Þögult auðmagn og þögult vald

Ríkasta eina pró­sent heims­ins hefur breytt neyslu­mynstri sínu og farið frá því að kepp­ast við að sýna hver er rík­astur með lífs­stíl, snekkjum og merkja­vöru, yfir í að fjár­festa í menntun, heilsu og lang­lífi. Félags­fræð­ingur segir það gert til að aðgreina sig, bæði frá almenn­ingi og öðrum sem bera það utan á sér að eiga pen­inga. Það þykir þeim allra rík­ustu ekki lengur smart.

Að hanna ein­kenn­is­klæðnað auð­kýf­inga,“ þannig lýsti hönn­uður tísku­húss­ins Brunello Cucinelli, sem vin­sælt er á meðal rík­asta eina pró­sents­ins, starfi sínu í við­tali við New York Times. 

Merkið er kennt við hönnuð sem hætti í verk­fræði­námi og not­aði 550 doll­ara lán til að koma á markað tísku­línu úr hágæða­efnum árið 1978. Fyrir vikið er hann stundum kall­aður kon­ungur kasmírs­ins. Klæðn­að­ur­inn er lát­laus og merkja­laus, eitt af því sem ein­kennir hið þögla auð­magn. 

Hug­myndin um hið þögla auð­magn og þögla vald birt­ist í hinum sívin­sælu sjón­varps­þáttum Succession. Frá því að þeir hófu göngu sína árið 2018 hafa þeir sópað að sér bæði verð­launum og lofi. Þætt­irnir fylgja eftir Roy-systkin­unum, þeim Kendall, Shiv, Roman og Connor. Systk­inin kepp­ast við að ná athygli og sam­þykki föður síns, Logan Roy fjöl­miðla­mó­guls, í þeirri von að verða einn dag­inn, þrátt fyrir van­hæfi þeirra, arf­takar hans. Það er sú tog­streita sem vísað er í titli …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár