Aðili

Andemariam Beyene

FréttirPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar neit­uðu að borga fyrir til­rauna­með­ferð­ina en ekki Karol­inska

Karol­inska-sjúkra­húsið afhendir samn­ing­inn sem Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu við spít­al­ann um fyrstu plast­barka­að­gerð­ina. Kostn­aður Sjúkra­trygg­inga vegna fyrstu plast­barka­að­gerð­ar­innar á Andemariam Beyene gat mest orðið rúmar 22 millj­ónir króna. Tómas Guð­bjarts­son skurð­læknir bar ábyrgð á eft­ir­með­ferð Andemari­ams sam­kvæmt samn­ingnum.
FréttirPlastbarkamálið

Afhjúp­andi tölvu­póstar í plast­barka­mál­inu: „Ég held að það styðji upp­haf­legt mat okkar“

Tölvu­póstar í Macchiarini-mál­inu, sem aldrei áður hafa verið birtir opin­ber­lega, sýna hvernig reglur voru brotnar í mál­inu. Paulo Macchiarini og yfir­læknir á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, Richard Kuy­len­sti­erna, tóku ákvörðun um að gera plast­barka­að­gerð­ina á Andemariam Beyene í sam­ein­ingu og reyndu svo að fá sænsku vís­inda­siða­nefnd­ina og sænska eft­ir­lit­lits­stofnun til að stað­festa aðgerð­ina. Sam­þykkið var aldrei veitt en Kuy­len­sti­erna gaf sér að svo hefði verið.
FréttirPlastbarkamálið

Birgir segir að hann hefði átt að kæra Macchiarini

Birgir Jak­obs­son, land­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Karol­inska-sjúkra­húss­ins í Stokk­hólmi, skrif­aði undir ráðn­ingu Paulo Macchiarinis til Karol­inska-sjúkra­húss­ins árið 2010. Hann neit­aði hins vegar að end­ur­ráða Macchiarini þar sem plast­barka­að­gerðir hans höfðu ekki virkað vel og hann sinnti ekki sjúk­lingum sínum. Hann segir stærsta lær­dóm­inn í mál­inu að háskólar megi ekki ákveða klínískar með­ferðir á sjúk­lingum.

9 mín. lestur

FréttirPlastbarkamálið

Lækna­deild HÍ ákveður að óþarfi sé að rann­saka plast­barka­málið

Fundaði um málið í síð­ustu viku þar sem skiptar skoð­anir komu fram. Sumir af kenn­urum lækna­deildar vildu rann­saka plast­barka­málið. Deild­ar­for­seti lækna­deildar, Magnús Karl Magn­ús­son flutti erindi um stofn­frumur á mál­þingi um aðgerð­ina og studdi hann það mat að rann­sókn væri óþarf. Háskóli Íslands, tveir íslenskir læknar og Land­spít­al­inn tengj­ast mál­inu sem sætir mörgum rann­sóknum í Svíþjóð.
FréttirPlastbarkamálið

Aðgerðin á Andemariam ákveðin áður en hann var sendur til Stokk­hólms

Tölvu­póstur frá Richard Kuy­len­sti­erna, lækni á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, til Paulo Macchiarinis sýnir að byrjað var að skipu­leggja að græða plast­barka í Andemariam Beyene áður en hann var sendur til Sví­þjóðar frá Íslandi. Flugmiði Andemari­ams sýnir hins vegar að hann vissi ekk­ert um það þar sem hann ætl­aði bara að vera í Svíþjóð í fjóra daga. Macchiarini-málið er orðið að alþjóð­legu hneyksl­is­máli sem teng­ist Íslandi náið í gegnum Andemariam og lækni hans Tómas Guð­bjarts­son.

14 mín. lestur

Pistill

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Íslenska mynd­bandið sem getur sannað alþjóð­legt mis­ferli

Myndband með rann­sókn á fyrsta plast­barka­þeg­anum Andemariam Beyene er til í fórum Ásvaldar Krist­jáns­sonar. Mynd­skeiðið var tekið upp fjórum mán­uðum frá sögu­legri aðgerð á barka hans í júní 2011. Síðasta rann­sóknin sem gerð var á barka Andemari­ams fyrir birt­ingu greinar í lækna­tíma­rit­inu Lancet um að aðgerðin hefði gengið vel. Annað mynd­band frá Ásvaldi er birt í heim­ild­ar­mynd Bosse Lindqvist en ekki þetta.
FréttirPlastbarkamálið

Rektor Karol­inska segir af sér út af Macchiarini-mál­inu: Gögn frá Íslandi lyk­il­at­riði í ákvarð­ana­töku hans

Rektor Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi, Anders Hamsten, hefur sagt sér út af Macchiarini-mál­inu. Ein af ástæð­unum fyrir breyttri sýn hans á Macchiarini-málið eru gögn með upp­lýs­ingum frá Íslandi. Í heim­ild­ar­mynd sem sænska sjón­varpið sýndi nýlega er birt mynd­band af rann­sókn á Andemariam Beyene á Land­spít­al­anum sem tekið var upp fyrir heim­ild­ar­mynd Elínar Hirst um stofn­frumu­rann­sóknir.

Mest lesið undanfarið ár