einn af föstunum í lífi hans er flugu­veiði og umhverfis­vernd. Hann og Patagonia hafa látið til sín taka í umræðu um sjókvíaeldi.

Mest lesið undanfarið ár