Flækjusagan

Dýr­ling­ur­inn með hnúta­svip­una

Illugi Jökulsson veltir fyrir sér þeirri aðkallandi spurningu hvernig geimverum myndi lítast á nýjasta dýrling kaþólsku kirkjunnar.
Hlustaðu · brot10:55 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.281 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Geimverur og mannkynið

Dýrlingurinn með hnútasvipuna. Í þessum pistli velti ég fyrir mér þeirri aðkallandi spurningu: hvernig myndu geimverur líta á nýjasta dýrling kaþólsku kirkjunnar?

Einhvers staðar las ég á netinu að nú þætti vísindamönnum fara að minnka líkurnar á að finnast mundi önnur viti borin tæknimenning í alheiminum en okkar. Þeir sögðu sem svo að ef tæknivæddar geimverur væru út um allt, þá hlytum við nú þegar að vera búin að sjá einhver merki um þá miklu orkunotkun þeirra sem tæknimenning krefst, að ekki sé nú minnst á að við ættum að vera löngu búin að ná sjónvarpssendingum geimveranna. Á einhverjum tímapunkti í þróun þeirra hlytu þær að hafa sent frá sér sjónvarpsbylgjur, en í mínu sjónvarpi er sem sé hvergi að finna Eilíentíví af neinu tagi.

Niðurstaðan getur því aðeins orðið sú að við séum einu lífverurnar í alheiminum sem höfum þróað með okkur tæknimenningu. En nú er það svo að málsmetandi menn hafa, þrátt fyrir sjónvarpsleysið utan úr geimnum, ennþá mikla trú á að þar sé eitthvað að finna. Nú er að minnsta kosti nýhafin umfangsmesta geimveruleit okkar hingað til, svo ég vona það besta. Forvitnin í mér hefur nefnilega alltaf krafist þess að geimverur séu til og helst að ég fái að kynnast þeim eitthvað áður en ég dey.

En um leið hefur mér reyndar upp á síðkastið farið að blöskra svolítið tilhugsunin um hvernig geimverunum litist á blikuna ef þær rækjust nú hingað sem gestir. Um óravíddir geimsins, hvað myndu gestirnir sjá? Myndu þeir ganga glaðir inn í hús tegundar sem vissulega getur unnið saman og reist og þróað ýmislegt snoturt, en er öðrum stundum sjálfri sér svo ósammála að það stappar brjálæði næst?

Geimverur sem ná því stigi að ferðast milli stjarnanna hljóta eiginlega, er það ekki, að vera búnar að losa sig við mesta glóruleysið úr menningu sinni og hugsun. Og hvernig gæti þá sómakær háþróuð geimvera annað en fylgst með skelfingu og vonleysi þegar hún stæði andspænis mönnum, vitsmunaverum sem hefðu vissulega náð fágætum árangri í vísindum og tækni á skömmum tíma, en væru líka tilbúnar til að drepa hver aðra í hrönnum og ganga sjálfar í dauðann í þrotlausu þrefi um hver ætti flottasta ósýnilega vininn?

Hnútasvipan í Kaliforníu

Eins og einhver orðaði það. Og nú víkur sögunni, eins og hendi sé veifað, utan úr víðáttum geimsins og niður í sólbakaða rykhuga trúboðsstöð í Kaliforníu. Þar er kuflklæddur maður, tæplega sjötugur, að lúberja ungan frumbyggja með hnútasvipu, sem aðrir munkar hafa bundið við staur.

Munkurinn leggur sig allan fram við barsmíðarnar, þótt hann sé bersýnilega sárþjáður sjálfur af fótarmeini og ýmsum kvillum, og hann lætur sig engu skipta þjáningarópin frá unga frumbyggjanum sem hangir í böndunum. Nema hvað, þegar munkurinn hefur lokið sér af, þá gerir hann krossmark í bak og fyrir og fullvissa þessi mynd af guðsmanninum.

Að lúskra á manni sem hafði á einhvern hátt gengið gegn smámunasemi munkareglunnar, sem hélt úti trúboðsstöðinni. Hún var því miður ekki sjaldgæf. Munkurinn var af reglu fransiskana og þeim hafði verið fengið það verkefni af spænska kónginum að útbreiða kristin gildi í Kaliforníu. Og það gerðu þeir svona, með hörku og ofbeldi, þegar svo bar undir.

Frumbyggjarnir, eða hinir svonefndu indjánar á svæðinu, fengu ekkert val um hvort þeir vildu undirgangast kristindóminn. Kærleika Krists var troðið ofan í þá með oforsi, og munkarnir lögðu sig meðvitað fram um að uppræta siði, tungumál og menningu frumbyggjanna, svo að þeir yrðu móttækilegri fyrir bænakvakinu og syndatalinu.

Munkurinn sem mundaði hnútasvipuna var æðsti yfirmaður fransiskana á allmörgum trúboðsstöðvum þar um slóðir. Og hann var með einhverjum undarlegum hætti ekki talinn vondur maður. Hann hét Junípero Serra og fæddist af fátæku bændafólki á Mallorca árið 1713.

