Karlmennskan, hlaðvarp

„Stóra mó­ment­ið er núna“ - Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir formað­ur BSRB

„Í kjarasamningum upp úr 1900 eru launataxtar fyrir karla og svo fyrir konur og unglingsstráka, sem þóttu vera á pari.“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir ný-endurkjörin formaður BSRB um sögulegar rætur launamisréttis á Íslandi. Við Sonja ræðum kynbundinn launamun og hvernig störf eru metin á ólíkan hátt þannig að störf þar sem konur eru í meirihluta eru gjarnan metin lægra til launa. Sonja telur að nú sé tíminn til að hækka laun kvennastétta og vekur athygli á tillögum stjórnvalda til aðgerða sem nú eru í samráðsgátt. Við ræðum norrænu velferðina sem byggð er á baki láglaunakvenna, launataxta og gildismat starfa og þær aðgerðir sem ráðast þarf í til að hækka laun og leiðrétta kynbundinn launamun. Þátturinn er tekinn upp ú stúdíó Macland og er í boði Dominos, Veganbúðarinnar, The Body Shop og bakhjarla á karlmennskan.is/styrkja. Intro: Futuregrapher Outro: Jói P. og Króli - ON (instrumental)
· Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Banvænt Excel-kukl og gróðafíkn
Sif · 04:43

Ban­vænt Excel-kukl og gróðafíkn

BeintFréttir

Staða mæðra á vinnu­mark­aði

BeintFréttir

Mál­þing um upp­lýs­inga­óreiðu og netógn­ir

50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar
Eitt og annað · 08:28

50 gráðu frost, 12 menn og 100 hund­ar