„Þau sem stjórna þessu landi vilja taka sér langt og gott jólafrí“

Formaður Eflingar segir að tím­inn til við­ræðna um boð­lega lausn á kjara­deilum hafi ekki verið vel nýttur und­an­farin miss­eri. Hún telur íslenska verka­lýðs­bar­áttu hafa verið staðn­aða árum saman.

„Ég trúi ekki öðrum en að fólk taki þessu mjög alvar­lega og leggi sig allt fram um að ein­beita sér að þessu verk­efni. En það er auð­vitað mjög margt annað sem athyglin bein­ist að. Svo veit ég líka að þau sem stjórna þessu landi vilja taka sér langt og gott jóla­frí. Þannig að við sjáum hvað ger­ist. En við erum alla­veg­anna á fullu.“ Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, þegar hún er spurð hvort að hún sé von­góð um að samn­ingar náist á vinnu­mark­aði áður en kjara­samn­ingar renna út í lok þessa mán­aðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við hana í þætt­inum 21 sem sýndur er á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Hægt er að sjá stiklu úr við­tal­inu hér að neðan.

Hún segir að tím­inn und­an­farin miss­eri hafi ekki verið vel nýttur til að reyna að finna við­un­andi nið­ur­stöðu. „Við í Eflingu höfum á móti ákveðið að nýta okkar tíma mjög vel. Þar sem við erum ann­ars vegar að vinna þessa vinnu sem snýr beint að þessum kjara­samn­inga­málum. En svo erum við líka að heyja okkar bar­áttu á öðrum víg­stöðvum.[...]að miðla okkar boð­skap til sem flestar. Og ég ætla bara að fá að segja að þessi könnun sem nið­ur­stöð­urnar birt­ust úr í gær, sem snýr að almennu sam­þykki íslensks almenn­ings á því að verk­föll séu rétt­læt­an­leg, ég ætla að trúa því að okkar vinna í því að kynna að lífs­kjör og kynna til­veru lág­launa­fólks á Íslandi fyrir almenn­ingi. Að þarna séum við að upp­skera.“

[adspot]Aðspurð um hvenær verk­falls­að­gerðir gætu mögu­lega haf­ist, ef til þeirra kæmi, segir Sólveig Anna að hún og félagar hennar taki þessa bar­áttu mjög alvar­lega og vilji vanda sig. „Og við áttum okkur líka á því hversu stöðnuð íslensk verka­lýðs­bar­átta hefur verið und­an­farið og hversu lengi hún hefur hjakkað í sama far­inu þá sé löngu tíma­bært að end­ur­hugsa hvernig við sjáum fyrir okkur aðgerðir. Á Íslandi eru öll verka­lýðs­mál nið­ur­njörvuð í lag­ara­mma og allt spil­ast eftir mjög föstum reglum. Þetta er hefð sem byggir á því að það sé eitt­hvað rétt­læti í sam­skiptum atvinnu­rek­enda og vinnu­aflsins. En svo þegar kap­ít­al­ism­inn skiptir um gír og keyrir sig inn í nýfrjáls­hyggj­una og alþjóða­væð­ing­una með öllu því upp­námi sem því fylgir fyrir vinnu­aflið þá þarf vinnu­aflið líka að end­ur­hugsa hvernig það á að berj­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár