Mynd: Bára Huld Beck

Umhverfisáhrif byggingariðnaðarins fallið í skuggann

Samhliða mik­illi upp­bygg­ingu íbúða hér á landi á síð­ustu árum hefur mengun frá bygg­ing­ar­geir­anum auk­ist til muna. Stefna íslenskra stjórn­valda varð­andi vist­spor bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins og sjálf­bæra þróun í mann­virkja­gerð er hins vegar óljós.

Bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn er einn mest meng­andi iðn­aður heims. Iðn­að­inum fylgir gríð­ar­leg auð­linda­notkun, losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og myndun úrgangs. Tölur sýna að rekja megi um helm­ing auð­linda­nýt­ingar í Evrópu og allt að 40 pró­sent losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu til iðn­að­ar­ins. Sem þýðir að hann sé einn sá iðn­aður sem losar hvað mest af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum á heims­vísu.

Samhliða mik­illi upp­bygg­ingu íbúða hér á landi á síð­ustu árum hefur mengun frá bygg­ing­ar­geir­anum auk­ist til muna. Úrgangur frá mann­virkja­gerð hefur rúm­lega tvö­fald­að­ist á þremur árum, frá árinu 2014 til 2017, en hann hefur auk­ist úr 364.943 tonnum í 873.522 tonn.

Auk þess hefur losun koltví­sýr­ings frá bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð frá hag­kerfi Íslands auk­ist til muna. Losun frá bygg­ing­ar­iðn­að­inum var 190 tonn árið 2017 sem er 40 pró­sent meiri losun en fjórum árum áður. 

Ísland, ásamt flestum ríkum heims, hefur skuld­bundið sig til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðla að sjálf­bærri þróun. Vistspor bygg­ing­ar­iðn­aðar hefur hins vegar ekki kom­ist í hámæli hjá stjórn­völdum og engin heild­stæð stefna hefur verið mótuð um sjálf­bærni þegar kemur að mann­virkja­gerð.

Þúsundir íbúða á leiðinni

Mikill vöxtur hefur verið í bygg­ing­ar­starf­semi hér á landi á síð­ustu árum og hefur fram­leiðni vinnu­afls í bygg­ing­ar­starf­semi auk­ist tals­vert umfram með­al­þróun hag­kerf­is­ins í heild síð­ustu tíu ár. Alls hafa íslensk fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi aukið fram­leiðni sína um tæp 38 pró­sent frá árinu 2008.

Á árunum eftir hrun var lítil fjár­fest­ing í íbúð­ar­hús­næði og því lítið byggt en á und­an­förnum árum hefur orðið stór­upp­bygg­ing í kjöl­far auk­innar eft­ir­spurnar. Á árnum 2013 til 2017 fjölg­aði íbúðum hér á landi um 6.500, sam­kvæmt taln­ingu Íbúða­lána­sjóðs.

Samhliða þess­ari miklu upp­sveiflu í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur vist­spor iðn­að­ar­ins auk­ist hér á landi. Vistspor bygg­ing­ar­ferl­is­ins er gríð­ar­stórt, allt frá notkun auð­linda af skornum skammti til nið­ur­rifs bygg­inga. Samkvæmt Umhverf­is­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNEP) er bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn ábyrgur fyrir 36 pró­sent af end­an­legri orku­notkun heims­ins og nærri 40 pró­sent af orku­tengdri losun koltví­sýr­ings árið 2017.

Enn fremur er bygg­ing­ar­úr­gangur að jafn­aði stærsti úrgangs­flokkur landa. Ísland er þar engin und­an­tekn­ing en á síð­ustu árum hefur úrgangur frá mann­virkja­gerð auk­ist gíf­ur­lega sem og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þúsundir íbúða munu rísa á höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum þess á næstu þremur árum.
Þúsundir íbúða munu rísa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess á næstu þremur árum.

Rúmlega 800 þúsund tonn af úrgangi

Í tölum Umhverf­is­stofn­unar má sjá að úrgang­ur­inn frá mann­virkja­gerð, bygg­ingar- og nið­ur­rifsúr­gangur auk óvirks úrgangs, hefur rúm­lega tvö­fald­ast á þremur árum frá árinu 2014 til 2017. Farið úr 364.943 tonnum í 873.522 tonn, eins og áður segir.

Þá hefur magn af grófum úrgangi sem berst til mót­töku- og flokk­un­ar­stöðvar Sorpu, sem tekur aðal­lega við úrgangi frá heim­ilum, einnig auk­ist til muna á síð­ustu árum. Grófur úrgangur er til að mynda inn­rétt­ingar, ónýt hús­gögn, gól­f­efni og svo fleiri. Sá úrgangur hefur auk­ist úr 4.600 tonnum árið 2015 í 9.600 tonn árið 2017.

Bygg­ingar- og nið­ur­rifsúr­gangur var alls 49 pró­sent af úrgangi á Íslandi árið 2017. Ef óvirkur úrgangur er hins vegar reikn­aður með þá er úrgangur af mann­virkja­gerð 62 pró­sent af heild­ar­úr­gangi Íslend­inga. Óvirkur úrgangur er til að mynda múr­brot, gler og upp­mokstur.

Losun frá byggingariðnaði eykst aftur eftir hrun

Vexti í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur ekki ein­ungis fylgt auk­inn úrgangur heldur einnig aukin losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í tölum Hagstofu Íslands má sjá að veru­lega hægð­ist á losun koltví­sýr­ings frá bygg­ing­ar­iðn­aði á árunum eftir hrun. Árið 2013 var losun frá hag­kerfi Íslands vegna bygg­inga­starf­semi og mann­virkja­gerð alls 135,18 tonn. Fjórum árum síðar var los­unin 189,79 tonn og hafði því auk­ist um 40 pró­sent.

Þá hefur losun met­ans frá bygg­ing­ar­starf­semi auk­ist sam­hliða losun koltví­sýr­ings og var alls 113,56 kílótonn árið 2017 en 80,7 kílótonn árið 2013.

Von á þúsundum íbúða á næstu árum

Ekkert lát er á upp­bygg­ingu íbúða á næstu árum ef marka má spár. Alls eru nú um 6.000 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í nágranna­sveit­ar­fé­lögum, sam­kvæmt taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Samtökin spá því að 2.660 íbúðir verði full­gerðar á þessu svæði á næsta ári, 2.513 íbúðir árið 2021 og 2.667 á 2022. Því má búast við 7.840 full­gerðum íbúðum á næstu þremur árum.

Gangi spáin eftir verður fram­boð nýrra íbúða á næstu árum mun meira en á upp­gangs­ár­unum fyrir efna­hags­á­fallið, en á árunum 2006 til 2008 komu árlega um 2.100 nýjar íbúðir inn á mark­að­inn.

Rík­is­stjórnin hefur einnig lofað upp­bygg­ingu íbúða á næstu árum. Samkvæmt lífs­kjara­samn­ingum svo­nefndu sem kynntir voru í vor lof­uðu stjórn­völd að fram­lög í almenna íbúða­kerf­inu yrðu aukin um tvo millj­arða króna á hverju ári eða sam­tals sex millj­arða á árunum 2020 til 2022. Með þessu áætla stjórn­völd að unnt verði að ráð­stafa stofn­fram­lögum til bygg­ingar allt að 1.800 íbúða á næstu þremur árum.

Ein af stóru áskorunum samtímans

Hönnun bygg­inga, stað­setn­ing, efn­is­notkun og orku- og vatns­notkun hefur mikið að segja varð­andi losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í bygg­ing­ar­iðn­aði. Með­al­líf­tími bygg­inga er langur og því hafa þær alla jafna áhrif á umhverfi sitt í langan tíma. Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins (FSR) telur því að sjálf­bær þróun í bygg­ing­ar­iðn­aði sé ein af stóru áskor­unum sam­tím­ans.

Hlutverk FSR er meðal ann­ars að vera leið­andi afl á sviði opin­berra fram­kvæmda og er stofn­unin í far­ar­broddi við inn­leið­ingu á vist­vænum áherslum í bygg­ing­ar­iðn­aði. Vistvæn bygg­ing grund­vall­ast á hug­mynda­fræði sjálf­bærrar þró­unar en sjálf­bær þróun leit­ast við að mæta þörfum sam­tíð­ar­innar án þess að skerða mögu­leika kom­andi kyn­slóða til að mæta sínum þörfum.

Samkvæmt FSR eru helst þrír hvatar fyrir því að byggja vist­vænt. Í fyrsta lagi er umhverf­is­legur hvati en líkt og rakið hefur verið hér að ofan þá eru umhverf­is­á­hrif bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins umtals­verð. Í öðru lagi er fjár­hags­legur hvati en sam­kvæmt FSR sýnir reynsla erlendis að vist­vænir bygg­ingar verði verð­mæt­ari en aðrar bygg­ingar vegna góðrar ímyndar, heilsu­sam­legs umhverfis og minni rekstr­ar­kostn­aðar.

Í þriðja lagi er heilsu­fars­legur hvati en minni notkun eit­ur­efna og hættu­legra efna í bygg­ing­ar­vörum stuðlar að heil­næmu umhverfi. Losun skað­legra efna í bygg­ingum getur valdið heilsu­fars­legum vanda­málum, allt frá almennri van­líðan til ofnæmis.

Veröld- hús Vigdísar er vistvænt vottuð bygging. Í vistvænni byggingu er á kerfisbundinn hátt leitast við að hámarka notagildi og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.
Veröld- hús Vigdísar er vist­vænt vottuð bygg­ing. Í vist­vænni bygg­ingu er á kerf­is­bund­inn hátt leit­ast við að hámarka nota­gildi og lág­marka nei­kvæð umhverf­is­á­hrif.

Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bygginga

Í vist­vænni bygg­ingu er á kerf­is­bund­inn hátt leit­ast við að hámarka nota­gildi og lág­marka nei­kvæð umhverf­is­á­hrif. Við hönnun vist­vænna bygg­inga er meðal ann­ars lögð áhersla á orku­mál, efn­is­val, stað­ar­val og heilsu­vernd. Til að mynda er haft í huga aðgengi að vist­vænum sam­göngum, nálægð bygg­inga við almenn­ings­sam­göngur og hjóla­stíga. Auk þess þarf að hafa í huga lág­mörkun jarð­rasks, notk­unar orku á bygg­ing­ar­stað og lág­mörkun flutn­inga.

Þá skiptir efn­is­val einnig miklu máli en til að stuðla að minna vistspori er lagt til að lág­marka eit­ur­efni og velja frekar efni með litla við­halds­þörf og langan end­ing­ar­tími. Auk þess er hægt velja bygg­ing­ar­efni úr end­ur­nýj­an­legum auð­lindum en fram­boð slíkra efna er þó af skornum skammti á Íslandi. Stein­steypa er mest not­aða íslenska bygg­ing­ar­efnið en víða erlendis er hún álitin síðra bygg­ing­ar­efni en mörg önnur í vist­vænum bygg­ingum vegna los­unar koltví­sýr­ings við fram­leiðslu sem­ents. Talið er að sem­ent­fram­leiðsla ein og sér losi um 8 pró­sent af koltví­sýr­ingi í heim­inum.

Ólafur H. Wallevik, for­stöðu­maður Rann­sókn­ar­stofu bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins, sagði í sam­tali við RÚV í ágúst síð­ast­liðnum að hægt væri að minnka kolefn­is­spor steypu í íslenskum bygg­ing­ar­iðn­aði um meira en helm­ing með nýrri aðferð. Hann hefur þróað lofts­lagsvænnni steypu sem hefur verið notuð víða heim en lítið sem ekk­ert hér. Hann segir að verk­kaupar biðji ein­fald­lega ekki um vist­væna steypu og að bygg­ing­ar­reglu­gerð þvælist einnig fyrir.

Víða um heim hefur timbur jafn­framt verið notað í stað steypu þar sem kolefn­is­spor timb­urs er mun minna.

Vitundarvakning um ábyrgð byggingariðnaðarins

Vit­und­ar­vakn­ing og umræða um sjálf­bærni í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur auk­ist hér á landi á síð­ustu árum og virð­ast íslensk stjórn­völd loks vera að ranka við sér. Fleiri vist­væn hús hafa risið upp á vegum FSR og sveit­ar­fé­laga og kokkur bæj­ar­fé­lög hafa tekið á skarið og lagt aukna áherslu á grænni byggð.

Þar á meðal er Hafn­ar­fjarð­ar­bær en í maí síð­ast­liðnum sam­þykkti bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sjö til­lögur að aðgerðum til að hvetja hús­byggj­endur til að setja umhverfið í for­gang í sam­ræmi við Heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þar á meðal sam­þykkti bæj­ar­stjórn að veita 20 til 30 pró­sent afslátt af lóð­ar­verði til að hvetja fram­kvæmd­ar­að­ila til þess að fá svans­vottun, BREEAM vottun eða sam­bæri­legt á nýbygg­ingar. Auk þess hefur tekið bær­inn tekið upp sekt­ar­kerfi í sam­bandi við end­ur­vinnslu úrgangs á fram­kvæmda­stað og jafn­framt þurfa 20 pró­sent bygg­ing­ar­efna í nýfram­kvæmdum að hafa umhverf­is­vottun.

