Ferðaþjónustuaðilar telja hana fara illa saman með orkuvinnslu

Margir ferða­þjón­ustu­að­ilar telja rekstur hennar bera skaða af orku­vinnslu, sam­kvæmt nýrri grein í Tímariti um við­skipti og efna­hags­mál.

Ferðamenn við Skógafoss.
Ferða­menn við Skóga­foss. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Margir aðilar í ferða­þjón­ustu telja rekstur hennar bera skaða af orku­vinnslu og virkj­ana­fram­kvæmdum víða um landið. Þetta er nið­ur­staða greinar Önnu Dóru Sæþórs­dóttur og Þorkels Stef­áns­sonar í nýjasta tölu­blaði Tímarits um við­skipti og efna­hags­mál.

Grein­ar­höf­undar tóku við­tal við 65 ferða­þjón­ustu­að­ila á sex svæðum á land­inu. 
Að mati þeirra er ferða­þjón­ustan sú atvinnu­grein sem býður upp á mesta mögu­leika til fram­tíðar til að efla atvinnu­líf í dreif­býli, en flestir þeirra hefðu séð þess glögg merki und­an­farin ár. 
Spurt var um byggð­ar­á­hrif grein­anna tveggja, en auð­lindir ferða­þjón­ust­unnar orku­vinnslu dreifast víða og hafa á und­an­förnum ára­tugum nýst til að efla byggðir lands­ins, sam­kvæmt grein­ar­höf­undum.

Náttúruvernd orðin arðbær

Virkj­unum og stór­iðju hafi lengi verið hampað af stjórn­völdum sem einni mik­il­væg­ustu leið til að efla byggð í land­inu og oft á tíðum einu leið­inni. Á síð­ustu árum hafi umfang ferða­þjón­ustu í hag­kerf­inu hins vegar marg­fald­ast og er greinin orðin stærsta gjald­eyr­is­skap­andi atvinnu­grein lands­ins. Í ljósi þess að nátt­úran er aðal­á­stæða þess að ferða­menn koma hingað til lands hafi hún fengið aukið verð­gildi, en þannig fengju nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið nú meiri þunga í umræð­unni en áður.

Margar fyr­ir­hug­aðar virkj­anir eru nálægt nátt­úru­skoð­un­ar­stöðum, en margir við­mæl­endur grein­ar­höf­unda töldu að frek­ari virkj­ana­fram­kvæmdir myndu rýra mögu­leika ferða­þjón­ust­unnar að efla byggð í land­inu. Að sögn þeirra skera orku­mann­virki sig úr lítt snort­inni nátt­úru og hafa því nei­kvæð áhrif á aðdrátt­ar­afl stað­anna. Þannig töldu flestir svæðin verða minna áhuga­verð til nátt­úru­skoð­unar ef þar yrðu reistar virkj­anir. 

Margir töldu jafn­framt að ímynd Íslands sem villtrar, óspilltrar og fram­andi nátt­úru væri stefnt í hættu, en ímynd er einn af áhrifa­þáttum á val áfanga­staðar. Það sé í góðu sam­ræmi við nið­ur­stöður fræði­manna á þessu sviði, en margir þeirra benda á að víð­erni og lítt snortin svæði fari minnk­andi í heim­inum. Samhliða því má búast við að verð­mæti óbyggða sem auð­lindar fyrir ferða­þjón­ust­una eigi eftir að aukast með hverju ári.

Takmörkuð byggðaráhrif

Margir við­mæl­enda bentu einnig á að tekjur af báðum atvinnu­grein­unum mættu skila sér betur til svæð­anna þar sem þær verða til.

Grunn­for­senda þess að íbúar séu sam­þykkir virkjun sé gjarnan sú að hún skapi lang­tíma­störf í sveit­ar­fé­lag­inu. Hins vegar renni þau flest til aðkomu­fólks frekar en íbúa á svæð­inu. Eins geti komið fyrir að sveit­ar­fé­lög sem verða fyrir umhverf­is­rasks vegna orku­vinnslu fái ekki neinar bætur.

Vandamál af svip­uðum toga þekkj­ast einnig í ferða­þjón­ustu en henni sé víða haldið uppi með aðfluttu vinnu­afli. Enn fremur skila tekj­urnar af starf­sem­inni sér sjaldan til svæð­is­ins þar sem auð­lind­ina er að finna, starf­semi fyr­ir­tækja sem selja ferðir um landið sé venju­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig mættu byggð­ar­á­hrif beggja greina vera meiri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár