Á miðjum Reykjanesskaganum eru tveir fjallahryggir sem setja sterkan svip á landslag skagans. Þeir teygja sig frá suðvestri til norðausturs eftir sprungustefnu eldstöðvarkerfanna á skaganum enda mynduðust þeir við endurtekin sprungugos undir ísaldarjökli. Annar þeirra heitir Sveifluháls, sem ásamt Brennisteinsfjöllum í vestri, rammar inn Krýsuvík. Hinn liggur vestar og heitir Núpshlíðarháls og upp af honum rís sjálf Trölladyngja, eitt af formfegurri fjöllum Reykjanesskagans. Trölladyngjusvæðið tilheyrir líklega sama eldstöðvarkerfinu og Krýsuvík enda liggja þau nálægt hvort öðru. Saman mynda þessi svæði afar áhugavert gönguland í magnaðri eldfjallanáttúru stutt frá mesta þéttbýli landsins. Í því eru verðmæti þessa svæðis fólgin. Auðlind er ekki endilega náttúrusvæði sem hægt er að setja undir borteiga eða sökkva í uppistöðulón. Auðlind er líka fólgin í lítt snortinni náttúru.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir