
Bandaríkin eru stærsti ógnvaldurinn
Óútreiknanleg framkoma Donalds Trump gagnvart Grænlandi vekur ekki aðeins spurningar um framtíð sjálfstjórnar eyjunnar heldur hefur hún líka grafið undan þeirri öryggisskipan sem norðurslóðir hafa byggt á í áratugi. Þrátt fyrir að líkur á beinni innrás eða innlimun séu enn litlar, segir sérfræðingur við Háskóla Grænlands að sú staðreynd að þær séu ekki „núll” breyti öllu. „Það eitt að þurfa að taka slíka sviðsmynd alvarlega er alvarlegt í sjálfu sér,“ segir dr. Rasmus Nielsen. „Við erum vön því að stórveldi virði ákveðin grunnviðmið. Trump gerir það ekki.“