Greining

Bókfærð mán­að­ar­laun for­stjóra SKEL næstum 19 millj­ónir ofan á kaup­rétt upp á millj­arð

For­stjóri SKEL fékk á annað hund­rað millj­ónir króna í fyrra vegna „keyptra starfs­rétt­inda“ofan á hefð­bundin laun. Hann fékk auk þess kaup­rétt­ar­samn­ing sem met­inn er á yfir einn millj­arð króna. Olíu­bíl­stjórar hjá dótt­ur­fé­lagi SKEL eru í verk­falli og krefj­ast kjara­bóta. Það tekur þá næstum fjögur ár að vinna sér inn mán­að­ar­laun for­stjór­ans á grunn­launum sínum.
Spurningaþrautin

1027. spurn­inga­þraut: Hvar er þessi ban­ani?

Fyrri auka­spurn­ing: Hvað hét hljóm­sveitin sem not­aði mynd­ina hér að ofan á plötu­umslag? *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Og í fram­haldi af spurn­ing­unni hér að ofan: Hvað hét söng­konan sem söng með hljóm­sveit­inni á plöt­unni? 2.  Hve gam­all er elsti hundur í heimi? 3. Karl einn var meðal vin­sæl­ustu rit­höf­unda Eng­lend­inga á seinni hluta 20. aldar. Í breskum blöðum var honum hvað eftir...
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Þing­maður gagn­rýnir að Bjarni skipi meiri­hluta fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar: „Galið fyr­ir­komu­lag“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir enga arms­lengd á milli stjórn­mála og fjár­mála­eft­ir­lits ef fjár­mála­ráð­herra skipar meiri­hlut­ann í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Hún spurði Bjarna Bene­dikts­son út í málið í nóv­em­ber en hefur enn ekki fengið svör. Spurn­ingar Þor­bjargar tengj­ast þeirri umræðu sem nú fer fram innan stjórn­mála og stjórn­kerfis um Seðla­banka Íslands og fjár­mála­eft­ir­litið.
GreiningSamherjaskjölin

Félag Þor­steins Más orðið að skel utan um 30 millj­arða lán til barna hans

Eign­ar­halds­fé­lag Þor­steins Más Bald­vins­sonar og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans Helgu S. Guð­munds­dóttir á ekki lengur neinar fyr­ir­tækja­eignir að ráði. Félagið hefur á síð­ustu árum, í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, losað sig við hluta­bréf í íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja hf, í útgerðum erlendis og í Eim­skipum. Í dag er félagið ekk­ert annað en kennitala utan um selj­enda­lán vegna sölu á 44 pró­senta hlut í Samherja.
Fréttir

Líf­eyr­is­sjóðs­stjóri fannst í miðri skattsvikafléttu Sigurðar í Sæmark

Kristján Örn Sig­urðs­son, sem hætti sem for­stjóri Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins eftir upp­ljóstrun Panama­skjal­anna, var í for­svari fyrir Panama­fé­lag sem var í þunga­miðju hund­raða millj­óna skattsvika Sigurðar Gísla Björns­sonar, eig­anda og stjórn­anda Sæmarks. Yfir­skatta­nefnd hefur stað­fest hálfs millj­arðs skatta­kröfu á hendur þeim síð­ar­nefnda í einu umfangs­mesta skattsvika­máli sög­unnar.

9 mín. lestur

Greining

Þrír bankar sem högn­uð­ust um 66,9 millj­arða króna í fyrra

Hagnaður stærstu banka lands­ins dróst saman í fyrra en vaxta­tekjur þeirra uxu um 24 pró­sent milli ára í umhverfi síhækk­andi stýri­vaxta og verð­bólgu. Seðla­bank­inn er búinn að biðja þá um að halda að sér höndum í að skila pen­ingum til hlut­hafa á næst­unni. Heim­ildin tók saman tíu stað­reyndir um upp­gjör Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka.
Spurningaþrautin

1026. spurn­inga­þraut: Hvar vex stærsta blóm í heimi?

Fyrri auka­spurn­ing: Í hvaða landi er þessi mynd tekin? *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Montgolfier-bræð­urnir í Frakk­landi þró­uðu á 18. öld ákveðið fyr­ir­bæri fyrstir allra. Hvað var það? 2.  Hvað nefnd­ist höllin þar sem Rússa­keis­arar höfðu aðal­að­setur 1732-1917? 3.  Yangon (áður skrifað Rangún) var höf­uð­borg í ríki einu þar til árið 2006 þegar rík­is­stjórn lands­ins flutti höf­uð­borg­ina til Naypyidaw. Hvaða land er hér um...
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Starfs­maður fjàr­mála­ráðu­neyt­is­ins víkur sæti við með­ferð Íslands­banka­máls­ins

Guðrún Þor­leifs­dóttir, skristofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefur vikið í sæti við umfjöllun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar á Íslands­banka­mál­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið segir að að þetta sé vegna aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin stýrir því hvernig Íslands­banka­mál­inu lýkur hjá Seðla­banka Íslands.
FréttirSamherjaskjölin

Mútu­þegar Samherja fyrir rétt í októ­ber

Rétt­ar­höld í máli namibískra stjórn­mála- og áhrifa­manna sem ákærðir eru fyrir að þiggja mútur frá Samherja í skiptum fyrir kvóta, munu hefj­ast 2. októ­ber. Þetta var ákveðið í þing­haldi í Namibíu í morgun. „Stór stund“ en fjar­vera Íslend­inga æpandi, segir tals­maður sam­taka gegn spill­ingu í Namibíu. Jóhannes Stef­áns­son fagnar áfang­anum og er klár í vitna­stúk­una í Windhoek í haust.

Mest lesið undanfarið ár