GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist ekki lúta neinu eft­ir­liti frá Seðla­bank­anum vegna Íslands­banka­söl­unnar

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra svar­aði spurn­ingum Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur um hvernig eft­ir­liti opin­berra stofn­ana um emb­ætt­is­færslur hans er háttað. Spurn­ing­arnar snú­ast um mögu­leika stofn­ana til að rann­saka aðkomu og ábyrgð fjár­mála­ráð­herra á söl­unni á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í fyrra.
Viðskipti

Við­skipta­verð­laun Innherja þóttu „óþarf­lega umfangs­mikil“

Mikið var um dýrðir þegar við­skipta­verð­laun Innherja og vel­gjörð­ar­fé­lags­ins 1881 voru veitt í lok árs 2021. Samkvæmt Þórhalli Gunn­ars­syni fram­kvæmda­stjóra miðla hjá Sýn er ekki búið að ákveða hvort verð­launin verði veitt aftur. Hann segir að þau hafi verið umfangs­meiri en marga óraði fyrir og ef nið­ur­staða þeirra verður sú að efna til þeirra aftur þá sé klárt að þau verði bæði ein­fald­ari og smærri í sniðum.
Spurningaþrautin

1033. spurn­inga­þraut: Vaka, va'a, waka eða wa'a?

Fyrri auka­spurn­ing: Hvaða dýr prýðir mynd­ina hér að ofan?  *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Hvað áttu Elsa Lund, Þórður hús­vörður, Dengsi, Eiríkur Fjalar, Skúli raf­virki og Saxi læknir sam­eig­in­legt? 2.  Í hvaða landi var Desmond Tutu biskup? 3.  Hvaða þjóð eða þjóð­ar­hópur sigldi um höfin á bátum sem kall­aðir voru vaka, va'a, waka eða wa'a? 4.  Hvað eiga þeir Randolph Peter Best og Stuart Ferg­usson Victor Sutcliffe helst sam­eig­in­legt...
Fréttir

Segir hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­an­um stór­furðu­lega

Þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, lá ekki á skoð­unum sínum í þingi í dag en hann sagði að hin blinda trú rík­is­stjórn­ar­innar á hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­anum væri stórfurðu­leg og alger­lega and­stæð heil­brigðum og eðli­legum efa­semdum – og því í eðli sínu stór­hættu­leg, hvort sem um væri að ræða trú­ar­brögð, stjórn­mála­stefnu eða hag­stjórn.
Fréttir

Umboðs­maður Alþingis sendi for­sæt­is­ráð­herra bréf vegna raf­byssu­máls­ins

Umboðs­maður vill að for­sæt­is­ráð­herra taki afstöðu til þess hvort ákvörðun Jóns Gunn­ars­sonar um að heim­ila lög­reglu almennt að bera og nota raf­byssur hafi falið í sér „mik­il­væga stefnu­mörkun eða áherslu­breyt­ingu“ og hafi þar af leið­andi átt að ræða á rík­is­stjórn­ar­fundi áður en regl­unum var hrint í fram­kvæmd.
Fréttir

Þarf tvö­falt meira grunn­vatn en allt höf­uð­borg­ar­svæðið

Kalda­vatns­notkun í Reykja­vík nemur um 700 lítrum á sek­úndu, en fyr­ir­hugað verk­efni Carbfix í Straums­vík, þar sem dæla á millj­ónum tonna af koltví­sýr­ing ofan í berg­lögin, þarf að sækja um 2.500 lítra á hverri sek­úndu í grunn­vatns­straum svæð­is­ins. Straums­vík­ur­straum­ur­inn er öfl­ugur, en opin­berar stofn­anir segja vatns­tök­una vanda­sama.
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti sendi trún­að­ar­gögn til ráð­gjafa Arnarlax

Skrif­stofu­stjór­inn í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi vill fá rúm­lega 30 millj­ónir króna frá rík­inu vegna ólög­mætrar upp­sagnar. Í dómi í máli hans er sagt frá því hvernig sam­skiptum hans við ráð­gjafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax var háttað. Ráð­gjaf­inn var fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans í ráðu­neyt­inu.

Mest lesið undanfarið ár