Þjóðhættir
Þjóðhættir #6442:11

Draumar, huldu­fólk og rökkrin: Þjóð­sagnir íslenskra kvenna

Gestur þáttarins er Júlíana Þóra Magnúsdóttir doktor í þjóðfræði, en doktors rannsókn Júlíönu bar yfirskriftina „Með eigin röddum: Sagnahefðir íslenskra kvenna undir lok nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar“. Í þættinum segir Júlíana frá rannsókn sinni, en hún greindi sagnir 200 kvenna, sem varðveittar eru í hljóðritasafni Árnastofnunnar. Þetta eru sagnir sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði þegar hann ferðaðist um landið. Hann safnaði þó ekki bara sögnunum heldur líka mikilvægum upplýsingum um samhengi þeirra, sem Júlíana greindi í rannsóknum sínum.
Hlustaðu · brot42:11 ·
· Umsjón: Dag­rún Ósk Jóns­dóttir, Sigurlaug Dagsdóttir

Í þættinum segir Júlíana frá rannsókn sinni, en hún greindi sagnir 200 kvenna, sem varðveittar eru í hljóðritasafni Árnastofnunnar. Þetta eru sagnir sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði þegar hann ferðaðist um landið. Hann safnaði þó ekki bara sögnunum heldur líka mikilvægum upplýsingum um samhengi þeirra, sem Júlíana greindi í rannsóknum sínum.

Niðurstöður Júlíönu benda til þess að konur segi allar gerðir sagna, en þó má sjá mun á sagnasjóðum karla og kvenna. Konur segja til að mynda frekar reynslusagnir, huldufólkssagnir og draumsagnir. Þá kemur Júlíana líka inná rými sagnanna, hvar þær gerast og hvað sagnir kvenna geta sagt um stöðu þeirra í samfélaginu.

Í rannsóknum sínum beinir Júlíana líka sjónum sínum að sagnaskemmtunum og hefur fjallað sérstaklega um rökkrin, sem voru skemmtanir sem fóru fram á undan kvöldvökunni í sveitasamfélaginu. Þá sögðu konur börnum og öðrum sem ekki hvíldu sig sögur í myrkrinu. Þá hefur Júlíana einnig skoðað hreyfanleika kvenna og þeirra hlut í útbreiðslu sagna og kemst að þeirri niðurstöðu að margar konur fluttu ört milli byggðalaga, þá segir Júlíana frá því hvaða áhrif þetta hefur á sagnasjóði kvennanna.

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, kennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefðir hjá Þjóðminjasafni Íslands.

Handrit

5.798 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Rannsókn á sagnakonum

Komið þið sæl og velkomin í Þjóðhætti. Hjá okkur í dag er Júlíana Þóra Magnúsdóttir, doktor í þjóðfræði. Rannsókn Júlíönu bar yfirskriftina „Með eigin röddum: Sagnahefðir íslenskra kvenna undir lok nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar.“ Og við ætlum að fræðast aðeins um þessa rannsókn í þættinum í dag. Vertu velkomin, Júlíana.

Þakka þér fyrir.

En áður en við dembum okkur í doktorsrannsóknina þá langar okkur aðeins að…

Það var nú eiginlega bara þannig að það var svona stór námsvísir í háskólanum. Ég ætlaði í sagnfræðina. Ég byrjaði að lesa aftan frá.

Og ég geri þetta svona oft ef ég hef uppflettirit eða eitthvað svoleiðis, þá byrja ég alltaf aftast. Ég veit ekki af hverju ég geri það. Þá er þjóðfræðin auðvitað það fyrsta sem ég sá, sko, og leist rosa vel á þetta. Sá þarna einhverja áfanga eins og norræna trú og sagnanámskeið, sem mér fannst mjög spennandi, af því að ég var strax komin með áhuga á svona sögnum.

Manni í framhaldsskóla? Jarðfræðiritgerð sem var eiginlega svona þjóðfræðiritgerð um allar þjóðsögurnar um jarðfræðina og eldstöðvarnar, allar þjóðsögurnar sem tengdust þeim einhvern veginn inn í jarðfræðiritgerðinni. Það var mjög fyndið.

Það er ljóst að þetta hefur stefnt í þetta mjög lengi, sko.

Með fullri virðingu fyrir ævintýrunum sem ég held ég…

… er skemmtileg líka. Ég ákvað að vinna með segulbandsupptökurnar hans Hallfreðar Arnar Eiríkssonar, sem eru í rauninni örugglega bara besta heimildin sem þú getur fundið um íslenskar sagnaskemmtanir í fyrri tíð. Hann hafði svo ríkan áhuga á sagnaskemmtunum og hafði lært úti í Prag og í Dölunum á sínum tíma, sextíu og eitthvað eða fimmtíu og eitthvað um sextugt.

Þar hafði hann einmitt kynnst þessum áherslum á sagnafólk og hann kemur með alveg ferska sýn inn í safnið einhvern veginn. Hann spyr svo mikið um aðstæður sagnaskemmtananna og miðlun sagna: frá hverjum lærðu þau sagnirnar og þess háttar. Þannig að það eru æðislegar samhengistengdar upplýsingar sem fylgja sögnunum þegar maður notar þetta safn. Ég held að maður finni ekkert svoleiðis annars staðar.

Og þetta eru náttúrlega bara, eins og ég segi, mörg þúsund klukkutímar af upptökum. Þannig að ég þurfti að einskorða mig við 200 konur, og svo kom í ljós að það var bara óyfirstíganlegt. Það var ekki hægt. Þá var ég líka ennþá að grafa í kjallaranum í Árnastofnun.

