Flækjusagan

Sú fagra kemur í heim­sókn

Fyrir nokkrum árum fannst gröf Nefertítíar drottningar í Egiftalandi. Það reyndist minna í gröfinni en upphaflega var talið en þessi pistill var skrifaður áður en það kom fyllilega í ljós. En hver var sú góða drottning?
Hlustaðu · brot11:45 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.384 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Hver var Nefertítí?

Sú fagra kemur í heimsókn. Fyrir nokkrum árum fannst gröf Nefertítíar drottningar í Egyptalandi. Það reyndist nú vera eitthvað minna í gröfinni en upphaflega var talið, en þessi pistill var skrifaður áður en það kom fyllilega í ljós. Og hér er velt vöngum yfir spurningunni: Hver var Nefertítí yfirleitt?

Nýlega bárust fregnir af því að kannski væri búið að finna gröf Nefertítíar drottningar í Egyptalandi, og ég hika að flestir sem heyrðu fréttirnar hafi kinkað svolítið kolli í huganum: „Já, Nefertítí, það nafn kannast ég við. Já, er búið að finna hana?“ En svo þykist ég vita að flestir hafi svo sem ekki verið öllu nær um Nefertítí, af hverju menn könnuðust við hana og hvað hún hafði gert sér til frægðar. Því er hér komin upprifjun á ævi Nefertítíar drottningar, það sem vitað er, sem er því miður sorglega fátt.

Það fyrsta sem menn þurfa að átta sig á þegar þeir fara að skoða egypska sögu, það er hversu löng hún er. Fyrsta konungsættin, sem svo er kölluð, mun hafa sameinað efri og neðri hluta Egyptalands um það bil árið 3150 fyrir Krist, eða fyrir upphaf tímatals okkar. Það eru meira en 5.000 ár síðan. Við nútímafólk megum líklega þakka fyrir ef menning okkar þraukar í einhverri skiljanlegri og samfelldri mynd í 500 ár, en við getum engar vonir gert okkur um 5.000 ár.

Kúfú faraóinn, sem lét byggja stóra píramídann í Gísa, þann sem enn stendur og er eitt mesta undur í heimi, ríkti í kringum árið 2570 fyrir upphaf tímatals okkar, eða fyrir tæplega 4.600 árum. En Nefertítí var uppi löngu síðar. Hún er talin hafa orðið drottning árið 1353 fyrir upphaf tímatalsins, og svo áttu enn eftir að líða 1.300 ár frá Nefertítí til Kleópötru, sem er sú eina Egyptalandsdrottning sem telja má enn frægari en Nefertítí. Þessari tölnaþulu er ætlað að gefa hlustendum einhverja hugmynd um hve gríðarlega löng saga Egypta er.

Það má líka nefna að sé eitthvað hæft í frásögnum Biblíunnar um herleiðingu Gyðinga til Egyptalands, sem er reyndar mjög vafasamt, þá hefur það gerst um svipað leyti og Nefertítí var á dögum. Því er til dæmis fáránleg sú hugmynd að Gyðingar hafi verið þrælkaðir til að vinna við stóra píramídann hans Kúfús. Þá voru sem sé rúm 1.200 ár liðin frá smíði píramídans um það leyti sem Nefertítí var uppi og Gyðingar áttu að hafa verið á ferð í Egyptalandi. Það er jafnlangur tími og skilur okkur frá landnámi Íslands eða dögum Karlamagnúsar.

Egyptaland á stórveldistíma

Á tímum Nefertítíar voru Egyptar helstu stórbokkarnir í Miðausturlöndum, eins og yfirleitt bæði fyrr og síðar. Þeir réðu um þessar mundir í Palestínu og langt norður í Sýrland. Í Mesópótamíu hafði stórveldið Babýlon, sem löggjafinn Hammúrabí tilheyrði, fallið rúmum 200 árum fyrr, og þar var nú millibilsástand. Svonefndir kassítar réðu þar ríkjum og dýrkuðu hesta sína sem guði.

Í uppsveitum voru Assýringar líka í biðstöðu eftir mikil veltiár, en farnir að bíta í járn og brýni, eina kvitta fyrir næstu útrás. Í Litlu-Asíu var þá við lýði hið dularfulla stórveldi Hetíta, sem enn er sorglega fátt vitað um, en ógnaði allavega ekki yfirburðastöðu Egyptalands á þeim mundum. Í Grikklandi var krítarmenningin fallin og tómir villumenn þar um slóðir.

Svo allt var með kyrrum kjörum í Egyptalandi, meira og minna. Faraóar komu og fóru í mestan part friði, við sælli halarófu, og allt virtist vera eins og best varð á kosið í hinum besta heimi allra heima. En þá skall allt í einu á fyrirvaralaus stormur. Faraó Amenhotep fjórði fékk þá flug í höfuðið að allir hinir endalausu guðir Egyptalands í líki katta, fálka, tortípla...

Trúarbylting Akhenatens

Og fleiri kvikindi væru einskis virði og líklega væri guð bara einn, Aten héti guð og tákn hans væri hin volduga sól. Þetta var væntanlega sama hugmynd og hjá Þorkatli mána, sem lét bera sig í sólargeisla í banasótt sinni og fól sig á hendur þeim guði er sólina hafði skapað, líkt og segir í Landnámu.

Þessi eini sólarguð faraós var vel að merkja allt annað fyrirbæri en gamli sólarguðinn Ra, sem allir þekkja úr krossgátum. Því miður voru fornegyptar litlir sem engir sagnaritarar, þótt þeir kynnu að reisa glæsilegar byggingar og grafhýsi. Þeir skrifuðu lítt eða ekkert um sögu sína nema í hálfgerðum símskeytastíl. Því er í rauninni fátt vitað um ástæður þess að Amenhotep fjórði hóf þessa trúarbragðabyltingu, en Atenrú hans má jafnvel kalla fyrstu eingyðistrú sem við höfum heimildir um.

Á þeim tíma er til dæmis næsta öruggt að Gyðingar, að því marki sem sú þjóð var til orðin, trúðu enn á marga guði. Til marks um trúskiptin tók faraó sér nú nýtt nafn og kallaðist síðan Akhenaten.

Nefertítí við hirðina

Og Nefertítí var sem sé drottning Akhenatens, sú æðsta af nokkrum eiginkonum. Reyndar eru ýmsar kenningar um hvaðan hún var upprunnin. Líklega var hún af egypskum aðalshættum, en kannski af ættum Mitana sem bjuggu í norðurhluta Sýrlands. Nafnið þýðir allavega „fegurðin kemur“ og það er greinilegt af þeim fátæklegu heimildum sem til eru að Nefertítí var alla tíð kunn fyrir fegurð.

En þó ekki bara fyrir fegurðina. Það er til dæmis ljóst að hún tók fullan þátt í trúarbyltingu eiginmannsins. Það má jafnvel hugsa sér að hafi Nefertítí verið aðkomukona, eins og nafnið hennar og sögur um mitanskan uppruna gætu vel bent til, þá hafi það verið hún sem stóð á bak við eingyðistrú Akhenatens. Kannski hafi hugdetta hans um einn guð fæðst einhvers staðar í Sýrlandsfjöllum og borist þaðan með Nefertítí þegar henni var sett fyrir að giftast faraó Egyptalands.

En fyrir þessari kenningu eru þó engar heimildir, frekar en flestu öðru sem að Nefertítí fer. Óbeint má hins vegar lesa úr veggmyndum á ýmsum byggingum að hún hefur verið mikil áhrifakona við hirð Akhenatens. Hún stendur ýmist við hlið eiginmannsins eða rétt fyrir aftan hann á ýmsum lágmyndum þar sem þau eru við opinberar athafnir, einkum trúarlegar, til dýrðar Aten.

Hún sést líka iðulega ein á ferð og þá oftast við athafnir sem yfirleitt kröfðust nærveru kóngsins. Til eru lágmyndir þar sem hún refsar óvinum hörkulega og ein mynd virðist sýna hana umkringda stríðsföngum. Þó verður að teljast ólíklegt að hún hafi tekið þátt í bardögum eða styrjöldum, því sennilega væru þá til mun skýrari heimildir um það.

Ekki er vitað annað en að trúarbylting þeirra Akhenatens og Nefertítíar hafi gengið nokkuð vel, að minnsta kosti eru ekki til sjáanleg dæmi um mótspyrnu gegn Atenstrúkun þeirra hjóna meðan þau lifðu. Þau eignuðust sex dætur og til er falleg lágmynd þar sem hjónin og dæturnar eru viðstödd athöfn þar sem viðurkenning er veitt óþekktum manni fyrir dygga þjónustu við hinn eina guð Aten.

Myndin sýnir, þótt ekki sé annað, hve mikla áherslu hjónin lögðu á hina nýju trú; öll fjölskyldan var greinilega virkjuð í því skyni.

Eftir dauða Akhenatens

Akhenaten ríkti í 17 ár, en hvað þá gerðist er ekki að fullu ljóst. Svo virðist sem kona nokkur hafi tekið við um skeið eftir að Akhenaten dó, og ýmsir fræðimenn telja að það hafi einfaldlega verið Nefertítí undir nýju nafni. Hafi svo verið þá ríkti hún allavega ekki lengi sem faraó, því tveimur árum eftir andlát Akhenatens tók nýr faraó við.

Það var níu ára gamall sonur Akhenatens, sem þá hét Tútankaten. Móðir hans var ekki Nefertítí heldur önnur af konum Akhenatens. Kannski var hún systir faraós eða frænka. Þegar unglingspilturinn hafði ríkt í fáein ár stýrðu ráðgjafar hans nýrri trúarbyltingu og nú var guðinum Aten enn steypt af sínum eingyðisstalli, en gamla trúin leidd til virðingar á ný. Æðstur guða var þá nefndur Amun og faraó...

Ofar látið breyta nafni sínu í Tútankamún af því tilefni.

Gröf Tútankamons og Nefertítí

Valdaseta Tútankamons varð stutt og ekki söguleg. Hann var nánast alveg gleymdur þegar gröf hans fannst nær ósnert árið 1922. En það er inni af henni sem menn vona að gröf Nefertítíar muni finnast.

Ráðgjafar Tútankamens unnu að því öllum árum meðan á skammri stjórnartíð hans stóð, sem og í tíð arftaka hans, að bæla niður allar minningar um trúarbyltinguna sem faðir hans stóð fyrir. Og það tókst með mjög góðum árangri.

Það var ekki fyrr en á 19. öld sem fræðimenn fóru að átta sig á þvílík stórtíðindi höfðu þarna verið á seyði í trúarlegum efnum.

Þá hafði Akhenaten verið öllum gleymdur í 3.200 ár og kannski gleymist hann aftur. En stórkostleg stytta, sem myndhöggvarinn Tútmosi gerði af drottningu faraós og fannst árið 1912, mun ugglaust valda því að Nefertítí gleymist aldrei.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
    Áskrift
    Fréttir09:39 ·

    Syrgj­andi for­eldrar Hönnuh þakk­lát Íslandi

    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku