Streymi

Staða mæðra á vinnu­mark­aði

Á morgunverðarfundi BHM eru kynntar nýjar niðurstöður um stöðu mæðra á vinnumarkaði, áhrif barneigna á tekjur og starfsferil og hvernig umönnunarbilið mótar stöðu foreldra.

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars kl. 8:30–10:30.

Dagskrá

8:30 – Hús opnar - morgunverður. 

9:00 – Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

9:15 – Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur BHM. Fjallar um stöðu kvenna á vinnumarkaði – helstu tölur og dæmi sem varpa ljósi á stöðuna

9:30 – Sunna Símonardóttir, formaður Jafnréttisnefndar BHM og lektor við Háskólann á Akureyri. Fjallar um umönnunarbilið og áhrif þess á vinnumarkaðsstöðu foreldra.

9:45 – Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands. Fjallar um fæðingarorlofskerfið, þróun þess, breytingar á lögum og árangur – og tengir við stöðu kvenna á vinnumarkaði.

10:00 – Pallborðsumræður 

  • Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

  • Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur

  • Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu

  • Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og formaður aðgerðahópsins Brúum umönnunarbilið

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Óttast stefnubreytingu hjá DR
    Eitt og annað · 09:15

    Óttast stefnu­breyt­ingu hjá DR

    Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
    Sif · 04:33

    Lík­inda­reikn­ingur laus­gyrtra dóms­dags­spá­manna

    Comté eða ekki Comté
    Eitt og annað · 05:06

    Comté eða ekki Comté

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1