Vist­vænar lausnir í bygg­ing­ar­iðn­aði hafa einnig gætt í stefnum núver­andi rík­is­stjórnar þó að heild­ar­sýn stjórn­valda í málar­flokknum sé ekki að finna. Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar er meðal ann­ars kveðið á um að yfir­fara eigi stjórn­sýsl­una vegna bygg­ing­ar­fram­kvæmda og að við þá vinnu skuli meðal ann­ars litið til fram­sæk­inna, umhverf­is­vænna og vist­vænna lausna að því er varðar mann­virki almennt, íbúð­ar­hús­næði og sam­göngur. 

Áhersla rík­is­stjórn­ar­innar hefur þó aðal­lega snúið að aðgengi að almenn­ings­sam­göngum þegar kemur vist­vænum lausum tengdum mann­virkjum. Í aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum sem kynnt var í sept­em­ber 2018 er ekk­ert minnst á aðgerðir varð­andi vist­spor bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins nema að lagt er til að stefna skipu­lags­að­gerða sem miða að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, svo sem með sam­þættu byggðar- og sam­göngu­skipu­lagi sem dregur úr ferða­þörf, styður fjöl­breyttan ferða­máta og tryggir inn­viði fyrir orku­skipti.

Átaks­hópur rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál sem skip­aður var í nóv­em­ber 2018 lagði jafn­framt fram til­lögur sem tengj­ast vist­vænni lifn­að­ar­háttum og auk­inni sjálf­bærni. Þar lagði hóp­ur­inn áherslu á að setja verði í for­gang við ráð­stöfun stofn­fram­laga og ann­arra opin­berra fram­laga vegna upp­bygg­ingar á íbúð­ar­leigu­hús­næði verk­efni þar sem góðar almenn­ings­sam­göngur eru fyrir hendi. Þessar sem og aðrar til­lögur átaks­hóps­ins voru lagðar til grund­vallar við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna og vinna stjórn­völd nú að nán­ari útfærslu og eft­ir­fylgni þeirra.

Í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að vist­vænar fram­kvæmdir eru á meðal þess sem er til sér­stakar skoð­unar í útfærslu til­laga starfs­hóps­ins og ráð­gert er að frum­varp þess efnis verði lagt fram á núver­andi lög­gjaf­ar­þingi. Auk þess má vænta upp­færðrar aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum á næstu miss­erum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálarráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mál­ar­ráð­herra.

Tímabært að byggingariðnaðurinn hætti að vera hluti af loftslagsvandanum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur þó að und­an­förnu beint sjónum sínum að losun bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins hér á landi. Fyrr í októ­ber fund­uðu bygg­ingar- og hús­næð­is­mála­ráð­herrar Norð­ur­land­anna, þar á meðal Ásmundur Einar, um bygg­ing­ar­iðn­að­inn á Norð­ur­lönd­unum en þriðj­ungur af losun nor­rænu land­anna á koltví­sýr­ingi kemur frá hús­næði og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Ráð­herr­arnir sam­mælt­ust um draga þurfi úr losun koltví­sýr­ings frá hús­næði og bygg­ing­ar­iðn­aði á Norð­ur­löndum og skuld­bundu ráð­herr­arnir sig til leit­ast við að vera í far­ar­broddi á heims­vísu þegar kemur að þessum málum.

Í yfir­lýs­ingu ráð­herr­anna segir að stefnt sé að auknu sam­ráði land­anna til að draga úr losun og hvetja þeir aðila innan bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins og fast­eigna­geirans til að taka höndum saman um nor­ræna sam­stöðu um bygg­ing­ar­fram­kvæmdir með lága koltví­sýr­ingslosun. Auk þess leggja ráð­herr­arnir áherslu á hringrás­ar­hag­kerfi og kalla eftir laga­setn­ingu á evr­ópskum vett­vangi sem ýti undir aukna end­ur­nýt­ingu bygg­ing­ar­efnis en bygg­ingar sem hafa þegar verið reistar geyma mikið af not­hæfu bygg­ing­ar­efni,

„Mark­mið­inu um að gera Norð­ur­lönd að kolefn­is­hlut­lausu svæði, sem nor­rænu for­sæt­is­ráð­herr­arnir sam­þykktu á fundi sínum í ágúst, verður ekki náð nema hús­næðis- og bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn bregð­ist hratt við. Það er löngu tíma­bært að bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn hætti að vera hluti af lofts­lags­vand­anum og verði hluti af lausn­inni,“ var haft eftir Ásmundi Einari á vef Stjórn­ar­ráðs­ins eftir fund­inn.

Það er löngu tíma­bært að bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn hætti að vera hluti af lofts­lags­vand­anum og verði hluti af lausn­inni.

Stjórnvöld mega gera miklu betur

Þór­hildur Fjóla Krist­jáns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Grænni byggðar, segir í sam­tali við Kjarnann að umræðan um sjálf­bærni í bygg­ing­ar­iðn­aði hafi vissu­lega auk­ist hér á landi á síð­ustu árum og ýmis­legt jákvætt komið upp úr krafs­inu í kjöl­farið. 

Að hennar mati mættu íslensk stjórn­völd aftur á móti gera mun betur þegar kemur mála­flokknum og segir hún það í raun ótrú­lega skrítið að stjórn­völd hafi ekki markað sér neina heild­stæða stefnu fyrir bygg­ing­ar­iðn­að­inn. 

Grænni byggð er vett­vangur um vist­væna þróun sem hét áður Vist­byggða­ráð og var stofnað 2010. Nafninu var breytt nýlega þegar sam­tökin gengu í alþjóð­leg sam­tök sem heita World Green Building Councils. Innan Grænni byggðar eru 46 aðild­ar­fé­lög um allt land og er mark­mið sam­tak­anna að breyta hinu byggða umhverfi til vist­vænni hátta þannig að Ísland standi við skuld­bind­ingar sínar í lofts­lags­málum. 

Samtökin hafa ekki enn komið að stefnu­mótun á vegum hins opin­bera en sam­tökin hafa hlotið styrki fyrir rann­sóknir og skýrslu­gerð frá Umhverf­is­stofnun og Mann­virkja­stofnun

Þór­hildur Fjóla bendir meðal ann­ars á að rík­is­stjórnin hafi ekk­ert minnst á umhverf­is­á­hrif bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins þegar hún kynnti skipun átaks­hóp um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði í nóv­em­ber í fyrra, tveimur mán­uðum eftir að aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum var kynnt.

Engin áhersla lögð á kolefnisspor byggingargeirans

Grænni byggð skil­aði jafn­framt inn umsögn um aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum þar sem sam­tökin gagn­rýna að engin áhersla sé lögð á bygg­ing­ar­geir­ann í áætl­un­inni. Samtökin leggja meðal ann­ars til í umsögn sinni að ríkið setji sér mark­mið um að stuðla að og inn­leiða fjár­hags­lega hvata og flýti­með­ferðir fyrir vist­vænar bygg­ingar.

Enn fremur stinga sam­tökin upp á að stjórn­völd fjár­magni vist­ferl­is­grein­ingar á fimm opin­berum bygg­ingum í ár til að auka þekk­ingu. Samtökin telja jafn­framt að útreikn­ingar á kolefn­is­spori fram­kvæmda ætti að vera eðli­legur hluti af umhverf­is­mati

Að mati Grænni byggðar þarf að kort­leggja betur kolefn­i­spor frá bygg­ing­ar­iðn­aði hér á landi þar sem núver­andi tölur um losun sé ábóta­vant en með slíkri kort­lagn­ingu væri hægt að fara í til­hlýð­legar mót­væg­is­að­gerðir.

„Hvernig við stað­setjum, hönnun, byggjum, rekum og tökum niður bygg­ingar er mik­il­vægt umhverfis- og lofts­lags­mál. Ef við þekkjum ekki stöð­una nógu vel er erfitt að setja sér mark­mið. En bygg­ing­ar­fram­kvæmdir og rekstur bygg­inga á Íslandi getur verið mun kolefn­isvænni og umhverf­is­vænni en í dag og við verðum að sjá jákvæða fram­þróun í þeim geira eins og í öðrum geirum,“ segir að lokum í umsögn­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár