„Svona getur íslensk gata litið út, svona getur íslenskt hverfi litið út“

Borg­ar­hönn­uður hjá Reykja­vík­ur­borg segir að það sé heiður að fá að kynna Nýja-Skerja­fjörð á arki­tekt­úr­þrí­ær­ingnum í Ósló og að áherslur úr hönn­un­ar­leið­bein­ingum hverf­is­ins verði not­aðar víðar í borg­inni, við hönnun hverfa og end­ur­gerð eldri gatna.

Rebekka Guð­munds­dóttir, borg­ar­hönn­uður í deild borg­ar­hönn­unar hjá Reykja­vík­ur­borg, segir að deiliskipu­lag nýrrar byggðar í svoköll­uðum Nýja-Skerja­firði og hönn­un­ar­leið­bein­ingar hverf­is­ins, sem eru nú til sýn­ist á arki­tekt­úr­þrí­ær­ingnum í Ósló, gefi raunsanna mynd af því hvernig borg­ar­hverfi á Íslandi geti litið út út fram­tíð­inni.

Líkt og Kjarninn fjall­aði um á föstu­dag var afrakstur vinnu borg­ar­innar og sænsku arki­tekt­úr­stof­unnar Mandaworks, um hönn­un­ar­leið­bein­ingar gatna og almanna­rýma í fyr­ir­hug­uðu hverfi, val­inn til þátt­töku í aðal­sýn­ingu þrí­ær­ings­ins í Ósló, sem hófst form­lega með setn­ingu í ráð­húsi borg­ar­innar á fimmtu­dags­kvöld.

Blaða­maður Kjarnans er í Ósló og ræddi þar við Rebekku, sem segir að það sé upp­hefð fólgin í því að fá að taka þátt í sýn­ingu þrí­ær­ings­ins þetta árið, en ein­ungis sex verk af alls 383 sem sótt­ust eftir þát­töku fengu að setja upp sýn­ingar á verkum sínum í gamla Munch-safn­inu í Ósló, sem er aðal­vett­vangur þrí­ær­ings­ins.

„Þetta er heiður, og sjúk­lega flottur vett­vangur fyrir svona verk­efni,“ segir Rebekka aðspurð og bætir því við að ekki síst sé gaman að fá við­ur­kenn­ingu sem þessa „því við erum í raun­inni að breyta svo­lítið okkar hugsun um hvernig við viljum hverfin okkar, hvernig við viljum borg­ina okkar og hvernig við viljum göt­urnar okkar.“

„Ég held að þetta sé að koma Reykja­vík á kortið, og Íslandi líka, að við séum að hugsa um þetta mann­lega líka í umhverf­inu okkar. Það er það skemmti­leg­asta við þetta, eða mér finnst það,“ segir Rebekka.

Almannarými með fólk í forgrunni

Skipulag nýja hverf­is­ins í Skerja­firði, sem er á svæð­inu umhverfis suð­ur­enda hinnar aflögðu „neyð­ar­brautar“ Reykja­vík­ur­flug­vallar og þær hönn­un­ar­leið­bein­ingar gatna og almanna­rýmis sem lagt er upp með, gefur til kynna að hverfið verði afar frá­brugðið öðrum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Bíla­um­ferð er víkj­andi á göt­unum og bíla­stæðin á milli hús­anna nær engin, heldur stendur til að byggja mið­lægt nokk­urra hæða bíla­stæða­hús fyrir hverfið. Þá skap­ast pláss til þess að hafa göt­urnar á milli hús­anna gróð­ur­sælar, með opnum svæðum fyrir íbúa, nágranna, til þess að dvelja í sam­ein­ingu.

Aðspurð segir Rebekka að hún búist við því að hugsun og hönnun nýrra hverfa verði með svip­uðum hætti til fram­tíðar litið, og að að áhersl­urnar sem sjást í skipu­lagi Nýja-Skerja­fjarðar verði tvinn­aðar inn í verk­efni við skipu­lag og umbr­ey­ingu eldri gatna víðar í borg­inni.

Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður hjá Reykjavíkurborg.
Rebekka Guð­munds­dóttir, borg­ar­hönn­uður hjá Reykja­vík­ur­borg.

Hún segir að deild borg­ar­hönn­unar hafi fengið tæki­færi til þess að hafa áhrif á deiliskipu­lags­vinn­una undir lok skipu­lags­ferl­is­ins og borg­ar­hönn­uðir og ráð­gjafar hafi þannig náð að setja sína þekk­ingu inn í þær áætl­anir sem nú eru til staðar.

Þetta vinnu­lag segir hún að sé eitt­hvað sem hún von­ist eftir að hægt verði að inn­leiða í öll fram­tíð­ar­verk­efni hjá borg­inni. „Þetta verk­efni var svona fyrsta showcase verk­efnið í Reykja­vík með þessa hugsun og þetta er hugs­unin sem er í gangi hjá öllum,“ sagði Rebekka við blaða­mann eftir að setið fundi og kynn­ingar með nor­rænum kol­legum og fleirum hér í Ósló.

„Þetta er allt sem við vorum að tala um, öll þessi verk­efni sem voru kynnt hafa sömu hugs­un­ina, að skapa sjálf­bær­ara umhverfi, skapa fjöl­breyti­leika, skapa vist­væni, láta fólki líða vel og allt það. Alls staðar þar sem við erum að koma við og hanna götur, þar er verið að hugsa um þetta. Og þetta erum við að inn­leiða í allar okkar upp­bygg­ingu og hann­anir sem við erum með í borg­inni,“ segir Rebekka.

Geta ekki haft nein áhrif á pólitískar deilur

Deilur hafa staðið á milli flug­mála­yf­ir­valda, inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar í Skerja­firð­inum og ekki hefur enn feng­ist leyfi til að hefja fram­kvæmdir, en starfs­hópur sem er að skoða hvort upp­bygg­ingin rýri gæði og öryggi Reykja­vík­ur­flug­vallar á að skila nið­ur­stöðu í upp­hafi næsta mán­aðar.

Blaða­maður gat engan­veg­inn sleppt því að spyrja Rebekku hvort það væri ekki ögn skrítið að vera í Ósló að kynna verk­efni sem óvissa ríkti um hvort yrði að veru­leika.

„Ég veit það ekki. Við nátt­úr­lega bara fáum svona verk­efni í hend­urnar og getum ekki haft áhrif á neinar póli­tískar ákvarð­anir. En verk­efnið er til­búið, og ef það verður ekki að veru­leika þá verður það bara að veru­leika ein­hvers­staðar ann­ars­staðar. En ég hef fulla trú á því að þetta gangi upp á þessu svæði, ein­hvern­tím­ann, þó það ger­ist kannski ekki eftir tvö ár,“ segir Rebekka.

Borgargötur í öllum hverfum

Eitt verk­efn­anna sem borg­ar­hönn­uðir í Reykja­vík hafa á sinni könnu er end­ur­hönnun svo­kall­aðra borg­argatna, lyk­il­gatna innan hverfa borg­ar­innar sem eiga að fá umtals­verða and­lits­lyft­ingu á næstu árum.

Dæmi um slíkt verk­efni sem komið er á rek­spöl er end­ur­hönnun Rofa­bæjar og Bæj­ar­brautar í Árbæ, en svæðið er skil­greint sem borg­ar­gata í hverf­is­skipu­lagi Árbæj­ar­ins.

Til stendur að verja umtals­verðu fé í að fegra göt­urnar, en kostn­að­ar­á­ætlun vegna umbreyt­ingar borg­ar­göt­unnar í Árbænum, hljóðar upp á tæp­lega einn og hálfan millj­arð króna.

Rebekka segir að borg­ar­göt­urnar verði gagn­gert end­ur­gerðar til þess að skapa mann­líf og ákveðna mið­punkta innan hverfa, þar sem verslun og þjón­usta geti þrif­ist, auk þess að bæta umferð­ar­ör­yggi. Við göt­urnar á einnig að verða gott aðgengi að almenn­ings­sam­göngum.

Þurftu að tóna niður trjávöxt á tölvuteikningum

Sænsku ráð­gjaf­arnir hjá Mandaworks komu að gerð hönn­un­ar­leið­bein­inga fyrir Nýja-Skerja­fjörð í kjöl­far þess að arki­tekt­úr­stofan var lægst­bjóð­andi í verð­fyr­ir­spurn sem Reykja­vík­ur­borg setti fram til þriggja inn­lendra og tveggja erlendra arki­tekt­úr­stofa.

Rebekka segir að sænska stofan hafi upp­fyllt óskir og þarfir deildar borg­ar­hönn­unar í borg­inni, og stýrt verk­efn­inu til enda. Hún seg­ist hins vegar hafa haldið utan um það verkið pass­aði við íslenskar aðstæður.

„Við erum að skapa rými í íslenskum aðstæðum, í íslenskri dags­birtu, veðri og öllu þessu. Og gróð­ur­fari, sem er kannski erf­ið­ara fyrir erlenda ráð­gjafa að átta sig á,“ segir Rebekka og nefnir að fyrstu tölvu­teikn­ingar, „rend­er­ingar“, af Nýja-Skerja­firð­inum hafi þurft á end­ur­skoðun að halda.

„Við vorum með teikn­aðar myndir frá þeim, og trén voru rosa grósku­mikil, við sjáum kannski ekki trén okkar hér svona fyrr en eftir 50, 60, 70 ár. Við gátum temprað þetta niður, þannig að svona getur íslensk gata litið út, svona getur íslenskt hverfi litið út,“ segir Rebekka.

Eftir 10 ár kannski frekar?

„Já, eða bara korteri eftir að við byggjum það, í raun­inni,“ segir Rebekka og bætir við að hverfið hafi fengið mikla jákvæða athygli frá Íslend­ingum þegar hún hefur verið með kynn­ingar á áformunum.

„Mér finnst geggjað að það eru margir Íslend­ingar sem vilja þetta og segja, ég ætla að búa þarna,“ segir Rebekka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arkitektúr

Mest lesið undanfarið ár