Hólmfríður Helga Sigurðardóttir

Starfsfólk hjúkrunarheimila þarf meiri fræðslu um heilabilun
FréttirFaraldur 21. aldarinnar

Starfs­fólk hjúkr­un­ar­heim­ila þarf meiri fræðslu um heila­bilun

Samræma þarf þjón­ustu við ein­stak­linga með heila­bilun á hjúkr­un­ar­heim­ilum, þannig að jafn­ræðis sé gætt. Þá þarf að bæta aðstöðu á þeim hjúkr­un­ar­heim­ilum þar sem enn er þröng­býlt. Þetta er meðal þess sem stefnt er að og lesa má úr aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í þjón­ustu við fólk með heila­bilun.
„Þetta er eins og að missa hann rosalega hægt“
FréttirFaraldur 21. aldarinnar

„Þetta er eins og að missa hann rosa­lega hægt“

Pabbi systr­anna Pálínu Mjallar og Guðrúnar Huldu greind­ist með Alzheimer fyrir sjö árum en þær segja erfitt að segja til um hvenær fyrstu ein­kenna sjúk­dóms­ins varð vart. Síðan þá hefur fjöl­skyldan tek­ist á við sjúk­dóm­inn í ferli sem syst­urnar lýsa sem afar lýj­andi. Þær eru þakk­látar fyrir kær­leiks­ríka umönnun pabba síns en segja afar brýnt að bæta stuðn­ing við nán­ustu aðstand­endur.
„Það er ekki lengur töff að vera ómissandi“
Viðtal

„Það er ekki lengur töff að vera ómissandi“

Nýverið kom Lífs­gæða­dag­bókin út hjá bóka­út­gáf­unni Sölku en mark­mið hennar er að hjálpa fólki að hámarka lífs­gæði sín og ná mark­miðum án þess að vera stöðugt í kapp­hlaupi við tím­ann. Hug­mynd­ina að bók­inni á Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir, stofn­andi Heilsu­fé­lags­ins, en hún hefur sjálf nýtt aðferðir bók­ar­innar í störfum sínum sem ráð­gjafi og til þess að hámarka sín eigin lífs­gæði.
Þar sem konurnar stýra samfélaginu
Viðtal

Þar sem kon­urnar stýra sam­fé­lag­inu

Sveit­ar­stjór­inn, prest­ur­inn, org­anist­inn, úti­bús­stjóri Lands­bank­ans, versl­un­ar­stjór­inn í Kjör­búð­inni, félags­mála­stjór­inn, fræðslu­stjór­inn, hjúkr­un­ar­for­stjóri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sæborgar, hafn­ar­vörð­ur­inn og for­stöðu­maður Vinnu­mála­stofn­unar á Norð­ur­landi vestra, sem er stærsti atvinnu­rek­andi svæð­is­ins, eru allt konur, að ógleymdum stjórn­endum allra skól­anna – grunn­skól­ans, leik­skól­ans og tón­list­ar­skól­ans. Á Skaga­strönd gegna konur lang­flestum af helstu ábyrgð­ar­stöðum sveit­ar­fé­lags­ins.
Þegar konur tóku völdin á útgáfunni
Viðtal

Þegar konur tóku völdin á útgáf­unni

Lengi vel átti það við hér á landi að karlar skrif­uðu bækur sem aðrir karlar gáfu út. Konur hafa hins vegar alla tíð verið á meðal les­enda bóka og lesa sam­kvæmt rann­sóknum tals­vert meira en karl­menn í dag. Það var því eðli­leg þróun þegar konum tók að fjölga á meðal útgef­enda, sem hugs­an­lega hefur átt sinn þátt í því að konur í hópi rit­höf­unda eru nú ekki síður áber­andi en karlar. Ellefu konur sem stýra níu útgáfu­fé­lögum komu saman á dög­unum og ræddu breyt­ingar á bóka­brans­anum, sem þær segja heil­brigð­ari og fjöl­breytt­ari í dag en áður.
Brýnt að bæta þjónustu við ungt fólk með heilabilun
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

Brýnt að bæta þjón­ustu við ungt fólk með heila­bilun

Í bígerð er að opna mið­stöð fyrir ungt fólk sem greinst hefur með heila­bilun. Á hverju ári grein­ast um 20 manns undir 65 ára aldri með heila­bilun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Áætlað er að rúm­lega hund­rað manns auk aðstand­enda myndu á hverjum tíma geta nýtt sér þjón­ustu­mið­stöð­ina, sótt þar meðal ann­ars félags­skap, jafn­ingja­stuðn­ing, þjón­ustu sál­fræð­ings og ann­arra sér­fræð­inga.
„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“

Tæplega fjögur ár eru frá því að Ellý Katrín Guð­munds­dóttir greind­ist með Alzheimer, aðeins 51 árs. Nýverið hófst nýr kafli í hennar lífi, þegar hún hætti að vinna hjá Reykja­vík­ur­borg og sneri sér alfarið að dag­þjálfun í Hlíðabæ. Hún og eig­in­maður hennar, Magnús Karl Magn­ús­son, standa nú sem fyrr þétt saman og hafa ein­sett sér að njóta ein­földu og kunn­ug­legu hlut­anna í líf­inu.
Pabbi þeirra varð bráðkvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkrunarheimili
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

Pabbi þeirra varð bráð­kvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkr­un­ar­heim­ili

For­eldrar systk­in­anna Ernu Rúnar, Berg­lindar Önnu og Hjalta., þau Hjört­fríður og Magnús Andri, lét­ust með tveggja ára milli­bili áður en þau náðu sex­tugu. Hjört­fríður hafði glímt við Alzheimer frá árinu 2012 og naut stuðn­ings Magnúsar, sem sinnti henni dag og nótt. Aðeins fáeinum mán­uðum eftir að hún flutti á hjúkr­un­ar­heim­ili varð hann bráð­kvaddur. Systk­inin eru þakk­lát stuðn­ingi sam­fé­lags­ins í Grinda­vík og segja áföllin hafa þjappað þeim saman og breytt afstöðu þeirra til lífs­ins. Þeim þyki lífið ekki lengur vera sjálf­sagt.
„Fólk heldur að maður sé orðinn alveg kexruglaður“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Fólk heldur að maður sé orð­inn alveg kexrugl­aður“

Skip­stjór­inn Jónas Jónasson var ekki nema 53 ára þegar hann greind­ist með Alzheimer fyrir tveimur árum. Grein­ingin var honum og fjöl­skyld­unni högg, ekki síst vegna þess að honum var umsvifa­laust sagt upp vinn­unni og margir félagar hans hættu að hafa sam­band. „Hann var alltaf í sím­anum, það var aldrei hægt að ná í hann,“ segir dóttir hans. „En svo bara hætti sím­inn að hringja.“
Lagabreyting girðir fyrir veika von: Börnin sem hefði verið vísað burt
Fréttir

Laga­breyt­ing girðir fyrir veika von: Börnin sem hefði verið vísað burt

Mörg þeirra barna sem fengið hafa alþjóð­lega vernd hér á landi á und­an­förnum árum hefðu ekki fengið að setj­ast að hér, væri fyr­ir­huguð laga­breyt­ing orðin að veru­leika. Rauði kross­inn á Íslandi ótt­ast að með laga­breyt­ing­unni fjölgi rétt­inda­lausu fólki hér sem hefur ekki kenni­tölu, má ekki vinna og hefur tak­mark­aðan aðgang að heil­brigð­is­kerf­inu.

Mest lesið undanfarið ár