Þannig að ég ákvað að afmarka mig við 200 konur og tók síðan bara lítinn samanburðarhóp af körlum til að nota þegar ég fór að greina efnistekið inntak sagnanna.

Af því að ég þurfti auðvitað að hafa smá hóp af körlum líka til að sjá hvernig sagnirnar hjá konunum væru öðruvísi. Þannig að þetta voru 225 heimildarmenn Hallfreðar sem ég tók til rannsóknar þegar upp var staðið. Þetta var handan alls lands, var það ekki?

Hann tók alls staðar, fór alla leið um landið, ef svo má segja. Reyndar svolítið misoft eftir landshlutum. Það eru ákveðin svæði sem fengu kannski aðeins minni umfjöllun.

Hjá honum, eða svona yfirferð, en hann fór mjög víða og talaði við fólk út um allt land. Kannski minnst á Austurlandi.

En já, þannig að það gaf líka ákveðin tækifæri til þess að skoða landið allt, sem ég reyndi kannski ekki nógu mikið í doktorsverkefninu mínu. Það er eitt af því sem bíður og væri mjög gaman að gera betur, af því að þetta eru svo margir heimildarmenn. Það væri rosalega gaman að skoða hvernig sagnahefðin var öðruvísi á Austurlandi en á Vestfjörðum. Þannig að það er eitt af verkefnunum sem bíður og hægt er að vinna upp úr þessum gagnabanka sem ég bjó til.

Sagnategundir og kynjamunur

Skoða hennar þennan, ætla að segja, allar gerðir af sögnum og hérna, sem var útskýrt þegar ég fór að sundurgreina sagnirnar.

Þá notaði ég, af því að það eru til svona 200 undirflokkar af sögnum, ef strax er til tekið, sko, og ég ákvað: Ég ætlaði ekkert að fara svo langt, sko. Þannig að ég greindi á milli nokkurra svona megintegunda af sögnum.

Ég var að skoða bæði það sem ég kalla býflugsins, eða trúarsagnir, sem eru þá sagnir um þjóðtrú.

Og þær eru með undirflokk sem heitir reynslufrásagnir, sem eru þá fyrst og fremst reynslufrásagnir af dulrænum toga. Svo eru þessar stereótýpísku sagnir sem gerast lengra aftur í fortíðinni, sem við tölum venjulega um sem bara trúarsagnir. Svo eru sögulegar sagnir, sem eru svona á yfirborðinu allavega veraldlegar og gefa sig út fyrir að fjalla svona um sögulegt efni. Og svo eru það æviminningar, sem eru þá svona reynslufrásagnir af veraldlegum toga, sem kom í ljós að þær eru mjög stórar og hafa

ekki fengið mikla umfjöllun í þjóðsagnasafninu, af því að lengi vel áttuðu menn sig ekki á því að þessar frásagnir eru líka hefðbundnar að einhverju leyti; þar þarf að segja söguefnin og annað, formið og allt þetta. Og svo var ég með það sem ég kalla grímsögur, sem eru sögur sem gerast hérna í þessum heimi, en eru mjög ólíklegar til að hafa átt sér stað með þeim hætti sem frá er sagt. Þannig, þetta á svona aðaltegunda… Það er í rauninni bara í takt við það sem sést í erlendum rannsóknum víðar, þar sem konur

virðast hafa meira leyfi til að tala um yfirnáttúru heldur en karlar, af því að í karlmennskuumræðum úti í Evrópu og í vestrænum heiminum eru karlar alltaf einhvern veginn tengdir við þessa „rationality“ eða þessa rökhugsun; þurfa að vera svona: „Ég var rökfastur.“

Og það mátti ekki gera sig að fífli með því að trúa einhverju og svo framvegis, á meðan við konurnar höfum meira rými til að tala um það sem ekki er rökrétt, eða í svona þeirri orðræðu. Þannig að þetta væri í rauninni bara alveg í takt við það sem sést í hinum rannsóknunum. Konurnar voru miklu meira í reynslufrásögnunum. Efnistök voru líka aðeins öðruvísi, sem var mjög áhugavert líka. Konur sögðu til dæmis mjög mikið af huldufólkssögum, og þegar ég tók til skoðunar 700 og eitthvað sagnir sem konur lærðu frá öðrum konum, þá hækkaði þetta hlutfall alveg gífurlega.

Þannig að þetta er greinilega einhver frásagnartegund sem konur hafa verið svolítið hrifnar af. Karlarnir sögðu engar svoleiðis sögur, sem segir okkur líka það að sennilega á fyrri öldum hefur þetta alltaf verið einhver kvennategund af frásagnaefni. Og það er svolítið áhugavert líka, af því að flökkusagnir íslenskar fjalla eiginlega mjög mikið um huldufólk. Þetta eru rosalega sterkar konusögur, fjalla mjög mikið um samskipti kvenna, þarf huldukonur og mennskar konur, og þetta eru svona vandamál sem þarf að leysa á vettvangi heimilisins svolítið mikið. Þannig að þetta

er svona frásagnarefni sem maður getur ímyndað sér að höfði mjög sterkt til kvenna, og meira að segja huldukarlar eru einhvern veginn dottnir út úr sagnahefðinni, allavega á seinni tímum.

Annað efni sem konurnar reyndust vera marktækt hrifnari af heldur en karlar voru draumafrásagnir, sem mér fannst líka mjög áhugavert, af því að hérna þetta er eitt af því: konurnar eru alltaf að semja einhvern veginn. Þær eru svona að semja á milli staða, hvað má segja. Þær eru að flytja sig og tengja sig við fjarlæga staði, sem ég get kannski komið betur að, en það tengist að einhverju leyti því að þær voru miklu víðförlari heldur en við héldum, en við héldum.

En helmingur hafði búið í öðru sveitarfélagi en þar sem þær voru búsettar sem fullorðnar, þannig að þær eru alltaf að reyna að yfirstíga þessa fjarlægð frá uppeldislóðunum og fjölskyldu sinni og atburðum sem gerast þar. Draumafrásagnir komu mjög sterkt inn á þetta, þannig að þær fjalla mjög oft um lífsfarir á heimaslóðunum og þess háttar. Þannig að það er svolítið áhugavert frásagnarefni, að draumar gefa manni auðvitað kost á því að yfirstíga fjarlægðir, já, fjarlægðir, og einhvern veginn eiga aðild að málum sem maður á annars ekki aðgang að.

Draumar og sjóslys

Margar konur áttu ekki alltaf bundnar við heimilið og einhvers staðar út í jaðri, einhvers staðar langt frá fólkinu sínu gjarnan. Er þetta kannski líka eins með þessar draumafrásagnir? Er þetta það sama, að konum sé leyft meira en körlum kannski að tala um drauma sem einhvers konar fyrirboða eða samskipti við eitthvað annað, eða…

Já, mér finnst það bara mjög líklegt að það komi að því að draumafrásagnirnar eru vissulega yfirleitt alltaf reynslufrásagnir sem konur segja mjög mikið af, þannig að sjálfsagt á það einhvern þátt í þessu. Áhugavert líka: Það er svo mikið af þessum draumafrásögnum sem fjalla um sjóslys.

Ég var svolítið hissa þegar ég fór að greina rýmið í frásögnum hjá konunum og körlunum. Ég hélt að ég ætti von á miklu meira af frásögnum sem gerðust einhvers staðar í villtum rýmum, svona uppi á fjöllum eða út á sjó. Þær gerðu það vissulega; 60 prósent sagna karlanna gerast á fjöllum, úti á sjó eða einhvers staðar annars staðar en heima.

Á meðan kom í ljós að ég held að 30–40 prósent af kvennasögunum gerðust líka í slíkum rýmum, og þá voru langflestar að gerast úti á sjó. Þá fór maður að skoða: Ókei, þetta er svona mikið og þetta er svona mikið og þetta er svona mikið. Við erum eiginlega aldrei þarna; af hverju er það í 40 prósent sagnanna þeirra? Þá fór ég einmitt og skoðaði efnistök sagnanna betur og þá kom í ljós að mjög stór hluti af þessu voru þessar draumafrásagnir.

Á meðan karlarnir segja frá sjóslysum beint, atburðinum eins og hann gerðist, bara báturinn fór þarna, hlekktist á og sökk, og allt þetta, þá fara konurnar inn í atburðinn gegnum drauminn og draumafrásögnina, sem er mjög áhugavert að skoða líka. Þá byrjar frásögnin heima, þar sem einhver fer að sofa, og svo byrjar draumurinn og atburðarásin heldur áfram út á sjó. Þannig að þessar sagnir eru tvírýmis, sem er mjög áhugavert og sérstakt, oft í sögnum kvenna.

Einmitt hvernig þessi efnistök endurspegla líf kvennanna sem segja sögurnar. Það gerir það algjörlega, og reynslan og atburðasviðið poppa einhvern veginn upp í sögunum. Það er eitt líka sem mér finnst áhugavert, sem ég held að sé alveg rými fyrir að skoða betur. Mér fannst mjög skrýtið þegar í ljós kom, þegar ég fór að greina sögupersónurnar og draugasögurnar sérstaklega, að karlarnir sögðu miklu meira af sögum sem fjölluðu um kvendrauga, á meðan konurnar sögðu meira af sögum sem fjölluðu um framliðna karla.

Þá fór ég að spá: Hvernig stendur á þessu? Hvað er að gerast hér? Þá fór ég aftur í sögurnar og skoðaði þetta betur. Þá kom í ljós að karlarnir segja svo mikið af svona sögusögnum, sögum sem gerast fyrir mjög löngu og eru með svona mjög hefðbundnum draugum, kvendraugum, Höfðabrekku-Jóku og einhverjum svona gömlum konum.

Á meðan voru konurnar auðvitað að segja svo mikið af svipasögum og reynslufrásögnum sem fjölluðu um það þegar einhverjir karlmenn í fjölskyldunni, oft og tíðum, fóru á fjöll og dóu og poppuðu svo upp í draumum og eitthvað þess háttar. Þær voru að segja svipasagnir, og það voru framliðnir ættingjar og vinir aðallega í þeirra sögnum, á meðan það voru gamlir draugar í karlasögunum. Þetta hefur kynjavinkil líka, auðvitað, því að í gamla bændasamfélaginu dó ansi margt fólk af svona slysadauða. Þarna erum við aftur komin inn á hvernig reynsluheimurinn skilur einhvern veginn eftir ólík spor inni í sagnaheiminum.

Rökkrið og sagnaskemmtanir

En svo skrifarðu líka um rökkursögur. Já, geturðu sagt okkur aðeins frá því? Mér finnst þetta alveg sérstaklega áhugavert, þetta með ljósið og myrkrið og þessar íslensku aðstæður.

Já, og hvernig þær móta sögurnar algjörlega og sagnaskemmtanirnar að miklu leyti. Ég fór nær auðvitað og skoðaði kvöldvökuna, því að kvöldvakan er alltaf svona risastór í menningarvitund Íslendinga. Einhvern veginn, þegar maður les þessa spurningalista á Þjóðháttasafninu, þá lítur út fyrir að þetta sé bara svona ein skemmtun. Það var svolítið erfitt að átta sig á hver er að gera hvað innan rýmisins á kvöldvökunni.

Svo fór ég og skoðaði frásagnirnar, af því að Hallfreður biður svo mikið um lýsingar á sagnaskemmtunum í bóndabænum og í baðstofunni, meðal annars. Það eru svona fimmtíu frásagnir, held ég, frá heimildafólkinu sem ég fann, sem tala um kvöldvökuna og sagnaskemmtanir eða munnlegar sagnaskemmtanir á vetrarnóttum í baðstofunni. Munnlegu sagnaskemmtanirnar eru alltaf tengdar tímabilinu sem vísað er til sem rökkursins.

Og rökkrið er svona tími í baðstofunni, af því að þetta eru mjög dimmar vistarverur og þá þurfti að spara ljósið á meðan það var ekki raflýsing, þannig að þegar karlarnir komu inn

Frá útistörfunum fara þeir og hvíla sig fyrir kvöldvökuna og allt erfiðið sem karlana bíður þar.

Á meðan þarf auðvitað að hafa ofan af fyrir öðru heimilisfólki inni á bænum, bæði börnum og ungmennum og öðru sem þarf ekki að sofa. Þá var það venjulega kona í þessum frásögnum. Konur voru yfirleitt nefndar fjórum sinnum oftar en karlar sem sögumenn á þessum samkomum. Þær báru þá ábyrgð á því að skemmta einhvers staðar í horni baðstofunnar, í hálfum hljóðum, með sagnaskemmtun og sögur á meðan karlarnir sváfu.

Oft á tíðum, það eru vissulega undantekningar, en þetta á svona við um algilda formið. Baðstofan er í rauninni, hvað má segja, svona prívat vistaverur, af því að þetta er eitt og sama rýmið.

Í rauninni er ljósið sem stýrir því hvort baðstofan er svona prívat rými eða opinber vinnustaður, af því að þetta var auðvitað vinnustaður líka, og miklu fleiri þar en bara heimilisfólkið; þar var vinnufólk og annað.

Þarna eru gestir hugsanlega og þeir slæðast inn og deila þessu rými. Þegar ljósin eru kveikt taka karlarnir svolítið við að skemmta, og þá er það yfirleitt upplestur. Hallfreður spyr um þetta: „En voru þá ekki sagðar sögur á kvöldvökunni sjálfri?“ Þá er alltaf sagt: „Jú, nema ef það voru gestir.“ Það var bara sagt í rökrinu, en lesið upphátt. Ég leit svo á að karlarnir gerðu það af því að þeir voru slæptir og nenntu ekki að vinna við prjónana eða eitthvað svona, kannski skiljanlega.

Þannig að við erum með svona flutningsrými eða sviðslistarými, þar sem, þó þetta sé eitt og sama rýmið, fellur það í tvo flokka. Kvennaskemmtunin er svona óupplýst og prívat, í einhverju tómi einhvers staðar úti í horni, á meðan karlarnir skemmta með upplestri í upplýstu almannarýminu. Þetta er kunnuglegt stef þegar maður fer að hugsa út í það. Já, þetta rímar við hugmyndir um að karlar hafi einmitt ráðið yfir opinbera rýminu og konur hafi verið í prívatinu.

Þarna eru tvenns konar fræðsla líka. Það er annars vegar svona veraldleg lærdómsfræðsla og hins vegar sagnaskemmtun sem snýst yfirnáttúrlega og allt þetta sem bara konur mega gera, sem er yfirnáttúrulegt, samber sagnarhefðin sjálf og hvernig hún lítur út og sagnategundirnar. En já, þetta er mjög skemmtilegt. Allavega veltir maður fyrir sér hversu margtækt þetta er og hvernig þetta var áður. Það væri gaman að skoða, en ég veit ekki hvort við getum það, því þið vitið hversu miklar heimildir við höfum.

Einhvern veginn hafa þessi rökkur og rökkurskemmtunin, sem er í rauninni skemmtun út af fyrir sig, fallið á milli í öllum svona skriflegum listum, sem eru auðvitað aðallega samdir af körlum á sínum tíma. Þannig að hún rennur einhvern veginn inn í hugmyndir um kvöldvökuna og þá fara konurnar einhvern veginn út líka sem skemmtikraftar, sem er ferlega klassískt.

En það er mjög áhugavert að þetta birtist þarna einhvern veginn, og mikilvægt að halda rökkurfræðum á lofti, held ég. Já, kynna þau aftur inn. Þetta eru mjög sérstakar aðstæður líka, því þegar maður fer að spá í því er þetta svo rökréttur tími til að segja eitthvað munnlega. Þú getur ekki lesið, þú getur ekki unnið, þú getur ekki gert neitt. Þannig að þetta er alveg ekta tími fyrir sagnaskemmtanir.

Svo sá ég einhverjar lýsingar líka þar sem kona var að lýsa því hvað gerðist þegar ungmennafélögin byrjuðu í upphafi 20. aldar að kenna fólki að koma fram og segja frá. Þá var þetta þannig að þeir sem voru óframfærnir og áttu erfitt með að tala fyrir framan annað fólk, þá var slökkt ljósið svo þeir myndu koma. Ég held að það hafi bara verið orðið svona inngróið. Ég held að rökkrið hlífi sagnamanninum svolítið.

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því hvernig þú lítur út á meðan.

Hreyfanlegar konur og sagnir

En þegar áhugast á þig, einmitt, þú ert nú að segja okkur hvað safnast mikið af samhengisupplýsingum líka þegar Hallfreður er að safna sagnaskemmtuninni og svona. En þú varst líka að setja svolítið sagnafólkið í annað svona sitt.

… eigið samhengi af þeirra lífshlaupi í raun og veru, og talaðir aðeins um áðan kannski. Okkur hættir aðeins til að horfa á konur í fortíðinni sem svona kyrrsettar á einhvern hátt. Þær voru náttúrulega tengdar bænum og heimilinu og svona.

En þú kemst samt að því að þær hafi verið mun hreyfanlegri á einhvern hátt, ekki satt? Já, allt öðruvísi. Það var eiginlega það sem kom mest á óvart, af því að mín hugmynd um konur áður en ég byrjaði kemur náttúrlega úr þessum sagnfræðilegu lýsingum, eins og Brún og fleiri, sem eru að lýsa þessu, ferðabókahöfundar sem eru að lýsa aðstæðum á Íslandi.

Þá kemur oft fram að konurnar fóru aldrei að heiman, fóru í kaupstað einu sinni á ævinni eða eitthvað þess háttar. Það er svona hugmyndin um konur, að þær séu bara á heimilinu.

Þegar konur eru þannig, að þegar konur tengjast einhvern veginn útbreiðslu sagna, þurfa þær ekkert að hafa hlutverk í hefðinni ef þær eru bara inni á heimilinu allan tímann. En svo þegar ég fór að skoða þetta kemur í ljós að þær hafa kannski þennan hreyfanleika sem einkenndi karla á þessum sama tíma, sem fóru auðvitað í ver og í kaupstað og allt þetta. Það er kallað svona hversdagslegur hreyfanleiki.

En þær voru svona víðförlar, mjög viðförlar, í þeirri merkingu að þær fluttu mjög mikið byggðarlaga á milli. Og þetta er mjög áhugavert. Ég held að það hafi verið 40 prósent af heimildarkonunum sem enduðu á því að búa einhvers staðar í öðru sveitarfélagi eða öðrum landshluta heldur en þar sem þær ólust upp sem börn.

Auðvitað þýðir þetta líka það að konur hafa allt öðruvísi samband við samfélögin sín heldur en karlarnir. Karlarnir búa auðvitað á sínum heimaóðalsjörðum í gamla bændasamfélaginu. Þó að konur hafi vissulega mátt erfa, þá var yfirleitt karlinn sem var bóndinn á jörðinni, þannig að þær urðu ekkjur og tóku við búskap.

Þannig að karlarnir fóru svo og náðu sér í konur sem komu frá öðrum byggðarlögum, og þá komu þær auðvitað með nýja sagnahefð inn á nýja svæðið. Þetta er svolítið áhugavert af því að fólk sem setur fram þessar kenningar um virka hefðarbera og útbreiðslu sagna talar svolítið um þetta: sögur ferðast ekki með þessum tilviljunarkenndu samskiptum sem einkenndu reyndar svolítið karlana í verferðum og allt þetta, heldur með búsetubreytingu sagnabálsins.

Þar eru konurnar þannig að þær eru að koma með nýjar sögur í ný samfélög. Þessar hreyfanlegu konur, sem voru 40 prósent kvenna sem fluttu sumar hverjar mörgum sinnum á milli, voru greinilega með stærri sagnasjóði heldur en hinar konurnar. Það var miklu hærra hlutfall þeirra kvenna sem voru með yfir 20 sagnir. Þetta hefur greinilega áhrif hvað það varðar, og auðvitað er verið að ná nýjum sögnum inn í sagnasjóðinn.

Svo eru náttúrlega líka ýmsar aðrar konur sem eru mjög hreyfanlegar í nærsamfélaginu. Það er kannski svolítið nýtt reyndar á þessum tíma, í byrjun 20. aldar. Þá eru komnar ljósmæður; þær eru reyndar mun eldri, yfirsetukonurnar á undan, þannig að þær eru sennilega með sterkustu ræturnar í þessum staðbundna hreyfanleika. Þær voru yfirleitt allar með mjög stóra sagnasjóði, þannig að það er eitthvað sammerkt þarna á milli.

Síðan voru náttúrlega komnar líka kennslukonur, farskólakennarar, sem reyndar hættu flestar að vinna þegar þær giftu sig, og síðan hjúkrunarkonur sem voru líka með óhemjustóra sagnasjóði. Þær eru næstum nýjar á þessum tíma líka. Þannig að það eru komnir ýmsir skemmtilegir fletir fyrir konur á þessum tíma sem hafa áhrif líka á sagnamennskuna.

En þegar þær eru að flytjast svona á milli staða, og núna eru sagnir oft þannig að þær eru staðsettar einhvers staðar í landslaginu eða umhverfinu, segja þær þá líka sögur frá sínum gömlu heimaslóðum? Eða gerast sögurnar þeirra þá á fleiri stöðum?

Já, en það var einmitt mjög stór hluti af sögunum sem konurnar sögðu einhverjar sagnir sem þær höfðu greinilega komið inn í sagnasöguna sína sem börn. Þannig að þær sögðu eiginlega aðallega sögur frá heimabyggðunum sínum frekar en þessum nýju samfélögum sem þær voru komnar í.

En það tala mjög margir heimildarmenn um það að það var svo áhugavert þegar það kom aðkomufólk einhvers staðar frá, og þá var það alltaf látið segja frá lífinu á öðrum stöðum. Þannig að það er eftirspurn eftir sögum frá öðrum stöðum, sem auðvitað gefur þessum konum bara mjög gott forskot hvað varðar sagnamennskuna, svona til að víkka sjóndeildarhringinn og kynnast.

Þær voru þá að flytjast á milli, náttúrlega, þegar þær giftu sig og svo mögulega í einhverjum öðrum tækifærum. Já, þær eru einungis… Kom meira að segja þessar konur sem enduðu í sínum upphafsbyggðarlögum, sem gerðist alveg eins og þau heyra þar á, 60 prósent af konunum að þær hefðu töluverða hreyfileika. Þegar ég fór að skoða, gerði ég svona kvarða: hvert skipti sem þú ferð í aðra sveit færðu eitt stig. Þannig að þetta var svona mobility-kvarði.

Þær fóru líka mjög oft í aðrar sveitir tímabundið sem vinnukonur, og þá var það hluti af menntun kvenna að komast á og sjá um sig. Það var greinilega mikil áhersla á það, heyri maður, hvað það var mikil forréttindi að komast í aðra sveit og fá að vera vinnukona þar í eitt ár og kynnast því hvernig lífshættir voru annars staðar. En þetta var yfirleitt bara í næsta nágrenni og innan landshlutanna, á meðan þessar hreyfanlegu konur sem giftust fóru oft bara þvert yfir landið.

Oft var talað í gömlum rannsóknum um að sjómenn væru svo mikilvægir fyrir útbreiðslu sagna, fyrir það að fara í ver og læra sagnir og koma með þær til baka. En þetta er eiginlega þannig: sjómaður fór í ver og kom með sagnakonu til baka. Það er eiginlega réttarlag.

En það var mjög skondið, sko, að mjög margar þeirra giftust þannig: þær kynntust manninum sínum sem kom sem sjómaður og fluttu aftur út á landsbyggðina, eða sem sagt í sveit með honum.

Þrjár sagnakonur

En nú varstu að skoða alveg 200 sagnakonur, sem er fullt, og þá færðu góða yfirsýn yfir hverjar þetta voru. En kafaðirðu eitthvað sérstaklega, tókstðu einhverjar svona út fyrir? Já, ég ákvað að taka þrjár, af því að þetta snýst auðvitað um tölfræði og tölur segja manni bara eitthvað um yfirborðið og gefa vísbendingar sem maður getur farið í efnið út frá, kafað betur ofan í og skoðað hvað þetta er. Það sem ég gerði var að ég tók þrjár sögukonur sem voru með stóran sagnasjóð, fleiri en 20 sagnir, setti þær eiginlega í pott og tók bara þrjár svona kerfisbundið.

En reyndar vildi ég fá eina gifta, svona venjulega gifta, sem sagt húsmóður einhvers staðar, sem er auðvitað það sem maður hugsar þegar maður hugsar um konur í dreifbýli: þetta húsmóður- og mæðrahlutverk sem við höfum svolitla tilhneigingu til að einblína á. Það sem ég gerði var að henda miðum í pottinn aftur þar til ég fékk eina gifta sem var ekki með starf. En þetta reyndust alveg ótrúlega skemmtilegar konur, og í ljós kom að þær voru allar með ákveðna fleti í sagnasjóðnum sem voru meira eins og hjá köllunum, sko.

Ein þeirra var ljósmóðir frá Miklaholtshreppi, hún Þorbjörg Guðmundsdóttir. Hún var ljósmóðir í Miklaholtshreppi og síðar á Ólafsvík, með mjög stóra sagnasjóði, og til eru miklar heimildir um þá konu. Hún gaf út ævisögu sína, sem er mjög óvenjulegt á þessum tíma, að konur skyldu hafa skrifað ævisögu. Hún kom út á meðan hún var enn á lífi og var mjög opinber á ská, þannig að það eru mjög skemmtilegar samhengisupplýsingar sem koma fram í sagnasafni hennar. Hún sagði mjög mikið af sögum sem gerðust á hálendinu og var svona svolítið eins og karlarnir þar. Hún hafði líka greinilega tekið sagnir inn í sagnasjóðinn frá fólki utan heimilis meira en innan heimilis, sem konur almennt gera.

Það var miklu meira áberandi hvað þær hefðu ríka tilhneigingu til þess að taka sagnir af öðrum konum sem deildu með þeim heimili, á meðan karlarnir lærðu aðallega sagnir af öðrum körlum sem voru utan heimilisins. Þetta var einn af þessum kynjamun á sögnunum. En hún hafði greinilega náð sér í sagnir í sagnasjóð sinn sem komu utan heimilis, enda var hún ljósmóðir og var alltaf að hitta aðrar konur utan heimilisins. Þannig að það var svolítið óvenjulegt hjá henni.

Önnur kona sem ég skoðaði heitir Ingibjörg Sigurðardóttir og var úr Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Hún var einhleyp, og það eru svona konur sem er rosalega erfitt að skoða í fortíðinni, þessar einhleypu konur sem hvergi dúkka einhvern veginn upp í ættartölum og öðrum skrifuðum heimildum af því að þær eiga ekki eiginmann. Þannig að konur voru svo… lítið fótspor eftir hana í öllum rituðum heimildum. En það er einmitt það sem gefur Hallfreðasafninu svo mikið gildi fyrir rannsóknir, að það eru þessar konur, af því að hann spyr svo mikið um þessar ævisögulegu…

Heimildir, þannig að maður fær yfirsýn yfir æviferil kvennanna líka inni í viðtölunum, einhvern veginn. Þetta eru alveg frábærar sagnfræðilegar heimildir líka um líf kvenna á fyrri öldum, eða sem sagt allavega á þessu tímabili, frá lokum nítjándu aldar til miðbiks tuttugustu aldar. En hún var ráðskona á Byggðarholti.

Það var svo skrýtið með foreldra hennar að fjölskyldan fluttist til Vesturheims og skildi hana eftir hjá afa sínum í Byggðarholti í Lóni, þar sem hún ólst upp. En það gerðist bara að eitt barn var skilið eftir. Ég veit ekki af hverju; það kom aldrei fram hvernig það gerðist. Hún ólst þarna upp á heimilinu, eiginlega bara með karlmönnum. Það var reyndar kona föðurbróður hennar á heimilinu líka, en svo var það afi hennar og tveir föðurbræður.

Þetta var rosalega svona karllegt heimili sem hún bjó á. Þetta var líka heimili sem var við þjóðleið; það var áningarstaður þegar fólk sem var að koma frá Hornafirði og sveitunum þar í kring var að fara að versla á Djúpavogi eða fara á sjó. Þá stoppaði það þarna. Maður sá það alveg í sögunum hennar að sögustaðir sagnanna hennar voru svona á þessari ferðaleið, þar sem karlar voru greinilega að segja sögur. Hún lærði fleiri sögur af körlum, greinilega, og það voru sögur af því sem var að gerast á leiðinni. Það voru engar sögur sem komu frá Djúpavogi í átt að Höfn, enda hafði fólk ekkert að sækja í þá áttina.

Það var sérstakt að sjá, en hún var mjög karllæg í nálgun sinni og sagði mjög mikið af sögnum sem fjölluðu bara um reynslu karla og sjónarhorn karla líka. Meðal annars sagði hún eina sögu af fæðingu og það var mjög áhugavert. Ég hélt bara að ég hefði loksins farið að sjá hérna svona kvenpersónur í sögunum hennar. Þetta verður spennandi. Svo fór maður að hlusta áfram og þá kemur í ljós að þetta er hetjusaga af karlmanni.

Það var ekki hetjan í sögunni, ekki sængurkonan eða ljósmóðirin, heldur járnsmiður sem smíðar töng sem barnið er tekið með. Þá fór hún alveg með það, en þá fær maður auðvitað betri sýn á það hvar einhleypar konur standa í hefðinni. Þær eru ekki að segja börnum sögur. Við höfum alltaf þessi hefðbundnu kvenhlutverk þegar við erum að skoða hefðir kvenna: móðurhlutverkið og húsmóðurhlutverkið og allt þetta.

En síðan kemur í ljós að nálægt helmingur kvenna á fyrri öldum var einhleypur og barnlaus. Af hverju áttu þær að vera að segja einhverjar sögur sem endurspegla þessa kvenreynslu? Þá vaknar líka spurningin: Eru þær þá bara að segja sögur eins og karlar, eða hvað gera einhleypar konur? Þetta er eitthvað sem væri mjög áhugavert að skoða betur.

Svo skoðaði ég líka þessa giftu konu, sem hafði mjög áhugavert að segja þegar hún hætti. Það er yfirleitt ekki gott fyrir sagnamennsku að konur eigi mörg börn. Ég skoðaði þær sem áttu tólf börn eða fleiri og þær komust ekki á blað. En hún átti ekki alveg svo mörg börn og það kom fram í heimildum. Ég talaði við dóttur hennar, sem var enn á lífi, og hún gat sagt mér að hún hefði sagt börnunum sínum mjög mikið af sögum. Hún heitir Þuríður Stefanía Arnardóttir og var úr Þistilfirði.

Hún er ein af fáum konum sem hann fékk að búa á sínu höfuðbóli, þar sem hún ólst upp á Gunnastöðum. Það var svolítið áhugavert þar að hún bjó líka á þessum ferjustað. Það var ferja sem bærinn bar ábyrgð á að koma fólki yfir til Nýttenda og þrjátíu. Þannig að hún er líka, eins og Ingibjörg, mjög í miklum félagslegum samskiptum við nærsveitafélagið í gegnum þetta. Sumir sveitabæir voru bara svona félagsmiðstöðvar á þessum tíma. Það er mjög áhugavert hvað margar konur reynast vera þarna meðal þessara virku sagnakvenna, að búa við slíkar kringumstæður.

En allavega, hún sagði mjög áhugaverðar sögur. Hún lærði líka, eins og hinar konurnar, aðallega sögur frá fólki sem deildi ekki með henni heimili, sem er líka eitthvað sem virðist vera regla þegar við skoðum virku sagnakonurnar: að hafa hæfni eða aðstæður til þess að hitta fólk sem deilir ekki með manni heimili. Hún sagði svolítið af sögum sem snerust um kvenpersónur og lagði mjög sterka áherslu á kvenpersónur, þannig að hún er…

Auðvitað að segja stúlkum sögur og dregur svolítið fram sterkar konur í sínum sögum, sem manni finnst mjög gaman að sjá líka. Þá segir hún frá annarri ferjukonu, sem er annars staðar á landinu, reyndar í næstu byggð, sem glímir við sakamann.

Hún dettur niður á sérstætt annað hnéð og segir þá: „Nú sannast að tveir eru ekki alltaf betri en einn.“ Þá lítur sakamaðurinn niður og sér að hún er ólétt. Þannig að þetta eru allt einhvern veginn svona kvenpersónur sem koma fyrir í sögunum. Ein þjófótt kona stelur sauð og labbar með hana á bakinu.

Bara svo sterk. Meira að segja þegar konurnar eru vondar, þá eru þær alltaf sterkar. Mjög gaman að sjá, og gert mjög mikið úr hlutverkum kvenna í sögunum. Þannig að ég held að það sé kannski eitt sem sagnakonur gera þegar þær segja stúlkum sögur, að hafa mjög gaman af því að sjá það.

En hún, eins og hinar, sagði líka sögur sem gerast í næsta nágrenni. Maður sá líka hvernig reynslan hjá henni og umhverfið hennar kemur einhvern veginn inn í sagnasjóðinn. Sögurnar hennar gerðust ekki á fjöllum eða fjallvegum eins og hjá ljósmóðurinni, sem var alltaf að ferðast yfir fjallvegi. En það var rosalega mikið af vötnum í sögunum hennar.

Þetta var umhverfið við hana, djúpt fyrir henni, þannig að það var allt sundurskorið af vötnum. Hún var ferjukona sjálf og sagði sögur af öðrum ferjukonum, og vatn var einhvern veginn miðlægt í öllum hennar frásögnum. Það er mjög skemmtilegt að sjá. Tókstu eftir þessu á fleiri stöðum, þessu með að landfræðilegt umhverfi móti sagnafólk?

Sagnir og staðbundið umhverfi

Já, að einhverju leyti. Auðvitað erum við alltaf að gefa stöðunum í kringum okkur merkingu. Nánast allt umhverfið þurftum við að breyta, í rauninni, úr einhverju merkingarlausu rými í staði. Við gerum það með því að hengja sagnaráð á staðina.

Auðvitað sagði sagnafólkið fyrst og fremst sögur af stöðum. Þetta er svolítið áhugavert líka, af því að þegar íslensk sagnahefð verður til, þá verður hún til sem ein íslensk sagnahefð, eins og hún sé sameiginleg með öllu landinu. Maður sér það á titlunum á þjóðsagnasöfnunum: „Íslenskar þjóðsögur og sagnir“ og svo framvegis. Það gefur til kynna að enginn merkingarmunur sé eftir landshlutum og enginn munur sé á sögnum.

En sannleikurinn er sá að öll sagnahefð er rosalega staðbundin. Það var gegnumgangandi hjá öllum sögumönnunum, bæði konum og körlum, að þau sögðu fyrst og fremst sagnir sem gerast í nánasta umhverfi þeirra. Þetta er svolítið áhugavert að sjá líka.

En það eru reyndar undantekningar á þessu. Það er ein og ein sögn sem slæðist inn annars staðar frá, og það er svolítið áhugavert líka, sem væri gaman að skoða betur. Það er ein og ein sögn sem slæðist inn frá öðrum landshlutum. Þá hlýtur það að vera einhver sögn sem skiptir verulegu máli efnislega fyrir sagnamælendur.

Nú er ég að hugsa til dæmis um það sem gerist hjá henni Þorbjörgu ljósmóður. Hún eignast barn utan hjónabands á sínum tíma og lendir í því að móðir barnsföðurins kemur í veg fyrir að hún fái að giftast honum. Hún er eiginlega svona útskúfuð, þannig séð.

Hún segir ekki frá þessu sjálf í viðtölum. Hún segir sögu af mjög sambærilegri reynslu, sem gerist einmitt í Grindavík, þar sem hún bjó aldrei sjálf. Það er mjög skrýtið, en fjallar einmitt um það að búið er að snúa kynhlutverkunum við: maður, sjómaður, fellur fyrir heimasætunni og vill fá að giftast henni, fær ekki að giftast henni og svo framvegis. Hann er að semja svona ljóð eins og hún gerir sjálf reyndar um sinn ástmann.

Maður sér þetta einhvern veginn, að þessi sögn hefur dottið inn í sagnasjóðinn hennar sem einhvers konar staðgengill. Það var svo sárt að tala um sína eigin reynslu, en í staðinn geturðu sagt frá reynslu af einhverjum öðrum sem gengur í gegnum mjög sambærilegar kringumstæður. Þetta var mjög áhugavert að sjá.

Næstu rannsóknir

Þetta er allt ótrúlega áhugavert. Þetta er bara alveg magnað og áhugavert að velta þessu fyrir sér, sko, og margt sem leynist í sögnum. Júlíana, þú ert nú með nokkur dæmi um það sem væri áhugavert að gera. Ertu komin með plan? Veistu hvað þig langar að rannsaka næst?

Já, mig langar rosalega mikið að fara meira í einhleypu konurnar. Mér finnst það alveg ótrúlega áhugavert, af því að heimildasafnið er svo safaríkt líka. Ég er náttúrlega ekkert búin að skoða það, af því að ég endaði á því að skoða aðallega bara konurnar.

Ég tók aðeins ólíka hópa af konum og það reyndist ekki vera rosalega mikill yfirborðsmunur á milli sagna sem ljósmæður eða konur í störfum sögðu, versus einhleypukonur og svo framvegis, allavega í þessum fáu viðtölum sem ég skoðaði. En það á eftir að skoða meira. Það á eftir að skoða landshlutana, en ég held að ég myndi vilja byrja á þessum einhleypu konum, sem fá mjög litla umfjöllun í sagnfræðilegum heimildum. Við vitum mjög lítið um þær.

Þær eru ekki í þessum týpísku kynjahlutverkum sem við skoðum venjulega þegar við erum að skoða hefðir fólks í fyrri tíð, og sérstaklega hefðir kvenna. Hverjum vorum við að segja sögur? Það er mjög góð spurning þegar þú hefur ekki börnin.

Segja einhleypu konur aðallega sögur eins og karlmenn þá, eða yrðu þær einhvern veginn öðruvísi? Þannig að það er margt sem hægt er að skoða þarna, sem ég held að væri mjög skemmtilegt að gera. Þannig að ég held ég myndi byrja þar.

Það er mjög spennandi. Við hlökkum til að heyra hvað kemur í ljós þá.

Júlíana, takk kærlega fyrir að koma til okkar.

Já, heyrðu, ekkert mál. Bara gaman að vera með ykkur. Takk fyrir.

Og takk fyrir að hlusta. Þakka fyrir hlustunina.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar