Samtal við samfélagið

Vænt­ingar barna af erlendum upp­runa til mennt­unar

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Evu Dögg Sigurðardóttur en hún tók nýlega við stöðu lektors í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Eva lauk doktorsnámi í félagsfræði frá Kent háskólanum í Bretlandi árið 2021. Í doktorsritgerð sinni einbeitti hún sér að væntingum erlendra nemenda á Íslandi til framtíðarinnar. Þær Sigrún ræða um doktorsnámið hennar, helstu niðurstöðurnar úr ritgerðinni með áherslu á stöðu erlendra nemenda í íslenska menntakerfinu.
Hlustaðu · brot44:22 ·
· Umsjón: David Reimer, Guðmundur Ævar Oddsson, Sigrún Ólafsdóttir

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Evu Dögg Sigurðardóttur en hún tók nýlega við stöðu lektors í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Eva lauk doktorsnámi í félagsfræði frá Kent háskólanum í Bretlandi árið 2021. Í doktorsritgerð sinni einbeitti hún sér að væntingum erlendra nemenda á Íslandi til framtíðarinnar. Þær Sigrún ræða um doktorsnámið hennar, helstu niðurstöðurnar úr ritgerðinni með áherslu á stöðu erlendra nemenda í íslenska menntakerfinu.

Handrit

5.168 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Leiðin í félagsfræði

Velkomin í Samtal við samfélagið og að félagsfræði um uppruna, væntingar eftir skyldunám á Íslandi. Velkomin, Eva, og takk fyrir að vera með okkur í dag. Mig langar að byrja á að heyra aðeins meira um þitt ferðalag í félagsfræðinni og félagsráðgjöfinni. Hvernig kom það upphaflega til að þú ákvaðst að fara í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands?

Já, það var nú góð spurning. Ég hafði meðal annars unnið á hjúkrunarheimili og við alls konar störf, liðveislu og svona. Margir höfðu sagt við mig að það ætti vel við mig að fara í félagsráðgjöf, þannig að ég ákvað að slá bara til og fann mig mjög vel í því námi. Aftur á móti tók ég nokkra áfanga í félagsfræði í því námi og fann strax að það átti rosalega vel við mig.

Þannig að ég kláraði BA í félagsráðgjöf og fór svo í meistaranám í rannsóknaraðferðum, því að það var einhvern veginn ótrúlega spennandi vettvangur og innan félagsfræðinnar. Þannig að ég leiddist eiginlega óvart inn á þær brautir.

Já, þá lá leiðin til Bretlands í meistaranám?

Já, það passar. Ég flutti til Bretlands til að fara í meistaranám í rannsóknaraðferðum í félagsvísindum.

Já, hvaða ár var það og hvernig var að vera þarna í Bretlandi í meistaranámi? Hvaða háskóla fórstu í?

Ég fór í háskólann í Kent. Það er náttúrlega ótrúlega mikið ævintýri að flytja og einhvern veginn kollvarpa öllu. Ég var með átta ára dóttur mína með mér. Maðurinn minn var að klára meistaranám á Íslandi, en við fórum bara tvær út fyrst og svo kom hann út á eftir okkur.

Auðvitað er það spennandi og hrikalegt. Ég fékk alveg martraðir og alls konar, af því að þetta er auðvitað mjög stressandi, að flytja til útlanda. Ég upplifði að framtíð fjölskyldunnar væri á mínum herðum, alveg rosa dramatískt. En svo var þetta bara dásamlegt.

Rannsóknaraðferðir, hvað varstu að læra í því? Bæði megindlegar og eigindlegar?

Já, bæði megindlegar og eigindlegar. Ég fór út með einhverja hugmynd um að ég væri megindlegur rannsakandi. Það var svona mín hugmynd einhvern veginn. Svo lærði ég bara bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Ég hafði svo sem gert það líka í BA-náminu, en lærði alls konar nýjar aðferðir og fann mig einhvern veginn á báðum stöðum.

Kannski var gert ráð fyrir því, vegna þess að ég var að læra rannsóknaraðferðir, að við stefndum á doktorsnám. Ég sat áfanga með doktorsnemum, mjög snemma í náminu, og við vorum farin að setja saman rannsóknaráætlun fyrir ímyndað doktorsnám. Þannig að okkur var svolítið leitt á þær brautir, eða það auðveldað okkur, ef við vildum taka það skref.

Og þú ákvaðst svo að taka það skref. Hvernig kom það til? Var það strax eftir meistaranámið?

Já, í rauninni. Í doktorsnáminu þarna undirbjó ég mig með því að vinna þessa rannsóknaráætlun og ákvað að sækja um styrk sem ég svo fékk. Ég fékk styrk sem var sérstaklega ætlaður nemendum sem ætluðu að gera megindlegar rannsóknir. Það var einn slíkur styrkur í boði sem ég sótti um og fékk.

Í viðtalinu var stungið upp á því að rannsóknin sem ég lagði til væri kannski blönduð rannsókn. Ég ákvað í framhaldinu að skoða hvort það væri grundvöllur fyrir því að gera þetta sem blandaða rannsókn. Þessi styrkur sem ég fékk var að hluta til fyrir doktorsnámið, en að hluta til þurfti ég að kenna líka. Þá kenndi ég megindlegar rannsóknaraðferðir og það fylgdi þá svona…

Doktorsnám í Bretlandi

Þessum styrk. Og hvernig var að vera doktorsnemi í félagsfræði í Bretlandi?

Æðislegt, það var stórkostlegt. Ég man að ég upplifði einhvers konar samfélag sem mér fannst mig alltaf hafa dreymt um, en ekkert endilega upplifað. Doktorsnemarnir voru mjög duglegir að mæta. Við mættum bara eins og í vinnu. Ég fór með stelpunum mínum í skóla á morgnana og mætti svo upp í vinnu.

Og fór svo bara heim og þá var vinnan búin í rauninni þann daginn. Þetta gekk í byrjun svona, en þegar maður fer að skrifa undir lokin, þá urðu þessi mörk á milli vinnu og heimilis kannski óskýrari. En þarna mættum við nemarnir, við vorum borðuðum saman hádegismat, við vorum oft saman eftir skóla og þetta var bara frábært.

Og fórum þá á pöbbinn. Maður hefur alltaf þessa ímynd af Bretlandi, bara að það sé unnið til fjögur og þá sé bara mætt á pöbbinn. Heldur betur. Ég gat ekki alveg leyft mér að vera þar með barn líka, en stundum fór maður með.

Það er náttúrlega rosalega mikil pöbbastemning í Bretlandi og þeir nálgast það einhvern veginn bara á svona hátt sem ég þurfti líka að læra, sko, að fara kannski einmitt á pöbbinn í drykk og svo bara heim, skilurðu? Já, ég man þegar ég var í Bandaríkjunum og það var farið á miðvikudagskvöldi að fá sér. Ég var bara að bíta að ég kæmi hér í eitthvað samfélag alkóhólista. Hver drekkur á miðvikudegi? Auðvitað hefur þetta breyst á Íslandi líka. Þetta var kannski þá meira bara: þú drekkur bara á föstudagskvöldum, annars er það vandamál.

En ég sá í þakkarorðunum þínum að þú talaðir um að hafa skrifað meirihluta ritgerðarinnar í COVID. Það hefur nú væntanlega verið svolítil áskorun. Hvernig tókst þú á við það?

Já, það bara heldur betur. Við vorum náttúrlega kannski svolítið upplifandi eins og fótunum væri kippt undan okkur, þarna á lokametrunum. Við vorum nokkrar sem bjuggum til nethóp og hittumst bara á morgnana í vinnuna, vorum sem sagt á netinu og unnum eftir svona Pomodoro-kerfi.

Einn var tímavörður og þá var bara sagt: „Einn, tveir, byrja!“ Allir voru með myndavélina á sér þannig að maður gat ekkert verið að hanga á Facebook, svo það var pressa. Svo, þegar þrjátíu mínútur voru liðnar, sagði tímavörðurinn: „Nú er komin pása.“ Þá tók maður pásu. Þetta gekk ótrúlega vel og hélt okkur við efnið. Við erum allar útskrifaðar.

Áhugi á börnum af erlendum uppruna

En ef við förum síðan aðeins í ritgerðina þína, hún fjallaði um börn af erlendum uppruna. Svona kannski almennt, áður en við förum í sértækari niðurstöður og svoleiðis, hvaðan kemur þessi áhugi þinn? Hvernig datt þér í hug að þetta væri það sem þú vildir fást við?

Kannski svona eiginlega bara árum saman. Já, nákvæmlega. Þetta er mjög góð spurning, því að ég hef alveg velt því fyrir mér af hverju. Ég held kannski bara að félagslegt réttlæti sé eitthvað sem skiptir mig miklu máli. En svo þegar ég fór að klára fór ég svolítið í naflaskoðun, bara af hverju ég fór þessa leið. Þá var tvennt kannski sem vakti þennan áhuga hjá mér.

Annars vegar þegar ég var barn á Djúpavogi. Ég er sjálf alin upp í mjög litlu sjávarþorpi og þá flutti stelpa sem var tveimur árum eldri en ég frá Póllandi. Í mínum huga var þetta bara í fyrsta skipti sem útlendingur flutti í bæjarfélagið einhvern veginn.

