Aðili

Björn Ingi Hrafnsson

Fréttir

Meint „meiri háttar“ skatta­lagabrot Björns Inga áætluð um 115 milljónir

Skatt­rannsóknar­stjóri vildi kyrrsetja tæpar 115 milljónir króna af eignum Björns Inga Hrafns­sonar athafna­manns vegna meintra „meiri háttar“ brota. Slík brot geta varðað allt að 6 ára fangelsi. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður segir að milli­færslur nú gjald­þrota fjölmiðla­fyrirtækja Björns Inga til hans sjálfs hafi verið vegna uppgjörs lána­samninga og ábyrgða en ekki tekna.
Úttekt

Framkvæmda­stjóri Pressunnar seldi íbúð sína til mágs síns í aðdrag­anda gjald­þrots fjölmiðla­fyrir­tækisins

Pressu­málið heldur áfram að vinda upp á sig í fjöl­miðlum með skeyta­sendingum á milli Björns Inga Hrafns­sonar og Róberts Wessmann og viðskipta­félaga hans. Pressu­málið er eitt af mörgum á skraut­legum ferli Björns Inga Hrafns­sonar þar sem hann blandar saman vinnu sinni og persónu­legum viðskiptum sínum og fjármálum.

10 mín. lestur

Fréttir

Pressan greiddi 350 þúsund á mánuði fyrir jeppa undir Björn Inga

Þó Pressan ehf. hafi verið ógjaldfær frá árinu 2014 að mati nýrrar stjórnar fyrir­tækisins hefur fyrir­tækið greitt rúmlega 4 milljónir króna á ári í leigu fyrir Landrover Discovery jeppa Björns Inga Hrafns­sonar. Björn Ingi segist hafa yfirtekið samninginn um bílinn. Deilur um eignar­hald á fjöl­miðlum Pressunnar hafa staðið yfir og Björn Ingi verið kærður fyrir fjárdrátt.

Mest lesið undanfarið ár