• þriðjudagur 24. nóvember 2026
  • 0°C Hálfskýjað 5 m/s
  • Styrkja
  • Skrá inn
  • Áskrift
Skrá inn Fá áskrift
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Fasteignir
  • Hátekjulistinn

Heimildin

  • Blöð
  • Fréttabréf
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Styrkja
  • Gefa áskrift
  • Heimilisblaðið
  • Benda á frétt
  • Um Heimildina
  • Laus störf
  • Auglýsingar
Útlit

© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.

  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
Greinaröð

Hamingjan

HamingjanSigtryggur Ari Jóhannsson

Á eilífum flótta

Sigtryggur Ari Jóhannsson ljós­myndari skrifar um hamingjuna. Flóttann og frelsið sem felst í því að viðurkenna kvíðna og dapra hluta af sjálfum sér, leyfa þeim að vera en halda samt áfram í léttleikann og gleðina.
Sigtryggur Ari Jóhannsson
Hamingjan

Hamingjan í flæðis­ástandi lista­mannsins

Þrándur Þórarinsson list­málari talar um að hamingjan sé boðefni í sálar­fylgsninu og að það þurfi að leggja reglulega inn í gleði­bankann. Hann nefnir góð áhrif hreyfingar á sálar­tetrið og það hvernig líðanin smitar inn í málverkin hans.
Hamingjan

Endur­heimti hamingjuna með aðstoð og breyttu hugarfari

Eva Hrund Einars­dóttir gekk á vegg fyrir mörgum árum en hún upplifði kulnun meðal annars vegna ofþjálfunar. Hún fékk alls konar hjálp til að komast yfir ástandið og endur­heimta hamingjuna. „Helsti lærdómurinn var að læra að segja nei, að lifa í núinu, nýta tímann með þeim sem maður elskar sem og verja tímanum í hluti sem veita manni jákvæða orku.“
Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

Maður varð heill

Guðmundur Andri Thorsson segir að þegar eitthvað kemur upp á í lífinu verði maður bara að standa á fætur aftur, hrista sig og halda áfram. Það að vinna úr hlutunum á jákvæðan hátt sé alltaf ákvörðun. Guðmundur Andri og eiginkona hans gátu ekki eignast barn og ákváðu því að ættleiða og eiga tvær uppkomnar dætur. Þegar hann hafi fengið eldri dótturina í fangið þá hafi hann orðið heill.
Hamingjan
3

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.
Hamingjan
4

Fann frelsi og hamingju við að ganga á fjöll

Hanna Gréta Páls­dóttir hefur nokkrum sinnum staðið á kross­götum í lífinu og ekki verið á þeim stað sem hún hefði viljað vera á. Hún breytti um lífsstíl fyrir um áratug og fór að ganga á fjöll. Þá fór hún að upplifa hamingjuna en það er jú sagt að göngur séu góðar fyrir líkama og sál. „Eftir 17 tíma göngu var ég ósigrandi, full af sjálfs­trausti og hamingjusöm,“ segir hún um eina gönguna.
Hamingjan
1

Við byggjum upp hamingju okkar með réttum ákvörðunum

Ágúst Borgþór Sverrisson, blaða­maður og rithöfundur, segir að þakklæti sé einn af hamingju­lyklunum sínum og að dagleg vinnusemi sem færir afrakstur sé ein af forsendum þess að manneskja upplifi hamingju. Hann segist aldrei meðvitað hafa staðið í þeim sporum að hann teldi sig þurfa að finna hamingjuna en ómeðvitað hafi hann án nokkurs vafa leitað leiða til þess í barnæsku og verið í sérstakri þörf fyrir það þá.
Hamingjan

Útivist og hreyfing í góðum hópi eykur lífsgleði

Harpa Stef­ánsdóttir hefur þurft að rækta hamingjuna á nýjan hátt síðustu ár. Þar hefur spilað stærstan þátt breytingar á fjölskyldu­mynstri. Hún hefur auk þess um árabil búið í tveimur löndum og segir að sitt daglega líf hafi einkennst af að hafa þurft að hafa fyrir því að sækja sér félags­skap og skapa ný tengsl fjarri sínu nánasta fólki. Harpa talar um mikilvægi hópa­starfs tengt útivist og hreyfingu en hún telur að hreyfing í góðum hópi stuðli að vellíðan.
Hamingjan
1

Hugrekki og dass af kæruleysi

Heiðdís Helga­dóttir, hönnuður og teiknari, var með ómeð­höndl­aðan athyglis­brest sem varð til þess að hún fékk ofsa­kvíðaköst. Hún fór í mikla sjálfs­vinnu, leitaði til sálfræðings, fékk lyf og segir að hugrekki og traust sé grund­völlur hamingjunnar en líka dass af kæruleysi. Hún segir mikilvægt að vera í kringum jákvætt og gott fólk því gleðin sé besta næringin.
Hamingjan

Lærdómurinn af því að eignast fatlað barn og skilja

Dagbjört Ásbjörns­dóttir á tvíbura­syni, annar þeirra er fatlaður og upplifir hún oft hamingjuna í því sem aðrir taka sem sjálfsögðum hlut. Hún ákvað að finna hamingjuna eftir skilnað. „Ég held að ástin færi manni ekki hamingjuna; ástin bætir alltaf ofan á hamingjuna.“
Hamingjan

Hið illa má ekki hafa yfir­höndina

Agnes M. Sigurðar­dóttir, biskup Íslands, talar um leitina að hamingjunni og segir ástina sterkasta aflið. Trúin hjálpar líka til og vissan um upprisuna. „Þannig vann ég mig til dæmis upp úr svart­nætti lífs­reynslu minnar ef ég má orða það þannig: Með því að hanga í ljósinu.“ Píslar­sagan sé að endurtaka sig núna með fólkinu í Úkraínu. „Þetta er bara svo mikill hryllingur að maður á ekki til orð.“
Sýna fleiri greinar

12 af 104

Stofnuð árið 2023 af Stundinni og Kjarnanum
  • Fréttir
  • Rannsóknir
  • Fólk
  • Menning
  • Umræða
  • Þekking
  • Lífið
  • Þættir
  • Leikir
  • Fasteignir
  • Blöð
  • Áskrift
  • Vinnustaðaáskrift
  • Fréttabréf
  • Tilkynningar
  • Um Heimildina
  • Benda á frétt
  • Auglýsingar

Morgunpósturinn

Morgunpóstur Heimildarinnar berst alla morgna og er fyrir öll þau sem hafa áhuga á fréttum og þjóðfélagsumræðu.

Áskrift hefur áhrif

Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Sjá meira
© 2026 Sameinaða útgáfufélagið ehf. Allur réttur áskilinn. Notkun á efni miðilsins er óheimil án samþykkis.
Áskrift hefur áhrif
Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku.
Ég vil fá áskrift
Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.
Heimildin notar vefkökur til að mæla lestur og birta auglýsingar. Sjá nánar.
  • Skrá inn
  • Nýskrá
  • Við sendum þér kóða í tölvupósti: ekkert lykilorð þarf.

    eða

    Skrá inn með lykilorði
    Gleymt lykilorð?
    Halda áfram með Facebook

    Stofna aðgang · Leiðbeiningar

  • Minnst 8 stafir; hvorki algengt lykilorð né eingöngu tölustafir.

    eða

    Halda áfram með Facebook