Ég man að mamma sagði við mig að nú væri hún flutt. Það væri mjög erfitt að vera komin til landsins og í nýtt samfélag og ég þyrfti að vera hérna og vildi að við yrðum vinkonur. Við vorum svolítið, eftir á að hyggja, kannski bara settar saman og náðum rosalega vel saman. Við áttum ekki sameiginlegt tungumál. Hún talar pólsku, ég tala íslensku. Við töluðumst…

Ekkert ensku eða eitthvað við mig. Mig minnir að ég hafi verið svona tíu ára, eitthvað svoleiðis, og við þurftum ekkert. Við bjuggum bara til okkar eigið mál. Þá urðu til alls konar orð sem við bjuggum bara til.

En hún lærði íslensku svo hratt og er bara íslendingur í dag. Þetta var svona einhvern veginn í mínum huga. Ég fór að hugsa hvort það ætti kannski að vera auðveldara fyrir börn að koma inn í lítil samfélög eða stór samfélög, þar sem kerfi tekur utan um mann eða kerfi er kannski ekki til staðar, eins og var þarna einmitt. Þetta er 1990 eitthvað.

Það er svona það sem vakti áhuga minn á að ég vildi horfa á landsbyggðina annars vegar og höfuðborgarsvæðið hins vegar, ekki bara horfa á börn á höfuðborgarsvæðinu. Svo er það kannski svolítið persónulegri ástæða fyrir því að ég vildi horfa á börn af erlendum uppruna. Dóttir mín er með blandaðan bakgrunn og hún er alin upp af mér og manni mínum. Við erum bæði íslensk, en hún er með blandaðan bakgrunn.

Þegar hún var í leikskóla og fyrstu bekkjum grunnskóla var hún rosalega oft spurð: „Hvaðan ertu? Af hverju ertu brún? Af hverju svona?“ Ég las mikið um hvaða áhrif það hefur að upplifa sig öðruvísi en hina, þegar íslenska sjálfsmyndin manns er dregin í efa. Það skiptir mig líka rosalega miklu máli að kafa svolítið ofan í það. Þess vegna skoða ég líka þessa íslensku sjálfsmynd, ekki bara tungumálið, ekki bara framtíðarvæntingar, heldur líka hvernig þú lítur á þig og hvernig aðrir líta á þig.

Já, og já, mig langaði að spyrja þig aðeins meira út í það þegar þú fjallar sérstaklega um íslenska umhverfið, bæði þessa sjálfsmynd Íslendinga og síðan líka skólakerfið. Ef við hugsum um íslenska umhverfið almennt, er eitthvað við það sem auðveldar börnum að vera hér eða fólki af erlendum uppruna, en líka kannski eitthvað sem býr til ákveðnar áskoranir?

Sjálfsmynd og væntingargluggi

Já, algjörlega. Það er bæði. Ég fór að hugsa þetta út frá fræðunum. Þar er talað um væntingarglugga, og það er bara: Hvað sækjum við í þegar við sjáum fyrir okkur hvað við getum gert og hvaða möguleika við höfum í framtíðinni? Þá horfum við oft til einhvers sem okkur finnst vera eins og við. En það erum við sem leggjum mat á hver er eins og við.

Það getur verið, eins og ég man til dæmis þegar ég var í grunnnámi og vissi af þér í útlöndum. Þú ert utan af landi, meira að segja austan líka. Ég horfði til þín og hugsaði: „Þarna er kona sem hefur klárað doktorsnám. Ef hún getur það, þá get ég það líka.“ Það sem hafði merkingu fyrir mig var að þú varst kona utan af landi, bros úr, svona sveitastelpa í rauninni, og ég upplifði bara: „Ef hún getur það, þá get ég það.“

Við setjum merkingu í það. Það gæti bara verið: „Ókei, þessi sem er frá sama landi og ég, fyrst hún getur það, þá get ég það.“ Við ákveðum hvað það er í fari þeirra sem við horfum til og hugsum: „Ókei, ég hlýt að geta það ef þau geta það.“

En þá fór ég að hugsa: Ef það er eitthvað í þínum eiginleikum sem aðrir segja: „Nei, stopp, þú mátt ekki leyfa þér það,“ skilurðu? Segjum að barn af erlendum uppruna upplifi bara: „Ég er Íslendingur eða kannski líka frá öðru landi, en ég er Íslendingur.“ Ef þú upplifir skilaboð frá umhverfinu um að þú sért ekki Íslendingur, að þú sért ekki alvöru Íslendingur, skilurðu, hvaða áhrif hefur það? Hversu stór er væntingarglugginn þá? Leyfirðu þér þá að horfa til einmitt einhverrar íslenskrar konu sem ég tengi við, skilurðu? Einhverrar íslenskrar konu sem hefur gert einhverja frábæra hluti, en þú tengir við það af því að hún átti pabba sem var eitthvað, eða hún átti, skilurðu? Leyfirðu þér að upplifa þessi…

Þetta er einhver sem ég lít upp til. Ég hlýt að geta þetta fyrst hún getur það, skilurðu? Ef skilaboðin eru: „Frumkvörðun, þú ert ekki Íslendingur, þú ert ekki svona“, hvaða áhrif hefur það?

Í rauninni, og þess vegna tók ég meðal annars viðtöl við nemendur með erlendan bakgrunn. Þetta var bara eitt af því: Hver ert þú og hvað er þetta? Þú minntist á dótturina sem er íslensk, alin upp hjá íslenskum foreldrum, en er samt spurð: „Hvaðan ertu?“ Ertu með fleiri dæmi um hvað það er sem við erum kannski að gera til að láta börn, sérstaklega fólk af erlendum uppruna, upplifa sig ekki sem Íslendinga?

Já, það eru til dæmis líka rosalega sterk skilaboð varðandi tungumálið. Ég er algjörlega á því að við eigum auðvitað að leggja rækt við tungumálið, það þarf ekki að spyrja að því. Aftur á móti er spurning hvernig við gerum það. Það skiptir máli að horfa til íslenskunnar: Við getum verið með akademíska íslensku, íslenskuna sem þú lærir í skólanum, sem skiptir máli upp á námið þitt, og svo er félagsleg íslenska.

Við eigum ekki að gera meiri kröfur til barna með erlendan bakgrunn en við gerum til íslenskra unglinga. Þau verða að fá að nota ensku, eins og einn viðmælandi minn sagði: „Enskan er bara þetta sem við gerum, þetta er bara það sem við notum“, skilurðu? Þau verða að fá sama leyfi til að nota þetta félagslega tungumál við aðra, alveg eins og nemendur eða krakkar með íslenskan bakgrunn.

Á sama tíma megum við ekki hoppa í enskuna bara út af því hvernig einhver lítur út eða því við heyrum hreim. Við verðum að leyfa fólki að hafa þetta rými til þess að stjórna svolítið ferðinni, skilurðu? Þetta er svolítill dans og við verðum að læra að hlusta á íslensku með hreim, til dæmis, en hoppa þá ekki strax í ensku. Það er oft ekki svona ofsalega gagnrýnið að þú talir ekki rétta eða fullkomna íslensku.

Íslendingar tala ekki fullkomna íslensku, þannig að við getum ekki gert þá kröfu. Það er heldur ekki hægt að segja að allir verði alltaf að tala íslensku og einhvern veginn verði að leggja rækt við íslenskuna, lykilinn að samfélaginu. Það er bara ekki þannig og við verðum svolítið að útvíkka þessar hugmyndir um tungumálið.

Búseta og námsval

Já, mér fannst líka áhugavert, og núna kannski að tala um þennan landsbyggðarvinkil. Við sem komum þaðan hugsum kannski dálítið út fyrir höfuðborgarsvæðið. Þau hugsa um Ísland. Mér fannst líka áhugavert að hún ætlaði bæði að tala við nemendur í mismunandi skólum, sem búa á mismunandi stöðum á landinu, og koma frá mismunandi löndum. Tókstu eftir miklum mun, annars vegar eftir því hvaðan nemendur komu og hins vegar hvar á landinu þeir bjuggu, eða hvernig samfélagi þeir bjuggu í?

Já, sko, það var varðandi búsetu. Það var alveg skýr munur, en ekki endilega eftir því hvar þau bjuggu, heldur hvers konar umhverfi þau bjuggu í. Krakkar sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu voru bara að fara í framhaldsskóla eftir grunnskóla, í þeirra huga, og þau höfðu miklu meira val um hvers konar skóla þeim langaði í.

Þegar við vorum að tala um þetta val, á hverju það byggðist, þá gat það kannski verið draumarnir þeirra. Það gat líka verið að vinirnir væru að fara þangað. Krakkar sem bjuggu í bæjarfélögum þar sem ekki var framhaldsskóli, í þeirra huga var alltaf: „Ég veit að ég þarf að flytja.“ Þá var það á þeim forsendum: „Ég veit að ég þarf að flytja, ég veit að ég þarf að fara í heimavistarskóla.“ Valið var svolítið bundið af því að þau vissu að þau þurftu að fara eitthvert þar sem væri heimavist. En krakkarnir sem bjuggu í bæjarfélögum þar sem var kannski lítill framhaldsskóli, þau upplifðu sig oft svolítið föst.

Kannski að þau þyrftu að fara í þann skóla bara af því að þau hreinlega höfðu ekki þennan félagslega auð. Þau áttu ekki fjölskyldu einhvers staðar sem þau gætu búið hjá og vissulega gætu þau farið þar sem var heimavist, en það var einhvern veginn meira bindandi, eins og þau upplifðu það.

