Stéttaskipting í kókópöffspakka

Tvær vin­konur hitt­ast og ræða um ólíka sýn á lífið og upp­lif­anir. Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir spjall­aði við Berg­lindi Rós Magn­ús­dóttur, dós­ent við mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands, um for­rétt­indi og stétta­vit­und.

Ég var sautján ára vand­ræðaung­lingur þegar ég kynnt­ist Berg­lindi Rós Magn­ús­dóttur, dós­ent við mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands. Þá hafði ég flosnað upp úr tveimur fram­halds­skólum, ennþá nokkuð tætt eftir líf­legan skilnað for­eldra minna og stans­laust djamm síðan ég var fjórtán ára, í ofaná­lag nýgreind með floga­veiki. Ég upp­lifði mig utan­garðs og þótt­ist hafa marga fjör­una sopið eftir sum­ar­vinnu við garð­yrkju og fisk­vinnslu. Í augum vin­konu minnar naut ég hins vegar for­rétt­inda – og ég gerði það án þess að átta mig á því, eins og oft er raunin með for­rétt­indapésa. Í augum mínum var það hún sem naut eft­ir­sókn­ar­verð­ustu for­rétt­inda heims­ins því hún var svo áber­andi sæt.

Ég hafði verið sel­flutt í Mennta­skól­ann á Akureyri kortéri í skóla­setn­ingu fyrir til­stilli ætt­ingja en föð­ur­afi minn hafði eitt sinn kennt við skól­ann. Og þá hvarfl­aði ekki einu sinni að mér að það gætu verið for­rétt­indi.

Okkur Berg­lindi Rós var úthlutað saman her­bergi á heima­vist­inni. Berglind átti að hafa góð áhrif á mig, kom­andi úr soll­inum í Reykja­vík, en hún frá afskekktum sveitabæ í Skaga­firði. Við höfðum vissu­lega áhrif hvor á aðra en kannski ekki góð að mati skóla­yf­ir­valda – þó svo í dag álíti Berglind að við höfum haft mik­il­væg áhrif hvor á aðra á við­kvæmu mót­un­ar­skeiði. Berglind Rós er nú með dokt­ors­gráðu í félags­fræði mennt­unar frá Cambridge háskóla í Bret­landi en hún stund­aði einnig nám í Cornell háskól­anum í Banda­ríkj­unum.

Síð­ast­liðið sumar sátum við á ind­verskum veit­inga­stað í Berlín, búnar að drekka nógu mikið létt­vín til að vera kæru­leys­is­lega bein­skeyttar í tali þegar hún sagði: „Ég varð að klára þessi próf, ann­ars hefði ég hvorki kom­ist lönd né strönd. En þú þurftir þess ekki. Þú próf­aðir félags­lífið í nógu mörgum mennta­skólum til að ná þér í tengsla­net og til­einka þér það sem þú þurftir fyrir lífið.“

„Eru mennta­skólar til þess að ná sér í tengsla­net?“ fliss­aði ég. Mennta­dokt­or­inn glotti svo ögrandi að ég fuss­aði að tengsla­net hefði ekk­ert með skrifin mín að gera – búin að fá lífs­tíð­ar­skammt af aðdrótt­unum um að ég hafi fæðst með silf­ur­skeið menn­ing­arma­fíósa í munni.

„Skrifin standa fyrir sínu,“ sagði hún, „en þú komst úr þannig umhverfi að þegar við kynnt­umst barstu enga virð­ingu fyrir valdi heldur gerðir það sem þú vildir gera. Þú tókst þér stöðu utan kerfs­ins en gast alltaf gengið að opnum dyrum, þú vissir hvert þú ættir að leita og hvað þú ættir að segja. Það eru for­rétt­indi, ákveðið auð­magn.“

Auðmagn menntskælings

Ég var hugsi yfir orðum hennar, þó að við höfum oft rætt ólíkan bak­grunn okkar: Berglind Rós alin upp hjá ömmu sinni og afa í Fljót­unum meðan ég átti nokkra þjóð­þekkta nána ætt­ingja. Á ung­lings­árum kom fyrir að hún væri húð­skömmuð en ég tekin silki­hönskum fyrir sömu heimsku­pörin.

