Mildum höggið með fræga fólkinu
Muniði eftir stigagjöfinni í Júróvisíón um síðustu helgi? Á eftir öllu þessu bláókunnuga evrópska sjónvarpsfólki, fremjandi hvern tískuglæpinn á fætur öðrum, sveif Nigella inn á skjáinn á mjög krítískum tímapunkti eins og verndarengill allra sem vita hvað það er að finna til í hjartanu og sálinni. Með hlýju sinni, glettni og speki sameinaði hún Evrópu þannig að öll álfan hlýtur...