Þegar þau hugsuðu um framhaldsnám, þá var ekki munur á því hvort þau ætluðu í framhaldsnám. Ég skoðaði þetta líka út frá því hversu langt væri í næsta framhaldsskóla. Það var ekki munur á því hvort þau ætluðu í framhaldsnám, en það var bara spurning hvort þau upplifðu að þau gætu lært það sem þau langaði til að læra. Og það er kannski það sem skiptir máli þegar kemur að brottfalli. Langflestir krakkar fara í framhaldsnám, en svo er spurning hvort þau útskrifist eða hvort þau detta úr námi.

Áhuginn skipti miklu máli, hvort þau væru með sér að vera ekki endilega komin af víkingum. Ég sá ekki mun beinlínis eftir því frá hvaða landi eða upprunalandi, kannski helst út af því að ég gat eiginlega ekki borið það saman. Ég vann með svo rosalega fjölbreyttan hóp og tók viðtöl við fyrstu kynslóð, aðra kynslóð og líka krakka með blandaðan bakgrunn.

Þegar þú talar um að vera svona, já, kannski augljóslega ekki komin af víkingum, þá var einhvern veginn auðveldara fyrir þau sem voru lík okkur, sem voru líklegri til að hugsa: „Ég er íslenskur.“ Krakkarnir töluðu ekki endilega um upprunann sinn. Það voru oft krakkar sem lýstu því: „Ég er Íslendingur og ég er líka …“ Þá nefndu þau kannski landið sem þau eða foreldrarnir voru fædd í. Þannig leyfðu þau sér þessa tvöföldu sjálfsmynd.

Á meðan vildu aðrir krakkar, kannski margir úr annarri kynslóð, segja: „Já, ég er Íslendingur, samt ekki alveg,“ af því að þau upplifðu kannski ekki þá sjálfsmynd, þótt þau upplifðu hana samt. Þau fá þá kannski skilaboðin frá samfélaginu að þau megi ekki alveg taka hana, þó þau hafi búið hér, gangi í skóla og séu náttúrulega hluti af samfélaginu.

Nákvæmlega eins og einn viðmælandinn, sem var fæddur á Íslandi, sagði: „Ég er Íslendingur, en sérðu mig, skilurðu?“ Þá var þetta það sem hann upplifði, út af því hvernig hann leit út, þó hann væri samt Íslendingur.

Framtíðarvæntingar og félagsauður

En þá kannski almennt varðandi börn og ungmenni, en líka sérstaklega börn sem eru af erlendum uppruna. Já, nákvæmlega eins og ég minntist á þarna með væntingagluggann. Væntingaglugginn er þá í rauninni það sem leyfir þér að sjá í framtíðinni. Þegar þú horfir í áttina að einhverjum öðrum sem þér finnst vera svolítið eins og þú, þá hugsarðu kannski fyrst: „Hann getur …“

Við framtíðarvæntingar til náms, þar sem endamörkin eru námið í rauninni. Ég meina, ef við spyrjum krakka: „Hvað ætlarðu að gera eftir grunnskóla?“ eða „Hvað langar þig að vera þegar þú ert orðin stór?“ Þá eru þetta alltaf framtíðarvæntingar. Ef við ímyndum okkur heim þar sem allir eru jafnir, þá dreymir okkur eitthvað, stefnum að því og hljótum að ná því í rauninni.

En svo er það svolítið þannig í fræðunum að rannsóknir hafa líka sýnt að ef við lítum á framtíðarvæntingar þannig, þá horfum við á

Að samfélagið sé jafnt, allir séu jafnir. En það er kannski ekki alveg þannig og við þurfum að gera ráð fyrir því að við búum kannski í lagskiptu, stéttaskiptu samfélagi, þar sem það hafa ekki allir sama aðgengi að auði. Í því tilviki er ég ekki bara að tala um peninga, heldur bara félagslegt net, sem dæmi.

Það að skilja hvernig svona menningarlegt kapítal virkar, skilurðu, bara það að skilja, sem dæmi, hvernig íslenskt menntakerfi virkar. Það er leikskóli, grunnskóli, menntaskóli, háskóli. Þú veist hvernig þessi skref eru í rauninni. Skólar hafa til dæmis oft ákveðið orðspor á sér, allt þetta sem við vitum einhvern veginn.

En ef þú kemur inn í samfélag þar sem þú þekkir ekki menntakerfið, þá hefurðu ekki þessa byrði, þetta kapítal, þennan auð í rauninni. Þannig að við verðum að gera ráð fyrir því að það hafi ekki allir sömu möguleika til að láta framtíðarvæntingar sínar ná fram að ganga. Rannsóknir hafa sýnt að það er oft munur þarna á milli. Það er svona ákveðin þversögn: þegar krakkar stefna að einhverju ákveðnu og eru búin að móta hugmyndir sínar út frá því sem þau sjá í samfélaginu, þá meta þau oft út frá stöðu annarra sem þau upplifa sem lík þeim, bæði stéttarstöðu annarra og því hvers konar starfsvettvang þau sjá fyrir sér að þau geti unnið á.

Ég man að þegar ég var búin að safna gögnunum og var að hugsa með öll þessi gögn í höndunum, þá langaði mig að móta þessar hugmyndir. Þá hlustaði ég á viðtal í Íslensku mannflórunni, hlaðvarpi, þar sem Svanhildur Björk tók viðtal við Dýrfinna Benita Basalan, listakonu.

Hún sagðist hafa fundið gamlar skólabækur þegar hún var í námi, þar sem þau voru spurð: „Hvað ætlar þú að vera þegar þú ert orðin stór?“ Hún segir: „Ég held ég verði bara skúra, eða þrífa klósett eða skúra.“ Hún lýsir því svo rosalega vel: Fólkið í kringum hana var að vinna við þrif eða í fiski, þannig að hún hélt að þetta væri það eina sem væri í boði fyrir hana.

Þetta skiptir svo ótrúlega miklu máli, að horfa til þess hvað krakkar sjá úti í samfélaginu. Við erum öll að máta okkur einhvern veginn, reyna að finna út hverjir eru eins og við og hvar við pössum inn og hverjir möguleikar okkar eru.

Ég velti því einmitt svolítið fyrir mér, bæði af því að á Íslandi er svo lítið og við þekkjum alla, sem er kannski líka rosalega fallegt. Ef þú ert í einhverju veseni hér og vel tengd í samfélaginu, þá áttu yfirleitt frænda eða bekkjarfélaga eða einhvern sem getur hjálpað þér. En kannski bæði þessi smæð og svona náungasamfélag...

Upplýsingar um skólakerfið

Já, sem sagt, það hefur orðið mjög mikil fjölgun á innflytjendum á tiltölulega stuttum tíma miðað við annars staðar, þannig að kerfin okkar eru kannski svolítið sein að bregðast við. Við erum enn að vinna eftir þessu: „Þau vita hvernig allt virkar, og ef þau vita það ekki, þá hljóta þau að eiga frænda sem getur reddað þeim.“ Er þetta eitthvað sem var svona algjört? Þetta kom fram í rannsókninni hjá mér.

Sum krakkar vissu ekki einu sinni hvað íslenska orðið yfir framhaldsskóla væri. Hvernig leita þau upplýsinga? Á þeim tíma, þegar ég tók viðtölin, árið 2019, voru heldur ekki rosalega miklar upplýsingar á ensku. Það hefur batnað. En hvernig leitarðu upplýsinga um framhaldsskólanám eða framhaldsnám þegar þú þekkir ekki einu sinni íslensku?

Orð í framhaldsskóla, bara svona sem dæmi. Þannig að þetta skiptir rosalega miklu máli og það kom mjög skýrt fram í gögnunum að það skipti máli að skólar ynnu eftir því að þegar verið er að ... og ekki bara ... næstu skref fyrir krakka sem eru að klára grunnskóla, þá gerum við ráð fyrir því að það sé hópur þarna úti sem þekki ekki neitt skólakerfið. Að við séum ekki með einhvern tékklista, bara: „Jú, við bókuðum fyrir þeim þennan skóla og þennan skóla,“ heldur að það sé búið að fara í grunninn og við tryggjum að allir fái upplýsingar.

Þetta kom til að mynda fram í gögnunum á þann hátt að ég tók viðtöl í sama skóla og spurði: „Hefur þú fengið einhverjar kynningar á næstu skrefum?“ Þá var kannski einn viðmælandi sem sagði: „Nei, ég hef fengið enga kynningu,“ og annar viðmælandi sem sagði: „Já, við höfum fengið,“ og nefndi svo þetta, þetta og þetta. Þannig að það þarf að tryggja að allir séu meðvitaðir um bæði það að nú séum við að fá fræðslu um næsta skref, skilurðu, og að allir séu með í þessari vegferð. Það sé tryggt að það sé grunnþekking áður en farið er af stað í að kynna næsta skref.

Þannig að krakkar með erlendan bakgrunn geta ekki öll gengið út frá því að foreldrarnir séu til staðar til þess að fylla í eyðurnar.

Niðurstöður rannsókna og viðtala

Já, líka þegar þú varst nú í aðferðafræðinámi, hvað fannst þér þú fá út úr því að vera með megindleg gögn eða könnunargögn? Hvað myndirðu segja að hafi verið áhugaverðustu niðurstöðurnar sem komu úr því, og kannski eitthvað sem kom þér á óvart?

Já, það var að vissu leyti það sem ég vildi gera. Með megindlegum gögnum vildi ég bera saman börn með erlendan bakgrunn og íslenskan bakgrunn.