Junípero Serra og trúboðið

Árið 1713 þráði Serra, frá blautu barnsbeini, að ganga í þjónustu kirkjunnar og útbreiða trú á hinn kærleiksríka Jesú Krist. Hann varð doktor í guðfræði og hefði getað setið á hægum sessi á Mallorca, en reri að því öllum árum að komast til Mexíkó og gerast trúboði á slóðum þeirra indíána sem þar bjuggu og voru heiðnir.

Tæplega fertugur komst Serra vestur um haf og var þar til æviloka. Hann var atorkumaður og brennandi í andanum, svo honum voru brátt falin ábyrgðarstörf. Til dæmis var hann um skeið útsendari rannsóknarréttarins illræmda í héraði einu og sendi skýrslur til yfirboðara sinna um ægilegar galdrakindur meðal héraðsbúa.

Hann hafði þá látið handtaka nokkrar, einkum konur, sem hann sakaði um viðurstyggilega glæpi eins og að ákalla andskotann, ella mundi viðbjóður þessi breiðast út til frumbyggjanna. Því miður hefur mér ekki tekist að afla upplýsinga um hvaða refsingu þessar galdrakindur fengu, en rannsóknarrétturinn var náttúrlega ekki beinlínis þekktur fyrir hálfkák eða miskunn.

Serra var þá líka orðinn frægur fyrir sjálfspíslir sem hann lagði á sig. Þær áttu að hreinsa sálu hans af syndum og freistingum. Innan á kuflum Serra voru því ýmist þyrnar eða vírbútar sem rifu sífellt hörundið til blóðs. Hann barði sig grjóti við hvert tækifæri, úðstríkti sig með hárbeittum járnstöngum og hnútasvipum og neitaði að láta gera að vondu sári á fæti, svo hann varð æ haltari með árunum.

Af einhverjum ástæðum hneigðust trúmenn í þá daga, og stundum síðar, til að telja eitthvað göfugt og kristilegt við slíkan masókisma ef yfirbragð hans var trúarlegt, en ekki einungis kynferðislegt, til að mynda. En jafnvel þá þótti Serra ganga helst til langt í blóðþorsta sínum. Hins vegar fannst yfirboðurum hans framganga hans gegn frumbyggjum í Kaliforníu til stakrar fyrirmyndar.

Frumbyggjar og refsingar

Stóra Kalifornía, sem Serra átti að annast, tilheyrir reyndar núna bæði Mexíkó og Bandaríkjunum. Þangað var Serra skipaður árið 1768 og gekk afar rösklega fram allt til æviloka árið 1784. Það eru til mörg dæmi um að Serra hafi sýnt einstökum frumbyggjum góðvild og jafnvel hlýju.

En á sama tíma létu líka þúsundir frumbyggja lífið þegar lifnaðarháttum þeirra var gerbreytt, menning þeirra svívirt, margir drepnir sem hreyfðu mótbárum, öðrum refsað harðlega fyrir það sem þeim fannst óskiljanleg brot á einhverjum dogmatískum siðareglum eða trúarreglum spánverjanna. Og frumbyggjum væri í fyrsta sinn kennt að berja börnin sín; það höfðu þeir aldrei látið sér detta í hug áður en var nú tjáð að það væri Guði þóknanlegt og vel í samræmi við kristin gildi.

Lítill vafi er á því að Serra trúði því í einlægni að þær ruddalegu trúboðsaðferðir sem hann og aðrir fransiskanar notuðu, og þær ströngu refsingar sem hann og fleiri beittu, væru til sáluhjálpar frumbyggjunum og eina ráðið til að forða þeim frá helvíti. En bætir einlægnin orðspor hans? Er nokkuð hættulegra en hugsjónarmenn sem telja sig hafa höndlað hinn eina sannleika og að þeir hafi umboð frá Guði til að ráða lífi og dauða annars fólks?

Serra tekinn í dýrlingatölu

En hvað, ég sagði sjálfur ráðandi að þetta væri ekki óalgeng saga. Hvað er þá merkilegt við hana og hvað kemur hún geimverum við? Jú, ef við fáum nú gesti og þeir kæmust að því að andlegur leiðtogi stórs hluta mannkynsins, hið annálaða prúðmenni Frans páfi, hefði fyrir nokkrum árum tekið Junípero Serra, mann sem er persónulega ábyrgur fyrir dauða og þjáningum þúsunda, í dýrlingatölu, vegna guðhræðslu hans, sem þýðir í raun og veru að Serra telst nú sérlega Guði þóknanlegur.

Hann er talinn fyrirmynd annars fólks og sérstakt göfugmenni og eiginlega kominn í stöðu hálfguðs, því það má biðja til hans núna eins og Guðs. Hvernig ættu gestirnir utan úr geimnum ekki að skilja þetta?

Það er varla hægt að bjóða gestum upp á svoleiðis furður, svo kannski er þrátt fyrir allt best að það komi engir gestir, já, að það séu bara alls engir gestir til. Við séum ein hér í húsinu, kannski að smíða undursamleg tæki á efri hæðunum, en að murka lífið hvert úr öðru í kjallaranum og tilbiðja ofstopamenn eins og Serra á miðhæðinni. Og umhverfis húsið sé ekki.

Já, kannski er það bara best. Þú ert…

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar