Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Versta mamma sögunnar. Í þessum pistli uppgötva ég að þótt æskilegt sé að konur fái að ráða, þá geta kvenskörungar stundum verið einum of.
Í síðasta pistli fjallaði ég á þessum vettvangi um þá einu konu sem tók sér keisaratign í Rómaveldi hinu forna. Hún hét Úlpía Severína og eftir að eiginmaður hennar, Aurelíanus keisari, dó árið 275 lét hún slá mynt sem ekki verður skilin öðruvísi en að hún hafi ætlað sér keisaratignina í eigin nafni. Hún hugðist að minnsta kosti ekki verða ríkisstjóri fyrir ómyndugan son, eins og dæmi voru um, einfaldlega af því að hún átti engan son.
Því miður var sagnaritun Rómverja með allra versta móti um það leyti sem Aurelíanus og Úlpía voru á dögum og við vitum þess vegna nánast ekkert um hana, hvorki hvað hún ætlaðist í rauninni fyrir né hvernig hún var kvödd í Guð. En það var náttúrlega gert fljótlega. Hún var kveðin í kútinn og kall settur í hásætið. Rómaveldi var herskátt feðraveldi í sinni tærustu mynd og hlutverk keisarans var í eðli sínu fyrst og fremst að vera leiðtogi í stríði.
Ekki var talið koma til greina að kona gæti gegnt því starfi. Þeim mun merkilegri og viljasterkari hefur hún verið, Úlpía Severína, að láta sér detta í hug að hún gæti þetta, og þeim mun sorglegra er að við skulum í rauninni ekki vita neitt um hana. Líklega hefur hún verið kettlingur í krapinu í þau 200 ár sem Rómaveldi átti eftir að skrimta. Eftir daga Úlpíu Severínu fór engin kona að dæmi hennar.
Ríkið í vestri leystist upp árið 476 og var þá jafn kvenmannslaust og það hafði alltaf verið. En það eruð ekki að öllu í rauninni: Rómaveldi sem sat aðeins í vestri, en austurhlutinn hélt velli í 1.000 ár til viðbótar. Austurrómverska ríkið, með aðsetur í Miklagarði, er nú oftar en ekki kallað Býsansríkið til aðgreiningar frá hinu gamla sameinaða Rómaveldi.
Og nú vill svo til að þótt Býsansríkið væri sama feðraveldið og gamli Rómur, þá fór nú svo að þar komst til valda keisaraynja, að vísu ekki fyrr en 20 árum eftir þá æsandi haustdaga þegar Úlpía fyrsta gerðist keisari á Tíberbökkum.
Býsansmenn voru skrýtnir. Þeir elskuðu rökræður og gátu sér í lagi talað sig hása um guðfræði, gott betur reyndar, því þeir stóðu beinlínis í slagsmálum og manndrápum um þá spurningu, til dæmis hvort Guð og Jesús hefðu báðir haft eðli eða hvort annar þeirra hefði haft náttúru, og annað því um líkt sem gullkjaftar þeirra gátu eytt tíma sínum í. En aldrei, ekki svo mikið sem eina mínútu, datt þeim í hug að ræða hvort kvenhelmingur mannkyns ætti kannski sömu réttindi og karlkynið. Og því sat þar stundum hver óhæfur kallinn á fætur öðrum, en miklu klárari konur urðu að láta sér nægja baktjaldamakk við hirðina og fjölskyldupot alls konar. En þá kom hún Írena frá Aþenu.
Á seinni hluta 8. aldar var allt svona heldur með kyrrum kjörum í Býsans. Arabar höfðu fyrir rúmri öld hrifsað Sýrland, Egyptaland og Norður-Afríku af hinum austrænu Rómverjum, en Býsansmenn voru nú samt sem áður traustir í sessi í Litlu-Asíu og á Balkanskaga. Ríkið var nokkuð stöndugt og auðugt og Mikligarður átti sín ekki líka meðal borga, Konstantínópel, höfuðborgin í Býsansríkinu.
Nema hvað, krónprinsinn Leó vantaði konu og þá var haldin hæfileikakeppni í Miklagarði. Sigurvegarinn varð hin sextán ára Írena frá Aþenuborg. Því miður hafa engar spólur varðveist frá keppninni, svo við vitum ekki hvaða hæfileika eða eiginleika hún hafði til að bera sem urðu þess valdandi að hún vann. En þau Leó gengu alltént í hjónaband og eignuðust einn son. Nokkru síðar fann Leó helgimynd, eða íkon, í rúmi konu sinnar og af því að hann trúði því sjálfur að íkonar væru andstyggilegir og svívirðing við Guð, þá gekk hann ekki framar í bólið með Írenu og eignuðust þau ekki fleiri börn. Ég sagði ykkur að Býsansmenn
Þeir voru gefnir fyrir að rífast um guð, en hann skildi samt ekki við konu sína, þótt hann vildi ekki lengur ríða henni.
Aðeins fimm árum síðar var Leó í stríðsför gegn Búlgörum og dó þá skyndilega. Þær sögur fóru á kreik að Írena drottning hans hefði látið eitra fyrir honum. Sögurnar urðu þó ekki svæsnari en svo að Írena fékk sig umyrðalaust skipaða ríkisstjóra meðan sonur hennar og Leós væri barnungur, en hann var níu ára þegar faðir hans dó.
Slíkt hafði komið fyrir áður, en engin kona í þessari stöðu hafði látið sér til hugar koma að kalla sig keisara. Það gerði Írena heldur ekki í þetta sinn. Hún þurfti reyndar að bæla niður tvær, þrjár uppreisnir og samþykkti að borga kalífanum í Bagdad 10.000 silkikufla á ári og samsvarandi af gullpeningum til að losna við stríð, en annars fór allt svona heldur friðsamlega fram þau tólf ár sem Írena taldist vera ríkisstjóri.
Hún hafði mikinn áhuga á að komast í samband við Karlamagnús, langöflugasta valdamann í Vestur-Evrópu, og skipulagði hjónaband sonar síns og Hróðríðar Magnúsdóttur. En ekkert varð úr, og hefði þó vissulega verið ómaksinsvert að sjá hvernig farið hefði ef frankaríki Karlamagnúsar og Býsantsríki Írenu hefðu gengið í náið bandalag. En allt hélt, Írena var greinilega röksamur stjórnandi og skörungur.
En nema hvað, haldið þið ekki að strákurinn, Írenasonur, hafi á endanum heimtað að fá að taka við keisaravöldunum? Hann hét náttúrlega Konstantín, eins og flest allir karlmenn í þeirri ætt, og þótt hann væri löngu orðinn myndugur í skilningi laga þá fékk hann kannski enn engu að ráða.
Írena brást hart við öllum tilraunum sonar síns til að taka völdin og lengi vel réð strákur ekkert við mömmu sína. En árið 792 fannst karlhyskinu við hirðina að það gengi ekki lengur að fullfrískur strákur gengi um aðgerðalaus meðan mamma hans sýslaði um ríkisstjórn.
Þegar Írena var farin að krefjast þess að embættismenn og hermenn skyldu framvegis sverja henni persónulegan eið, þá var hún sett til hliðar og Konstantín varð keisari, sá sjötti með því nafni. Írena fékk þó að halda nafnbót keisaraynju og halda til við hirðina.
Næst gerðist það að sonur Írenu, Konstantín sjötti, reyndist gjörsamlega óhæfur valdhafi, þótt hann væri strákur. Stríð töpuðust bæði gegn Búlgörum og Arabum, sem vakti úlfúð, en Konstantín barði niður af miskunnarlausri hershöfðingjahörku allt andóf gegn sér.
Hin guðhræddu Miklagarðsbúum blöskraði þó fyrst þegar Konstantín skildi við konu sína og gekk að eiga hjá konu sína. Það fannst fólki ganga gegn ýmsum vilja Guðs og varð nú allt vitlaust um skeið.
Það er til marks um hvað Miklagarðsbúar höfðu, þegar hér var komið, þrotlausa trú á lymsku og samsærisfíkn Írenu, að menn trúðu því í senn að Írena hefði hvatt son sinn til að skilja við sína lögformlegu ektafrú og að einmitt hún hefði skipulagt hneykslunarölduna sem nú reis gegn nýju hjónabandi keisarans unga.
Allt létt var Konstantín búinn að koma sínum málum í þvílíkan hnút að honum var steypt af stóli eftir sjö ára rostu saman valdaferil. Og í hans stað kom í hásætið, já, engin önnur en mamma hans.
Írena frá Aþenu var nú aftur komin í hásætið og nú tók hún sér, svo ekki verður um villst, ótvíræða tign keisara, sem engin kona hafði áður gert í rómverska ríkinu, ekki að minnsta kosti síðan Úlpínuleið Basileus kallaði Írena sig að minnsta kosti stundum, en það þýðir einfaldlega konungur.
Þetta valdatak Írenu þykir kannski allt í lagi í sjálfu sér og jafnvel næstum því bara til sóma. Því af hverju skyldi kona ekki alveg eins fá að ræna völdum eins og plagsiður var meðal metorðagjarnra karlmanna, sér í lagi af því hún var augljóslega svona miklu hæfari stjórnandi en Konstantín, sonur hennar?
Jú, látum svo vera, en nú fer að vandast málið. Fyrsta verk Írenu á þessari seinni og hátíðlegu stundu sem keisari var að láta fangelsa son sinn, og svo voru rifin úr honum augun með
Svo broddalegum hætti að hann dó af sárum sínum tíu dögum seinna. Og hvað á að segja um svona framkomu móður við son sinn, jafnvel þótt sonurinn sé óþolandi? Versta mamma mannkynssögunnar.
Guði var allavega svo brugðið að hann lét koma sólmyrkva sem entist í sautján daga. En við Írenu varð samt ekki hróflað um sinn. Hún sat sem fastast sem fyrsta konan á keisarastóli Býsans í fimm ár.
Þá var henni steypt af stóli. Karlarnir þoldu kerlinguna ekki lengur; þeir vildu einn af sínu kyni í stólinn, en hafa sjálfsagt talið sér trú um að þeir vildu aðeins þann hæfasta.
Arftaki Írenu reyndist svo náttúrlega óhæfur með öllu og fór með allt sitt til andskotans. En sjálf var hún send í útlegð til Lesbos og dró þar fram lífið sem spunakona.
Athugasemdir