Aðili

Björn Ingi Hrafnsson

Úttekt

Fall íslenskra fjölmiðla og hjálpin frá hagsmuna­aðilum

Erfitt rekstrar­umhverfi fjölmiðla gerir það að verkum að til þess að halda úti fjölmennri ritstjórn þurfa fjöl­miðlar að reiða sig á fjár­sterka aðila til að niður­greiða taprekstur félagsins. Íslensk stjórn­völd hafa ekki sýnt vilja til að styrkja sjálf­stæða blaða­mennsku, þrátt fyrir að forsætis­ráðherra hafi sagt fjölmiðla lítið annað en skel vegna manneklu og fjár­skorts. Nefnd um rekstrar­umhverfi einka­rekinna fjölmiðla hefur enn ekki skilað inn tillögum til ráðherra.
Fréttir

Sótt að Pressunni vegna 90 milljóna skuldar: Björn Ingi flytur inn í 320 fermetra einbýlishús

Björn Ingi Hrafnsson leigir einbýlishús sem er í eigu félags á Möltu sem er einn hluthafa eignarhalds­félagsins Borgunar. Málaferli gegn Pressunni ehf. vegna rúmlega 90 milljóna láns, sem veitt var til að kaupa DV ehf. 2014, hafa verið þingfest. Eigandi skuldar Pressunnar ehf. vill ekki ræða málið en stað­festir að það sé vegna vangoldinnar skuldar.
Úttekt

Björn Ingi fékk kúlulán meðfram lunda­fléttu

Björn Ingi Hrafnsson var umsvifa­mikill í íslensku viðskipta­lífi á meðan hann starfaði sem náinn samstarfs­maður Halldórs Ásgríms­sonar forsætis­ráðherra, sem stjórn­málamaður í borginni og síðar blaða­maður hjá 365 miðlum. Það sem einkennir fjár­hags­legar fyrir­greiðslur til Björns Inga á þessu tímabili er að alltaf eru aðilar tengdir Kaupþingi handan við hornið.

16 mín. lestur

Fréttir

Farið fram á nauðungar­uppboð hjá Birni Inga Hrafns­syni

Farið var fram á nauðungar­uppboð hjá Birni Inga Hrafns­syni, aðal­eiganda Vefpressunnar, DV og fleiri fjölmiðla. Hann fékk kúlulán frá Kviku banka með veiku veði. Hann hefur keypt sjón­varps­stöð og tímarita­útgáfu á sama tíma og hann hefur verið í vanskilum. Hann segir málið ekki tengjast fjölmiðla­rekstri hans, það hafi verið leyst og að óeðlilegt sé að fjalla um það.

Mest lesið undanfarið ár