Samtal við samfélagið

Áhersl­ur og skipu­lag verka­lýðs­fé­laga

Hvergi á byggðu bóli er stéttarfélagsaðild eins mikil og Íslandi en um 90% launafólks hér á landi tilheyrir stéttarfélagi. Styrkur verkalýðshreyfinga hérlendis sem erlendis ræðst hins vegar ekki einungis af fjölda félagsbundinna meðlima heldur ekki síður af áherslum, skipulagi og því hvernig verkalýðsfélög kjósa að beita sér.
· Umsjón: David Reimer, Guðmundur Ævar Oddsson, Sigrún Ólafsdóttir

Til að fá innsýn inn í verkalýðsmál á Íslandi, verkalýðs- og félagshreyfingar í Suður Ameríku og fleira er í þessum þætti rætt við Adam Fishwick, rannsóknastjóra og gestaprófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Adam er frá Englandi en hann varði doktorsritgerð sína í alþjóðasamskiptum við Sussex háskóla árið 2015. Adam starfaði sem kennari við De Montfort háskóla í Leiceister á Englandi frá 2015 til 2022 en hann hóf störf við Háskólann á Akureyri seinna sama ár. Sérsvið Adams eru verkalýðsfélög, þróunarmál, verkalýðs- og félagshreyfingar í Suður Ameríku og róttækir valkostir við ríkjandi efnahags- og þjóðskipulag. Doktorsritgerð hans „Industrialisation and the Working Class: The Contested Trajectories of ISI in Chile and Argentina“ fjallar til að mynda um tengsl verkalýðshreyfingarinnar, ríkisvaldsins og þróunar. Jafnframt vinnur Adam um þessar mundir að bók um sama efni sem hefur vinnuheitið „Contested Development: Radical Labour and the State in Twentieth Century Chile and Argentina“. Loks hefur Adam beint sjónum sínum að verkalýðsmálum á Íslandi hin síðari ár og vinnur um þessar mundir að rannsókn á Eflingu – stéttarfélagi. Guðmundur Oddsson prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri settist niður með Adam en í spjalli þeirra kennir ýmissa grasa, frá verkalýðsmálum til rannsókna á íslenska geimgeiranum.

Labor organizing in Iceland and beyond

Iceland has the world’s highest unionization rates, with around 90% of workers belonging to a union. However, the strength of labor movements is not only determined by union density but also by how unions organize and operate.

To gain insight into union organizing in Iceland, labor and social movements in South America, and more, we interviewed Adam Fishwick, Research Director and Visiting Professor at the Faculty of Social Sciences at the University of Akureyri (UNAK). Adam is from the UK and earned his PhD in International Relations from the University of Sussex in 2015. Adam worked as a Lecturer and Associate Professor at De Montfort University in Leicester, England, from 2015 to 2022, before joining UNAK later that same year. Adam’s areas of expertise include union organizing, international political economy and development, labor and social movements in South America, and radical alternative forms of social and economic organization. His dissertation, “Industrialisation and the Working Class: The Contested Trajectories of ISI in Chile and Argentina,” for example, centers on the relationship between the labor movement, the state, and development. Moreover, in recent years, Adam has turned his sights on labor issues in Iceland and is currently studying labor renewal within the labor union, Efling. Guðmundur Oddsson, Professor of Sociology at the University of Akureyri, interviewed Adam about everything from labor organizing to the Icelandic space sector. 

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Úkraína slær til baka: Köngulóarvefurinn og tímamótaárásir
    Úkraínuskýrslan #29 · 11:17

    Úkraína slær til baka: Köngu­ló­ar­vef­ur­inn og tíma­móta­árás­ir

    „Þið getið gefið Trump heiðurinn að hugmyndinni“
    Fréttir22:06

    „Þið get­ið gef­ið Trump heið­ur­inn að hug­mynd­inni“

    Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri
    Samtal við samfélagið #11 · 54:41

    Sjálf­hverfa sam­fé­laga og þjóð­ern­is­hyggja í heims­far­aldri

    Umbúðir stjórnmálanna
    Sif · 05:55

    Um­búð­ir stjórn­mál­anna