Fréttir

Almennir skatt­greið­endur eiga ekki að greiða bætur til útgerð­ar­innar

Ríkið mun áfrýja nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sem dæmt hefur ríkið til að greiða útgerð­ar­fé­lög­unum Vinnslu­stöð­inni og Hugin bætur vegna úthlut­unar veiði­heim­ilda á árunum 2011 til 2018. Verði nið­ur­staðan að ríkið þurfi að greiða bætur á kostn­að­ur­inn ekki lenda á skatt­greið­endum að mati fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.
FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
Fréttir

Fram­leng­ing toll­frelsis fyrir Úkraínu ekki á dag­skrá

Deilur eru sagðar innan rík­is­stjórn­ar­innar um fram­leng­ingu á bráða­birgða­á­kvæði um toll­frelsi úkra­ínskra vara. Ákvæði þar um rann út um liðin mán­að­ar­mót og málið er ekki meðal þeirra sem stefnt er að því að afgreiða fyrir þing­lok. Er það fyrst og fremst inn­flutn­ingur á úkra­ínskum kjúklingi sem virð­ist standa í fólki en for­svars­fólk úr land­bún­aði hefur lagst hart gegn áfram­hald­andi toll­frelsi á inn­fluttar land­bún­aða­af­urðir.
Fréttir

Ríkinu gert að greiða hátt í millj­arð til Vinnslu­stöðv­ar­innar og Hugins

Tvær útgerðir, sem fengið höfðu mak­ríl­kvóta að millj­arða verð­mæti end­ur­gjalds­laust, fá nú einnig greiddar 844 millj­ónir króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta eftir dóm sem féll íslenska rík­inu í óhag í dag. Upp­haf­lega stefndu sjö útgerðir rík­inu til greiðslu bóta en fimm féllu frá máls­sókn­inni eftir hörð við­brögð í sam­fé­lag­inu.

Mest lesið undanfarið ár