Þannig að þú fékkst öll börnin í skólanum til að svara spurningalistanum? Þau stefndu á framhaldsnám strax að loknum grunnskóla. En þegar ég fór að taka inn í þætti eins og kyn og ég var með spurningu sem varðaði bakgrunn foreldra, hvort þau vissu hvað foreldrarnir væru menntaðir, og ég var með ákveðna mælingu á stöðu þeirra eða heimilishögum og hvort þau hefðu fengið kynningu frá skólanum sínum eða ekki, þá hvarf þessi munur þegar ég var búin að setja inn nokkrar breytur.

Já, þannig að þetta snýst í rauninni ekki um að vera af erlendum eða innlendum uppruna, heldur meira um stöðu barnanna og fjölskyldna þeirra, kannski sérstaklega þeirra sem eru af erlendum uppruna, sem er öðruvísi og kannski oft slakari eða erfiðari.

Svo talar þú um að þú viljir dýpka þetta með eigindlegu viðtölunum. Þá tókst þú 32 viðtöl. Hvað fannst þér mikilvægast að dýpka út frá því sem þú sást í megindlegu gögnunum?

En af einhverjum orsökum er það nú samt þannig að um það bil helmingur er fallinn úr námi eftir fjögur ár, og mig langar að reyna að sjá hvort það sé eitthvað sem við getum séð þarna með þeim ennþá í grunnskóla sem gæti útskýrt þetta. Eitt af því sem ég gerði var að vera með smásögur eða vinjettur, eina vinjettu þar sem ég lýsti aðstæðum nemanda sem langaði í áframhaldandi nám. Foreldrarnir áttu erfitt fjárhagslega og viðkomandi var því að velta fyrir sér hvort hann ætti að hætta eða ekki. Það var ótrúlega áhugavert, því viðmælahópurinn skiptist í rauninni í þrjá hópa. Einn hópur talaði bara um að menntun væri lykillinn að framtíðinni.

Hérna, það er miklu betra að klára framhaldsnám og svo getum við hjálpað foreldrunum. Svo var hópur númer tvö, og það er hópur sem ég sá svolítið svona í gegnum gangandi. Ég sá hann bæði í eigindlegu og í eigindlegu gögnunum, og það eru strákar með erlendan bakgrunn. Þá eru strákar

sem litu á menntun sem svolítið bara svona plan B, en plan A var samt ekkert sérstaklega skýrt. Það var bara svona: „Já, ef ekkert betra, einhvern veginn, ef ég finn betra, þá fer ég á áform.“ En þeir vissu kannski

ekkert endilega hvað þetta betra var, þannig að þeir sáu kannski ekki mikla möguleika eða miklar væntingar til framtíðarinnar. Þriðji hópurinn, það var hópurinn sem ég hafði — og þetta

þetta er þriðji hópurinn sem ég hafði miklar áhyggjur af. Það eru sem sagt krakkar sem á yfirborðinu segja: „Ég ætla að fara í áframhaldandi nám.“ Sum voru jafnvel bara ákveðin í hvað þau vildu læra og hvert þau vildu fara. Þau voru með ákveðnar hugmyndir um

næstu skref, en svo sögðu þau við mig: „En ef foreldrar mínir væru í þessari stöðu, þá myndi ég hætta og fara að vinna.“ Það sem þessi hópur átti sameiginlegt var að einhvers staðar í viðtalinu

höfðu öll talað um að fólk með erlendan bakgrunn hefði það skítt.

Að hérna, að þetta væri sem sagt bara — eða ekki bara fólk með erlendan bakgrunn, heldur að það væri oft erfitt að búa á Íslandi, skilurðu? Að það væru svona erfiðleikar einhvern veginn. Og þau töluðu bara

um að þau myndu ekki einu sinni hugsa sig tvisvar um að hætta í námi til að hjálpa foreldrum. Og það er þetta sem ég hef svo miklar áhyggjur af: hvað framtíðarvæntingarnar eru ótrúlega viðkvæmar. Á yfirborðinu eru þetta krakkar sem stefna áfram í nám, en um leið og eitthvað kemur upp á, þá getum við misst þau út úr skólakerfinu.

Hvernig samfélagið getur stutt börn

Já, þá komum við að því sem þú ert búin að segja. Það er kannski mjög líklegt að eitthvað komi upp á. En svona ef við hugsum aðeins praktískt með þetta, bæði út frá því að þú ert í félagsráðgjöf, frá því sjónarhorni, en líka bara stefnumótun: finnst þér eitthvað sem þú hefur lært sem við getum gert sem samfélag til að auðvelda krökkunum lífið og framtíðina, þannig að framtíðarvæntingarnar séu líklegri til að standast?

