Svæði

Ísland

Flækjusagan

Íslenskur „njósnari nasista“ leysir frá skjóðunni

Illugi Jökulsson segir frá frásögn Jens Pálssonar loftskeyta­manns sem dæmdur var fyrir landráð árið 1947 eftir að hafa orðið uppvís að því að hafa fallist á að njósna fyrir Þjóðverja í síðari heims­styrjöldinni. Jens ætlaði aldrei að gerast njósnari í raun og veru en þurfti að sitja í herfangelsi í Bretlandi í þrjú ár vegna málsins. Hann neitaði alla ævi að tjá sig um málið, en festi síðar á ævinni á blað frásögn sína sem Illugi mun lesa hluta úr í þættinum Frjálsar hendur í kvöld.
Úttekt

Fall íslenskra fjölmiðla og hjálpin frá hagsmuna­aðilum

Erfitt rekstrar­umhverfi fjölmiðla gerir það að verkum að til þess að halda úti fjölmennri ritstjórn þurfa fjöl­miðlar að reiða sig á fjár­sterka aðila til að niður­greiða taprekstur félagsins. Íslensk stjórn­völd hafa ekki sýnt vilja til að styrkja sjálf­stæða blaða­mennsku, þrátt fyrir að forsætis­ráðherra hafi sagt fjölmiðla lítið annað en skel vegna manneklu og fjár­skorts. Nefnd um rekstrar­umhverfi einka­rekinna fjölmiðla hefur enn ekki skilað inn tillögum til ráðherra.

Mest lesið undanfarið ár