Við stigum báðar tættar inn í tán­ings­árin en vin­átta okkar er samt lif­andi dæmi um öll ósýni­legu lögin af for­rétt­indum sem gegn­um­sýra sam­fé­lag og hafa orðið henni ótæm­andi upp­spretta í akademískar rann­sóknir og mér hvatn­ing til að nota „Almenn­ings­á­litið er ekki til“ eftir Bourdieu sem kló­sett­bók svo ég hafi roð við henni í rök­ræðum sem þessum. Eða þegar hún segir hluti á borð við: „Mennta­skólar eru stofn­anir upp­haf­lega hann­aðar fyrir emb­ætt­is­manna­stétt­ina og síðar milli­stétt­ina til að læra góða siði og öðl­ast réttu þekk­ing­una fyrir fólk í þeirri stöðu, rétta stíl­inn og tungu­málið fyrir opin­beran erind­rekstur. Makaval er oft hluti af áður­nefndum félagsauði, það er vel þekkt í rann­sóknum að tengsl sem mynd­ast í þessum skólum nýt­ast oft síðar.“

Jú, tengslin við Berg­lindi Rós síðan í menntó nýt­ast mér ennþá í líf­inu – eins og í við­talið hér.

Reykt og ögrað

Og hún hefur frá­sögn­ina: „Heima hafði ég orðið fyrir miklum áhrifum frá frænku minni, þremur árum eldri, sem var send í sveit til okkar og ærði upp í mér upp­reisn­ar­and­ann um leið og hún gaf mér inn­sýn í nýja heima. Ein af okkar upp­reisnum fólst í að neita að vinna á sunnu­dögum því það væri óskor­aður réttur verka­fólks að eiga frí! Í sveit­inni var vinnu­harka og ég fór að vinna fullan vinnu­dag með vinnu­fólk­inu um tíu ára aldur. Ég hefði getað haldið stórt heim­ili tólf ára, svo mikið kunni ég til heim­il­is­verka. Við fengum þessi rétt­indi í gegn, við María frænka mín, og gátum safnað frí­dögum saman ef við neydd­umst til að heyja á sunnu­dögum.

Í níunda bekk þótti ég svo óþekk að Páll skóla­stjóri í Varma­hlíð var alveg að gef­ast upp og varði drjúgum tíma í að kalla mig inn á skrif­stofu og reyna að aga mig með litlum árangri. Vandinn fólst aðal­lega í að ég reykti og stimp­að­ist við að hætta því og hann var viss um að ég myndi kenna öllum skól­anum að reykja. En í tíunda bekk varð ég svo aftur „góða stelpan“ vegna ákveð­innar lífs­reynslu sum­arið á undan og hélt mínu striki í nám­inu. Það fleytti mér inn í MA.

Þú varst ekki lengi að vekja upp­reisn­aró­væruna í mér sem hafði legið í dvala en fann sér nú öfl­ugan banda­mann.

Þegar ég byrj­aði í MA, fimmtán ára, var ég stað­ráðin í að standa mig því mér hefði hlotn­ast sú gæfa að kom­ast inn í þennan fína skóla, þrátt fyrir allt og allt. Ég bar ótta­blandna virð­ingu fyrir honum, alls ekki viss um að ég væri verðug alls þessa. Þetta ýtti undir nokkuð óspjall­aða ímynd fyrstu tvö árin í MA og ég var því talin heppi­legur her­berg­is­fé­lagi fyrir betr­un­ar­vist þína á heima­vist­inni. Þú varst ekki lengi að vekja upp­reisn­aró­væruna í mér sem hafði legið í dvala en fann sér nú öfl­ugan banda­mann. Þessi banda­maður hafði, ólíkt öllum öðrum óþekkt­ar­ormum sem ég hafði kynnst, virð­ingu og enda­laust umburð­ar­lyndi hjá vald­höfum. Svo ég byrj­aði aftur að reykja og ögra – í skjóli þínu.“

Vissan um að vera reddað

„Það sem ég upp­lifði strax þegar ég sá þig var að þú komst úr allt öðrum menn­ing­ar­heimi og þú barst það með þér, þú varst í allt öðru­vísi fötum en flestir á Akureyri á þessum tíma,“ segir Berglind.

„Ég var í ljósum galla­buxum og nokkuð flegnum bol og þú í skræp­óttum sokka­buxum og lufsuskokki. Þér fannst mat­ur­inn í mötu­neyt­inu mjög vondur en ég var þakk­lát fyrir hann því ég hafði slæma reynslu af mötu­neyti síð­asta heima­vist­ar­skól­ans sem ég hafði verið í og var alin upp við að vera þakk­lát fyrir það sem var boðið upp á. Maður átti ein­fald­lega að vera þakk­látur og þakka fyrir sig.

Fyrsta sem þú gerðir var að fara út í búð og kaupa kókópöffs,“ rifjar Berglind upp og hlær við minn­ing­una.

„Fyrir mér var þetta raunar van­þakk­læti því þetta var frekar gott mötu­neyti miðað við það sem tíðk­að­ist í skólum. Á sunnu­dögum var til dæmis heitt kakó og vöfflur – að vísu misstum við mjög gjarnan af sunnu­dags­morg­un­matnum vegna anna­samra laug­ar­dags­kvölda. En þér fannst það allt í lagi meðan ég upp­lifði það sem svo­lítið drama, að missa af þessu fína hlað­borði. Hlaðborð lífs­ins eru einnig mis­jafn­lega upp­dekkuð. Þú barst með þér að hafa aldrei þurft að gera neitt sem þig lang­aði ekki til að gera.“

„Jú, reyndar,“ langar mig að skjóta inn í því ég hafði unnið tíu tíma á dag í bæði garð­yrkju og fisk­vinnslu síðan ég var þrettán ára – og meira að segja líka á kass­anum í Hagkaup – en eitt­hvað svipað gerðu hvort sem er allir af þess­ari barna­vinnu-kyn­slóð, svo ég læt það slæda og Berglind heldur áfram:

„Það gat hins vegar komið sér vel að geta ein­beitt sér að lær­dómi sem maður hafði engan sér­stakan áhuga á og þar skildi á milli okkar. Gera þarf fleira en gott þykir er máls­háttur minnar barn­æsku en lík­lega ekki þinnar,“ botnar hún og minnir mig eitt augna­blik á ömmu mína. Það er ekki laust við að ég blygð­ist mín við að heyra þetta – en það er hollt að hlusta.

„Fyrir fólk sem treystir á kerfið er svo mik­il­vægt að það virki og sé gott,“ útskýrir Berglind þegar hún tengir for­tíð okkar við fræðin. „Að það séu gæði í kerf­inu því flestir þurfa að treysta á almennt mennta­kerfi. En þetta var þriðji skól­inn sem þú fórst í svo þú hafðir líka sam­an­burð og barst enga sér­staka virð­ingu fyrir þessum skóla umfram annan. Þú vissir að þér yrði reddað inn í annan skóla ef þú stæðir þig ekki. En ég vissi að ef ég myndi ekki standa mig þá væri mín veg­ferð öllu óljós­ari, ekki skrifuð í mín ætt­ar­ský, og ég færi jafn­vel bara að hreinsa dún í sveit­inni með allri þeirri félags­legu ein­angrun sem því fylgdi.“

Auður og Berglind Rós
Auður og Berglind Rós

Líkamleg stéttavitund

Þetta er hræði­legt! and­varpa ég við tak­mark­aða samúð vin­konu minnar sem heldur áfram sínum vægð­ar­lausa mál­flutn­ingi: „Í lægri stéttum ber maður aðeins meiri virð­ingu fyrir því sem fyrir mann er lagt. Líka af því að maður hefur ekki yfir­sýn yfir þá mögu­leika sem fel­ast í for­rétt­indum þeirra sem eru ofar í stétta­lög­unum. Það var svo mikið diss í þér.

Þú sást alltaf leið til að vald­efla sjálfa þig í því kerfi sem þú varst sett inn í án þess að það snerti námið á nokkurn hátt – eins og þegar við stofn­uðum Ævin­týra­fé­lagið en þannig komstu þér fyrst á fram­færi; með því að búa til félag á for­sendum þínum. Hin félögin voru þessi hefð­bundnu; póli­tísk félög, íþrótta­fé­lög eða leik­fé­lagið sem er harla ólík­legt að þú hefðir getað sam­stundis orðið for­maður í.

Þú varst fyrsta stelpan sem ég kynnt­ist sem varst ófeimin við að taka þér rými og rödd, oft á óljósum for­sendum. Fyrir þá sem eru ekki vanir því að vera í sviðs­ljós­inu þarf það gjarnan að vera skýrt að ef stigið er inn í það ljós hafi við­kom­andi aug­ljóst erindi. En það þurfti ekk­ert svo­leiðis, þú varst viss um að þú ættir erindi og ég get skýrt það með þínum félags­lega bak­grunni.“

„Láttu gossa!“

„Ég ólst upp við það að konan hafði vald en það var bundið við einka­sviðið; heim­ili og börn og í besta falli kennslu (börn) ef það snerti opin­bera sviðið. Konurnar í sveit­inni höfðu nán­ast enga rödd á opin­berum vett­vangi, s.s. í gegnum stjórn­ar­setu. Konurnar í kven­fé­lag­inu fengu að baka fyrir fund­ina og safna pen­ingum í góð­gerð­ar­starf­semi. Amma mín var mjög feimin og vakti aldrei á sér athygli á opin­berum vett­vangi en ekki vant­aði hana gáfur eða góðar til­lögur frekar en aðrar konur í sveit­inni en það var þá gjarnan afgreitt við eld­hús­borðið.

Þetta elst ég upp við svo það var mjög hressandi að upp­lifa þessa nálgun. Ég man að þegar verið var að kjósa í nem­enda­fé­lagi MA–þrátt fyrir að Ísland hefði þá átt sinn kven­for­seta og rauð­sokkur og allt það – þurftu stelp­urnar sem buðu sig fram svo­lítið að sýna að þær væru ekki bara athygl­is­sjúkar. Þær ættu raun­veru­legt erindi. En þér var alveg sama þó að ein­hver segði að þú værir athygl­is­sjúk.

Stétt lík­amn­ast í okkur. Þú varst miklu frjáls­ari af hefð­bundnum hug­myndum um kven­leika sem er haldið mjög að ungum stúlkum á öllum tímum.

Ég man meira að segja eftir til­finn­ing­unni í lík­am­anum þegar ég var að brjót­ast út úr þessu gamla hafta­kerfi upp­runa míns með þig mér við hlið. Þú stóðst keik og stundum bók­staf­lega bull­aðir í ein­hvern hljóð­nema og ég leið kvalir á meðan því ég sá hryll­ings­svip­inn á fólki: Þær, eina ferð­ina enn! Alltaf að taka rými og pláss og halda að þær séu eitt­hvað!“ Berglind hlær og hristir höf­uðið yfir þessum stelpum sem við vorum einu sinni. „Þetta er lík­am­legt minni, þetta var hræði­legt – en kómískt um leið og bráð­nauð­syn­legt. Til að breyta sög­unni sem hefur tekið sér ból­festu í lík­am­anum þarf ögrun, til­hlaup og dass af van­líðan – um stund­ar­sakir.

Þegar tók að vora höfðum við næstum því skrópað okkur út úr skól­anum en í raun hafði ég aldrei lært eins mikið um og verið jafn mik­ill þátt­tak­andi í sam­fé­lagi eins og þennan vetur.“

Hefðbundnar hugmyndir um kvenleika

„Stétt lík­amn­ast í okkur. Þú varst miklu frjáls­ari af hefð­bundnum hug­myndum um kven­leika sem er haldið mjög að ungum stúlkum á öllum tímum. Nú erum við að tala um tvær stelpur svo þetta er ekki bara kynja­kerfið, sem við erum að tala um, heldur sam­spil kynja- og stétta­kerf­is­ins. Þú ert alin upp við konur sem tóku sér rými og höfðu rödd og vægi í fjöl­miðlum og sviðs­ljósi sam­fé­lags­ins. Reyndu það að minnsta kosti og höfðu að mark­miði að vera hluti af vald­inu en um leið að brjóta upp karllægar valda­form­gerðir sam­fé­lags­ins. Mamma þín var ögrandi pistla­höf­undur, stjúp­móðir þín þing­maður, móð­ur­systir leik­stjóri og amma þín „fram­kvæmda­stjóri Nóbels“ á Íslandi.

Allar þessar konur höfðu tengsl inn í valda­stétt sam­fé­lags­ins, og voru hluti af menn­ingar- og stjórn­mála­el­ítu lands­ins. Að hafa slík tengsl frá blautu barns­beini hefur gríð­ar­leg mót­un­ar­á­hrif, eins og hvernig þú kemur fram á kvöld­vöku í Mennta­skól­anum á Akureyri eða hvar sem er. Þú veist að þú hefur engu að tapa. Þú getur bara farið úr þessum skóla í annan, ef þú gengur of langt. Það er þessi hreyf­an­leiki sem teng­ist svo elítu-stétt­ar­stöð­unni; þeir sem eru neðar í stétt­ar­lögum hafa ekki þennan hreyf­an­leika og þessa yfir­sýn. Þeir eru miklu fast­ari í þeim veru­leika sem þeim er úthlutað.

Svona virkar stétt­ar­kerfið. Og við þurfum að tala um menn­ing­ar­legar og félags­legar for­sendur – og afleið­ingar – stétt­skipt­ingar. Við þurfum að afbyggja hug­mynd­ina að Ísland sé og hafi verið stétt­laust sam­fé­lag.“

Ákveðnir skólar sinntu ákveðnum ættum

Berglind Rós var dug­leg í námi og ári á undan í skóla, og komst inn í MA á þeim for­sendum. Hún upp­lifði stolt yfir sjálfri sér að hafa kom­ist inn í skól­ann.

„Það voru tvær fjöl­skyldur í sveit­inni sem höfðu farið þarna. En á sama tíma upp­lifði ég að ég var nafn­laus í þessum skóla því ég var ekki dóttir eða ætt­ingi ein­hvers sem hafði verið þarna, ég var bara Magn­ús­dóttir úr afskekktri sveit. Ég átti enga sögu þarna. Þegar fyrsti fundur með nem­endum var hald­inn á heima­vist­inni var spurt: Réttið upp hönd sem hafið átt ætt­ingja hérna? Og það voru mjög margir. Þetta er birt­inga­mynd af því hvernig ákveðnir skólar sinntu til­teknum ættum á Íslandi. Í til­felli þínu hafði föð­ur­ætt þín verið þarna og þess vegna hafðir þú miklu opn­ara aðgengi að skól­anum og þurftir ekki að sýna fram á til­teknar ein­kunnir til að kom­ast inn í skól­ann eða til­tekna hegðun til að fá að vera í skól­anum. Flestir þurftu t.d. að mæta í skól­ann og ná prófum,“ – nú flissar Berglind – „og á þessum árum var mikið brott­fall úr skól­anum á fyrstu og annarri önn náms­ins sem skýrð­ist af próf­nið­ur­stöðum. Þetta er birt­ing­ar­myndin af þínum ætt­ar­auði.“

„Ég er með smá aum­ingja­hroll hér!“

„Æ æ,“ segir Berglind áður en hún heldur útskýr­ing­unum áfram: „Maður skynj­aði hjá sumum að það var gerður munur á fólki eftir tengslum. Síðar, þegar ég kynn­ist pabba mínum betur, átta ég mig á að hann kemur af slekti nátengdu MR, þar sem afi minn hafði verið kenn­ari og afkom­andi Halldórs Kr. Frið­riks­sonar yfir­kenn­ara Lærða skól­ans og meira og minna öll föð­ur­ættin hafði verið hluti af fámennri yfir­stétt á hinu gamla Íslandi. En af því að ég elst ekki upp hjá pabba mínum er ég ekk­ert inni í því. Síðar meir fæ ég betri inn­sýn í þennan heim þegar ég flyt til Reykja­víkur og kynn­ist föður mínum betur og það jók enn frekar áhuga minn á stéttapæl­ingum. Nýverið skrif­aði ég kafla um langömmur mínar í bók­ina Margar myndir ömmu um stétt­ar­fall for­mæðra minna sem voru um fer­tugt þegar konur fengu kosn­inga­rétt. Önnur þeirra gift­ist sýslu­manni og hin kaup­sýslu­manni en þær missa þessa eig­in­menn og þá tekur við mjög erfitt ástand. Það sem hefur verið að ger­ast á síð­ustu þrjá­tíu eða fjöru­tíu árum á Íslandi er að milli­stéttin hefur stækkað mjög hratt í gegnum þekk­ing­ar­hag­kerfið og háskóla­gráð­urnar. Margir Íslend­ingar hafa upp­lifað þetta.“

Mikilvægi blöndunar

Á síð­ustu fjöru­tíu árum hafa fjöl­margir Íslend­ingar færst milli stétta og orðið fyrsta kyn­slóðin til að verða háskóla­mennt­aðir sér­fræð­ingar, að sögn Berg­lindar, en þá er hún að tala um milli­stétt­ina. Þetta hefur gerst um allan hinn vest­ræna heim. Á sama tíma, þá sér­stak­lega á síð­ustu tutt­ugu árum, hefur fjár­hags­leg stétt­skipt­ing auk­ist gríð­ar­lega. Hug­myndin um frelsi ein­stak­lings og að allir hafi sama aðgengi að frama og vel­gengni er sterk í íslensku sam­fé­lagi.

„Fólk með mjög ein­faldar hug­myndir um stétt horfir fyrst og fremst á fjár­hags­mis­munun,“ segir hún. „En í raun­inni erum við með tvo valda­vett­vanga sem gjarnan takast á um leik­regl­urnar á póli­tískum vett­vangi og hvað eigi að skil­greina sem raun­veru­leg verð­mæti. Annars vegar höfum við við­skipta­el­ít­una (hægrið), hins vegar menn­ing­ar­el­ít­una (vinstrið) en á síð­ustu árum hafa skilin milli þess­ara póla orðið óljós­ari.

Fólk með mjög ein­faldar hug­myndir um stétt horfir fyrst og fremst á fjár­hags­mis­munun. En í raun­inni erum við með tvo valda­vett­vanga sem gjarnan takast á um leik­regl­urnar á póli­tískum vett­vangi og hvað eigi að skil­greina sem raun­veru­leg verð­mæti.

Búið er að við­skipta­væða meira og minna alla vett­vanga sam­fé­lags­ins sem krist­all­ast m.a. í því að erfitt er að halda úti námi sem hefur ekki aug­ljósan efna­hags­legan hvata. Gerðar eru skýrslur til að sýna fram á efna­hags­legan gróða af menn­ing­unni. Hún má ekki lengur hafa bara gildi í sjálfu sér, þ.e. hafa það hlut­verk að gera okkur mennsk­ari. Hana, eins og allt annað, þarf að rétt­læta með hag­vexti. Í umræðu um stétt er gjarnan ein­blínt á fjár­hags­lega mis­skipt­ingu sem auð­vitað skiptir gríð­ar­legu máli en þá gleym­ist að skoða menn­ing­ar­lega mis­skipt­ingu – en þar komum við að skóla­kerf­inu.

Þeir sem vilja raun­veru­legan jöfnuð þurfa að móta stefnur sem ýta undir stétta- og menn­ing­ar­blöndun í skólum og að ólíkir hópar komi þar saman og kynn­ist. Skóla­ganga er nefni­lega ekki bara bundin við náms­efni og tíma­sókn. Í skólum gefst tæki­færi til að kynn­ast marg­breyti­leika sam­fé­lags­ins.“

Hún tekur breska skóla­kerfið sem dæmi: „Sjáðu Eton og þessa drengja­skóla, einka­skóla, það er beint streymi á milli þess­arar skóla og stjórn­mála­el­ít­unnar. Þarna eru drengir sem hafa aldrei kynnst öðru en drengjum með sams­konar silf­ur­skeiðar í munni og fá svo aðgengi að öllum helstu valda­stöðum sam­fé­lags­ins, hvort sem það er í við­skiptum eða menn­ingu.

En ef þú hefur ekki inn­sýn í líf verka­fólks eða fólk sem býr við ann­ars konar hlut­skipti en þú – ekki einu sinni í gegnum eigin skóla­göngu – þá er ólík­legt að þú skiljir veru­leika þess og getir unnið fyrir það sem stjórn­mála­maður. Okkar sam­vera í MA er gott dæmi um mik­il­vægi blönd­unar. MA var nefni­lega ekki meiri elítu­skóli en svo að þangað komust óþekk(t)ar sveita­stúlkur,“ segir Berglind Rós að lokum, gáfu­lega sposk, eins og alltaf.

Vafa­laust bjó vina­hugur og vel­vild að baki hjá yfir­völdum í þessum skólum þegar þau tóku við vand­ræða­barn­inu mér af því að ætt­ingjar mínir föl­uð­ust eftir greiða. Fólk vildi hjálpa vinum sínum, líka þeim sem áttu óþekk börn. En það áttu ekki allir ætt­ingja að sem áttu vini víða í sam­fé­lag­inu sem gátu hjálpað þeim. Ekki þá frekar en nú. Sagan okkar Berg­lindar er barn síns tíma, hún myndi hafa farið öðru­vísi í dag. En við erum öll sprottin úr þess­ari ver­öld, við erum afsprengi hennar og mót­uð­umst af henni og þar með líf okkar í dag. Stétt­skipt­ing lifir góðu lífi í ýmsum myndum og á ótelj­andi gráum svæðum. Eina sem breyt­ist er birt­inga­mynd hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár