Fréttir

„Ég er ekki að múta mönnum"

Tómas Ellert Tómasson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Árborg, segir að Leó Árnason fjárfestir hafi lagt fram tilboð um fjárhagslegan stuðning við Miðflokkinn á fundi árið 2020. Í staðinn hafi Miðflokkurinn í Árborg átt að vinna að því að sveitarfélagið hætti við að kaupa hús Landsbankans á Selfossi. Leó segir að hann hafi oft hjálpað stjórnmálamönnum úr ýmsum flokkum en að hann hafi aldrei ætlast til þess að fá eitthvað í staðinn. Í myndbandinu má heyra upplifanir og útskýringar þeirra Tómasar og Léos á fundinum.

1:21

Á vettvangi

Á vettvangi: Bráðamóttakan - Sýnishorn

Í fjóra mánuði hefur Jóhannes Kr. Kristjánsson verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Í þáttaröðinni Á vettvangi sem unnin er fyrir Heimildina veitir hann einstaka innsýn inn í starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir. Á vettvangi fer í loftið 22. nóvember. Um leið birtist ítarleg umfjöllun í prentútgáfu Heimildarinnar.

Lesa fréttina: Tugir sjúklinga dvöldu á bráðamóttökunni lengur en í 100 klukkustundir

2:20

Skýrt

Mál Jóns og Hvals í hnotskurn

Son­ur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­son­ar þing­manns full­yrð­ir í upp­tök­um sem tekn­ar voru af manni sem sagð­ist vera fjár­fest­ir að Jón hafi sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­son­ar um að þiggja sæti á lista gegn því að Jón kom­ist í að­stöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Það verði arf­leifð Jóns að tryggja Kristjáni Lofts­syni nán­um vini sín­um leyf­ið. Það sé hins veg­ar eitt­hvað sem eigi að fara leynt.

2:57

Pressa

Arnar Þór um Alþingi og málskotsréttinn

2:46

Á vettvangi

Sýnishorn - Á vettvangi

Þáttar­öð­in Á vett­vangi fer í loft­ið á Heim­ild­inni þann 22. apríl og verða þætt­irn­ir fjór­ir og birt­ir viku­lega.

1:45

FréttirÁskrift

Stöðumælavörður öskrar á fólk

Verslunareigendur í Miðborginni eru að eigin sögn í heljargreipum stöðumælavarðar sem missir stjórn á skapi sínu við minnsta brot á umferðarlögum. Hann öskrar á eigendur og gesti þeirra og sýnir af sér ógnandi hegðun. Borgin staðfestir að kvartanir hafi borist vegna mannsins.

Lesa fréttina: Stöðumælavörður öskrar á fólk fyrir brot á umferðarlögum

2:11

Klippan er fyrir áskrifendur

Áskrift kostar frá 3.990 kr. á mánuði. Ertu áskrifandi? Skráðu þig inn.

Fá áskrift

FréttirÁskrift

Hraunið gleypir Grindavíkurveg

Stórbrotin drónamyndbönd sýna hvernig hraunbreiðan gleypti Grindavíkurveg og rann eftir Norðurljósavegi í átt að Bláa lóninu fyrr í dag. Reykstrókar lögðust upp frá malbikinu á meðan viðbragðsaðilar fylgdust með hrauninu vella yfir veginn.

Lesa fréttina: Myndband: Hraunið gleypir Grindavíkurveg

Myndband: Heimildin / Golli

0:49

Fréttir

Grafreiturinn við Nasser-spítalann

Eyðileggingin er gríðarleg með ummerkjum eftir jarðýtur í kjölfar aðgerða Ísraelshers

Lesa fréttina: Ísraelsher eyðileggur grafreiti á Gasa í leit að gíslum

Myndband: AFP

1:12

Fréttir

Hvað kom fyrir Kidda?

Hálfri öld eftir að tilkynnt var um bílslys í Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar er lögreglan loks að rannsaka hvað átti sér stað. Lík Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í slysinu, var grafið upp og bein hans rannsökuð. Sonur og hálfbróðir Kristins urðu til þess yfirvöld skoða loksins, margsaga vitni og myndir af vettvangi sem urðu til þess að málið var tekið upp að nýju.

Myndband: Stundin

1:14
0:36

Fréttir

Andrej Kúrkov

Andrej Kúrkov einn þekktasti rithöfundur Úkraínu biður Íslendinga að fylgjast vel með fréttum af innrás Rússa í landið og afleiðingum hennar og hafa íbúa Úkraínu í hjörtum sínum. Kúrkov flúði síðustu helgi frá Kænugarði og er nú í felum á ótilgreindum stað í vesturhluta landsins. Hann hyggst ekki flýja land.

Lesa fréttina: „Hafið okkur í hjörtum ykkar“

1:20

Fréttir

Ásgeir Jónsson um Stýrivaxtahækkun Seðlabankans

2:21

Fréttir

Íslenska plastsyndin fundin í Svíþjóð

Stundin fann allt að 1.500 tonn af íslensku plasti sem hefur legið óhreyft í um fimm ár í vöruhúsi í Svíþjóð. Allt plastið var sagt endurunnið samkvæmt tölfræði Úrvinnslusjóðs og var íslenskum endurvinnslufyrirtækjum greitt um hundrað milljónir króna fyrir að senda það í endurvinnslu. Fyrrverandi umhverfisráðherra segir Úrvinnslusjóð bera ábyrgð á að íslenskt plast sé í raun endurunnið. Plastið sligar palestínska flóttamannafjölskyldu í Svíþjóð sem greiðir nú fyrir úrvinnslu á því.

2:10

Fréttir

Egilsstaðir

Hljóð · 2 mín. Opna þáttinn

Lag eftir Þorvald Gylfason Teksti eftir Hallgrím Helgason

Lesa fréttina: Egilsstaðir

0:00
1:33

Fréttir

Ferðamenn ganga yfir rjúkandi hraunið í Nátthaga

Rennsl­ið hef­ur ekki minnk­að og hraun­ið held­ur áfram að stafl­ast upp í Nátt­haga, en ferða­menn gengu ofan á hraun­inu. Myndbandið er fengið úr vefmyndavel mbl.is.

Lesa fréttina: Ferðamenn ganga yfir rjúkandi hraunið í Nátthaga

Myndband: mbl.is

0:27

Fréttir

Kraftar náttúrunnar: Drónamyndband af eldgosinu

Davíð Þór Guðlaugsson ljósmyndari Stundarinnar tók þetta tilkomumikla drónamyndband af gígnum sem opnaðist 5. apríl síðastliðinn. Þar má sjá hversu gríðarlegir kraftar eru að verki við Fagradalsfjall.

Myndband: Davíð Þór

1:25

Fréttir

Svartlyng: Bergur Þór Ingólfsson

Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir gamanleikritinu Svartlyng sem speglar farsakenndu atburðarás uppreist æru-málsins sem Bergur dróst inn í fyrir ári. Handritshöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson segir marga af fyndnustu bröndurunum koma úr bláköldum raunveruleikanum.

2:45

Fréttir

Fólkið með grænu fingurna

Við þekkj­um öll svona fólk, sem með undra­verð­um hætti glæð­ir all­ar plönt­ur lífi og ger­ir nærum­hverfi sitt vænt, grænt og fag­urt, að því er virðist áreynslu­laust. Hver er gald­ur­inn?

Lesa fréttina: Fólkið með grænu fingurna

2:00