Aðili

Alþingi

FréttirUppreist æru

Brynjar þekkti með­mæl­anda Roberts Downey þegar hann stýrði fundi um málið

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, teng­ist með­mæl­anda Roberts Downey, en hann skip­aði sama fót­boltalið og Halldór Ein­ars­son auk þess sem þeir unnu saman. Meiri­hluti nefnd­ar­innar gekk út af fundi um máls­með­ferð­ina án þess að kynna sér gögn sem lögð voru fram á fund­inum, meðal ann­ars um með­mæl­endur Roberts. Í lok fund­ar­ins lýsti for­maður Pírata yfir van­trausti á Brynjar.
Rannsókn

Hrædd við skiln­ings­leysi og kerf­is­breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar

Rík­is­stjórnin hefur boðað stór­felldar kerf­is­breyt­ingar á málum öryrkja með inn­leið­ingu starfs­getu­mats sem á að liðka fyrir atvinnu­þátt­töku öryrkja með jákvæðum hvötum í kerf­inu. Rann­sóknir benda til þess að upp­taka á slíku kerfi í nágranna­ríkjum hafi ekki leitt til auk­innar atvinnu öryrkja, heldur leitt til auk­inna sjálfs­víga og fjölg­unar áskrifta á þung­lynd­is­lyf. Öryrkjar ótt­ast afleið­ingar þess að þetta kerfi verði tekið upp. Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra seg­ist vilja auka virkni öryrkja.

24 mín. lestur

Fréttir

„Robert Downey fékk sér­staka með­ferð þegar hann sótti um upp­reist æru“

Bergur Þór Ing­ólfs­son bendir á eitt sem aðskilur mál Roberts frá öðrum sem sótt hafa um upp­reist æru, sam­kvæmt lista yfir slíkar umsóknir sem dóms­mála­ráðu­neytið birti í gær. Í stað þess að honum væri synjað á þeim for­sendum að enn var ekki lið­inn nægi­lega langur tími frá því að refs­ingu lauk lá umsókn Roberts óvenju lengi í ráðu­neyt­inu.

Mest lesið undanfarið ár