Já, sko, mér finnst svo mikilvægt að þetta sé ekki eitthvað svona „skólakerfið er að gera helling“. Ég held að við sem samfélag þurfum einmitt að eiga þetta samtal: hvað sjáum við fyrir okkur? Finnst okkur eðlilegt að við séum að sjá ákveðinn hóp með ákveðinn bakgrunn detta

úr námi, hafa þar með ekki eins rúma atvinnumöguleika, festast kannski frekar í ákveðnum störfum eða eiga tilhneigingu til þess að festast í ákveðnum störfum? Erum við bara sátt við það sem samfélag? Við verðum að eiga

það samtal og við verðum að finna leið til þess að styðja við þau í námi. Það eru bara hlutir, til að mynda: á höfuðborgarsvæðinu eru langflestir framhaldsskólar, en hvar eru heimavistirnar? Bara til þess að þessir krakkar — það geta ekki allir flutt til frænku eða frænda eða ömmu eða afa, skilurðu, til þess að fara í það nám

sem þeim dreymir um, eða opna á leiðir þannig að þau geti sótt sitt draumanám í þessum minni skólum. Við verðum að tryggja

að krakkar séu, óháð bakgrunni, með í því þegar við erum að kynna næstu skref, þegar þau eru ennþá í grunnskóla. Og svo er annað líka: það má ekki líta á kynningar á framhaldsnámi sem eitthvað sem gerist bara í tíunda bekk, af því að þegar krakki er í tíunda bekk, þá er þetta svo stórt skref fyrir krakka með erlendan bakgrunn að fara

í framhaldsnám. Við þurfum að horfa á þetta miklu fyrr, bara að það sé eðlilegt skref að fara í framhaldsskóla og klára það. Og við þurfum að brúa þetta bil betur á milli. Kannski eru margir skólar ennþá með eitthvað sem heitir til dæmis lífsleikni eða eitthvað slíkt, en kannski einhvern veginn að segja krökkum frá, jafnvel yngri krökkum, hvernig lífið virkar, hvernig

Kennsla og næstu rannsóknir

Framtíðin getur litið út. Hverjir eru möguleikarnir? Hvað er framhaldsskóli nákvæmlega? En nú ertu svona alveg komin heim með hálfan fótinn og byrjuð hér í HÍ í félagsráðgjöfinni. Hvernig, já, hvernig er það að vera orðin lektor og að vera hér að kenna og vinna með nemendum og bara vera í háskólanum?

Bara ótrúlega spennandi. Það er fátt skemmtilegra en að kenna, mér finnst það ótrúlega gaman.

Kannski af því að ég hef alltaf kennt megindlegar rannsóknaraðferðir, eða svona, það hefur verið að miklu leyti það sem ég hef kennt, og mér finnst það svo stórkostlega skemmtilegt.

En hérna, Angrín spyr mig fyrst, það er frábært. Og það er svona fyrst með svo gaman að vera komin með annan fótinn heim, og ég er bara ótrúlega spennt fyrir framhaldinu og því sem félagsráðgjafadeildin hefur upp á að bjóða og hlakka til að fara að kenna þar meira.

Já, svona kannski þá aðeins í lokin, bara velta svolítið fyrir okkur, já, svona kannski rannsóknum og hvernig það er. Þú sérð fyrir þér að þín rannsókn skipti máli í samfélaginu. Hvað sérðu svolítið fyrir þér næstu skref og svona? Ef þú hugsar, hvað finnst þér þú þurfa að leysa? Hvað finnst þér þú þurfa að vita meira um?

Já, þú ert bara í litlu spurningunum.

Ég hef sem sagt síðan 2020 unnið hjá Barna- og fjölskyldustofu og þannig að lífið hefur svolítið tekið mig kannski í þá áttina. Ég hef nú verið að vinna rannsókn á fósturbörnum, eða uppkomnum fósturbörnum, og er núna að leggja drög að annarri rannsókn á fósturforeldrum og upplifun fósturforeldra af fóstri eða bara af kerfinu í rauninni.

En ég er nú alltaf að horfa á þetta hérna, einstaklinga innan kerfisins, eða þannig.

Já, bara svona týpískur félagsfræðingur: allt um einstaklinga og samfélög.

Já, akkúrat. Þannig að, hérna, ætli ég sé ekki svona næstu skref. Allar rannsóknir sem ég hef unnið hafa alltaf tengst börnum á einn hátt, þannig að ég er nú alveg klárlega þar, sko. En núna hef ég svona svolítið verið að horfa meira í áttina að barnaverndinni.

Já, heyrðu, bara spennandi og við hlökkum til að fylgjast með því sem þú gerir. Og bara takk kærlega fyrir að vera með.

Takk, sömuleiðis.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Þessi doktorsritgerð Evu Daggar er með mikilvægan boðskap um mikilvægi þess að efla til muna stuðning við börn af erlendum uppruna. Sumt í viðtalinu er átakanlegt, t.d. hvernig börn fátækra erlendra foreldra hrökklast nánast óhjákvæmilega úr námi í framhaldsskóla til að fara að vinna, til að geta stutt foreldrana fjárhagslega, sem varla geta dregið fram lífið sökum fátæktar.
    1
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar