
Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
Jane Mayer, blaðamaður hjá The New Yorker, segir milljarðamæringa fjármagna samtökin Turning Point sem borguðu Norðurlandaferð hóps Repúblikana að hitta formann Miðflokksins og fleira áhrifafólk af hægri vængnum. Hún hefur rannsakað net Charles Koch sem nær til Íslands. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur ekki svarað því hver greiddi ferð hans.
