Fréttir

Lét að því liggja að þing­menn þiggi gjafir fyrir að veita rík­is­borg­ara­rétt

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra lét þau orð falla á Alþingi í dag að hann teldi til­efni til að skoða það í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hvort þing­menn í nefnd­inni hefðu tengsl við eða þegið gjafir frá því fólki sem fengið hefur rík­is­borg­ara­rétt með lögum frá Alþingi. Í kjöl­farið steig hver þing­mað­ur­inn á fætur öðrum í pontu til að bera af sér sakir og dóms­mála­ráð­herr­ann var sak­aður um dylgjur, atvinnuróg og slúður úr ræðu­stól.
FréttirLaxeldi

Norska stjórnin ætlar að lækka skatt­inn en eig­andi Arnarlax segir hagnað lax­eld­is­ins ekki óhóf­legan

Norska rík­i­s­tjórnin hefur boðið breyt­ingar á skatt­heimtu sinni á lax­eld­is­fyr­ir­tækin þar í landi. Lax­eld­is­fyr­ir­tækin eru hins vegar ósátt og kvarta yfir skatt­lagn­ing­unni. Meðal ann­ars er um að ræða Salmar AS, stærsta eig­anda Arnarlax á Bíldudal, sem telur að arð­semi fyr­ir­tæk­is­ins sé ekki óhóf­leg þrátt fyrir rúm­lega 30 millj­arða arð­greiðslur út úr fyr­ir­tæk­inu nokkur ár í röð.
FréttirKína og Ísland

NATO hefur lýst áhyggjum af rann­sókn­ar­mið­stöð Kína um norð­ur­ljósin

Norð­ur­ljósa­rann­sókn­ar­mið­stöð Íslands og Kína að Kárhóli í Þing­eyj­ar­sýslu hefur verið vand­ræða­mál inni í stjórn­kerf­inu um nokk­urra ára skeið. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, furð­aði sig á mið­stöð­inni eftir að hann varð utan­rík­is­ráð­herra. Rann­sókn­ar­mið­stöðin virð­ist hafa verið ákveðin og byggð nán­ast án póli­tískrar aðkomu eða eft­ir­lits.
Þekking

Háhyrn­ingar ætt­aðir frá Íslandi end­uðu sem sýn­ing­ar­dýr á Tenerife

Tugir háhyrn­inga voru fang­aðir við strendur Íslands á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar og seldir í dýra­garða. Þeir áttu margir hverjir ömur­lega ævi, enda rifnir frá fjöl­skyldum sínum, töp­uðu jafn­vel glór­unni og urðu fólki að bana. Sumir þeirra lifa enn – og nokkrir nákomnir ætt­ingjar þeirra eru í haldi á Tenerife.

9 mín. lestur

Spurningaþrautin

1067. spurn­inga­þraut: Hér er spurt um nokkra sem hafa fengið for­seta­orðu

Fyrri auka­spurn­ing: Hvað nefn­ist dýrið á mynd­inni? *** Aðal­spurn­ingar: 1.  Í hvaða landi er teikni­mynda­per­sónan Tinni upp­runnin? 2.  Hvað kall­ast Tinni ann­ars á frum­mál­inu? 3.  Í sagna­heimi hvaða þjóðar býr for­ynjan Medúsa? 4.  Hver skrif­aði bók um afa sinn undir nafn­inu Skrýtn­astur er maður sjálfur? 5.  Í hvaða landi er ferða­manna­stað­ur­inn Sharm El-Sheikh? 6.  The Pres­idential Medal of Freedom er...
Fréttir

„Það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæð­ara við­horf“

Heil­brigð­is­ráð­herra sat fyrir svörum á Alþingi í dag en hann var meðal ann­ars spurður út í biðlista eftir grein­ingum barna. Hann sagði að stjórn­völd væru raun­veru­lega að takast á við stöð­una og að þau vildu svo sann­ar­lega að börnin og allir þeir sem þurfa á þess­ari þjón­ustu og grein­ingu að halda þyrftu ekki að bíða of lengi.
Fréttir

Fólk þurfi að „rísa upp eða gef­ast upp“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Verka­lýðs­fé­lags Akraness, gagn­rýndu Seðla­bank­ann og stjórn­völd harð­lega í útvarps­við­tali að morgni mánu­dags. „Við erum ekki hæf, því miður, við virð­umst ekki vera hæf til að stýra gjald­miðl­inum okkar. Við erum ekki hæf til að stýra efna­hags lands­ins. Við erum ekki með hæft fólk til að vera í brúnni, bara því miður, hvorki stjórn­mála­menn né fólkið í Seðla­bank­anum,“ sagði Ragnar Þór.

Mest lesið undanfarið ár