Brjóstin mín, brjóstin þín (sungið við Knowing me, Knowing you með ABBA)
Ég var einu sinni beðin um að hætta að afklæða mig við plötusnúðun, af eiganda Kofa Tómasar frænda. Ég troðfyllti staðinn alltaf sem var ekki erfitt því hann var pínulítill. Þar var lítið sem ekkert loftræstikerfi, ógeðslega heitt og stundum spilaði ég á brjóstahaldaranum. Strákaplötusnúðarnir fóru gjarnan úr að ofan, sem og karlar á dansgólfinu. Ég varð ekki vör við...