Aðili

Bjarni Benediktsson

GreiningHátekjulistinn 2024

Útsvars­kóngar og tekju­kóngar ólíkur hópur

Af þeim sem högnuðust mest á sölu kvóta á síðasta ári, greiddi trillu­karl á Seltjarn­ar­nesi langsamlega mest í útsvar og tekju­skatt. Auðveldlega er hægt að spara sér háar fjárhæðir í skatt eftir því hvernig tekjur eru flokkaðar. Það kostar ríkið milljarða og var fyrir fjórum árum sagt forgangsmál stjórn­valda að breyta. Það hefur þó enn ekki gerst.

9 mín. lestur

2:40
FréttirÁrásir á Gaza

Katrín segir allar líkur til þess að framlagið til UNRWA skili sér

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra telur að framlagið til Palestínu­flóttamanna­aðstoðar Sameinuðu þjóðanna muni skila sér. Ísland þurfi að leggja sitt af mörkum til að sinna skyldum sínum gagnvart mannúðar­krísunni á Gasa. Utan­ríkis­ráðherra hefur tilkynnt viðbótar­fjárlög til Rauða krossins vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðar­hafs.
Fréttir

Spurði hvort Bjarni og Þórdís hefðu reynt að hleypa illu blóði í kjara­viðræður

Í óundirbúnum fyrir­spurnum stóð fjármála- og efnahags­ráðherra fyrir svörum um kjara­viðræður. Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata, spurði hvort að hún og Bjarni Benediktsson væru að reyna að hleypa illu blóði í kjara­viðræður. Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir vildi vita hvort ætti að afhenda helmingi vinnu­markaðarins það að taka ákvarðanir um ríkis­fjármál.
Fréttir

Hæfi Bjarna við sendiherra­skipanir verði skoðað

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata, hefur lagt fram beiðni um frumkvæðis­athugun á skipunum utan­ríkis­ráðherra á Svanhildi Hólm Vals­dóttur og Guðmundi Árnasyni sem sendi­herra. Stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd mun skoða hvort að Bjarni Benediktsson hafi fylgt reglum stjórnsýslu­réttarins og verið hæfur þegar hann skipaði fyrr­verandi samstarfs­fólk sitt í stöður í utan­ríkis­þjónustunni án auglýsingar.
FréttirÁrásir á Gaza

Utan­ríkis­ráðuneytið tekur ekki afstöðu gagnvart kæru Suður-Afríku

Utan­ríkis­ráðuneytið segir íslensk stjórn­völd yfirleitt ekki lýsa yfir stuðningi við einstök mál fyrir alþjóða­dómsstólum nema þau eigi aðild að máli. Það telur þó líklegt að alvarleg brot hafi verið framin á alþjóða­lögum, einkum mannúðar­rétti, af beggja hálfu í Palestínu. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að Palestínu­mennirnir sem mótmæla á Austur­velli hafi beðið um fund með ráðherra.

Mest lesið undanfarið ár